Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.10.2008 | 04:05
Hvað er umhverfisvernd?
Umhverfisvernd hvað er umhverfisvernd er hún tilheyrandi slagorð: "Fyrir ófæddu börnin okkar", "fyrir komandi kynslóðir", - eða er umhverfisvernd fyrir umhverfisvernd í eigin heimi; ekki í tengslum við líf og afkomu fólksins sem býr í landinu - þar sem of skipulagningin umhverfis er ekki í samræmi við að nota landið/auðlindir innan skynsamlegra marka til að skapa framtíð fyrir ófæddu börnin okkar?
Er umhverfisvernd orðin "umhverfisiðnaður" þar sem listamenn og stjórnmálmenn fara um heiminn og höfða til tilfinninga fólks meira en skynsemi? Búa í glæstum húsakynnum, strá um sig peningum og fljúga um heiminn á einkaþotum með tilheyrandi lúðrablæstri?
![]() |
Langtímahagsmunir verði hafðir í huga varðandi auðlindir landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook
21.10.2008 | 01:53
Er ný ríkisstjórn í spilunum?
Það er heldur ekki hægt að skilja ófædd börn eftir verðum að vinna varnarsigur annars fæðast ekki neinir Íslendingar verðum þrælabúðir í eigin auðlindum hjá "fjármálamógúlum" - og ESB? Skást að semja við IMF ásamt Norðmönnum? Nú er Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra að kanna liðsinni Frakka - hefur væntanlega liðsinni Þjóðverja?
Nauðsynlegt að taka ákvarðanir sem fyrst, kom fram í Kastljósinu að þreifingar væru hafnar að mynda nýja stjórn: Samfylkingin, Vinstri grænir og uppsóp úr Framsókn? Vonandi stuðlar Ögmundur Jónasson ekki að slíkri stjórn þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson yrði forsætisráðherra - eða sérlegur efnahagsrágjafi ?
![]() |
Rangt að skuldbinda ófædd börn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.10.2008 | 01:29
"Fjármálagarkarnir eignast Ísland?"



Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook
20.10.2008 | 17:31
Bókaútsölu fyrir jólin?
Heillaráð að flýta bókamarkaðnum seinni part vetrar; gefa fólki kost á kostakjörum mætti selja "fjölskyldupakka" og á magnafslætti af nokkrum bókum. Auðga andann með bóklestri, gleyma kreppunni um stund yfir jólin.
![]() |
Jólabækur í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook
20.10.2008 | 14:58
ESB - nei nei takk - "seljum ekki mömmu okkar"
Hvers vegna skyndihraðferð inn í ESB vilja fá auðlindirnar okkar ódýrt enda ekki mikið af þeim eftir í Evrópu? Enga útsölu á Íslandi til ESB betra að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn - Rússa - og Japani.
Gæti kostað stjórnarslit því nógir eru í Samfylkingunni sem vilja ganga í ESB? Flokkurinn á nóga sérstaka talsmenn ESB innan sinna raða sem myndu með glöðu geði jafnvel selja "ömmu sína og mömmu" til að komast inn?
![]() |
Ítrekar að Ísland fengi hraðferð inn í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook
20.10.2008 | 11:27
Ísland greiði ekki breskt skuldabrask
"Bretar vilja firra sig allri ábyrgð í þessari deilu. Þeir telja sig geta neytt aflsmunar og kúgað fé út úr íslenskum stjórnvöldum sem eiga í vök að verjast" er millifyrirsögn í Mbl (ídag) greinar Guðna Elíssonar dósents H.Í. þar sem hann skrifar að Bretar ætli að nota sér bága aðstöðu Íslands til sækja greiðslur umfram það sem lög segja til um vegna innlána breskra í íslensku bankana. Landsbankinn í Bretlandi var í einkaeign og réttmætt að fyrrverandi eigendur bankans er eigi miklar eignir í Bretlandi beri siðferðileg ( og lögleg) skylda til að bæta breskum sparifjáreigendum tjónið.
Íslenska þjóðin greiði það sem henni ber samkvæmt lögum en hitt verði Bretar greiða. Breska fyrirtækið Fitch er sér um lánhæfismat varaði bresk stjórnvöld margsinnis við hættunni að fjárfesta í íslenskum bönkum.
Íslenska ríkið á ekki að greiða skuldir sem hún stofnaði ekki til og verða stjórnvöld að standa fast á sínum lögfræðilega og (siðferðilega) rétti gagnvart Bretum. Nákvæmlega átti Davíð Oddson við það sama þegar hann sagðist (í Kastljósi) ekki standa að greiðslum úr Seðlabankanaum fyrir óreiðumenn. Eigendur einkafjármagns geta ekki gengið á skítugum skónum um almannafé og verða stjórnvöld að standa fast á þeim rétti okkar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook
20.10.2008 | 09:20
En undirmálslánin í Bandaríkjunum?

![]() |
Stjórnvöld skilningslaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:23 | Slóð | Facebook
19.10.2008 | 16:47
Forsetaembættið í uppnámi? - "enginn má undan líta"
Forsetaembættið er æðsta embætti þjóðarinnar; forsetinn sýnir þjóðinni best samstöðu sína með að stíga til hliðar við fyrsta tækifæri. Annars er embættið í uppnámi sem sameiningartákn, er við hefðum sárlega þurft á að halda í erfiðleikum þjóðarinnar.
19.10.2008 | 15:14
"Enginn má undan líta " (nr 2)
Óskiljanlegt hvað Jón Baldvins Hannibalsson var að fara í kastljósinu (Rúv. í dag); nema til að reka Davíð Oddsson seðlabankastjóra, trompiðí spunamennsku stjórnmálanna, getur ekki slegið ryki í augun á þjóð í efnahagsvanda. Söngurinn ef við hefðum farið að ráðum Jóns Baldvins og gengið í ESB, þá væru engin vandamál er ekki trúverðugur. Er ekki vandamálið/undirrótin ESB; frjálst flæði fjármagns milli landa án þess að settar væru samskiptareglur um ábyrgð hvernig sparifé almennings skyldi meðhöndlað á á EES-efnahagsvæðinu - og ESB-sambandinu.
Enginn má undan líta eða fara með gaspur á fjölmiðlum allra síst ríkisfjölmiðlinum?
19.10.2008 | 02:40
Fyrsta galdrabrennan
Þá er fyrsta "galdrabrennan" hafin þar sem Davíð seðlabankastjóri er píslarvotturinn. Einhvers konar sefjun viðkomandi hóps; vilja ekki horfast í augu við ástandið hvorki persónulega eða með þjóðarhag í huga. Seðlabankastjórnin gerði það sem var óhjákvæmilegt, að yfirtaka Glitni og Landsbankans - og Kaupþings.
Hörmulegt hrun fjármála þjóðarinnar; betra væri að að nota kraftinn líta í eigin barm og spara, lifa ekki um efni fram sem er ein ástæðan, að Ísland er nærri gjaldþrota.
![]() |
Mótmæla Davíð Oddssyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook