Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
16.2.2011 | 19:55
Jóhanna og Steingrímur bíða við dyrnar á Bessastöðum?
![]() |
Forsetinn hlýtur að synja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook
16.2.2011 | 16:13
Formaður Sjálfstæðisflokksins dansar línudans..
Telja má formann Sjáfstæðisflokksins hafi setið báðu megin borðs hann greiddi atkvæði með að vísa Icesavesamningnum til þjóðarinnar; vippaði sér síðan yfir borðið og samþykkti samninginn sem lög frá Alþingi. Með stuðningi formannsins að vísa umræddu máli til þjóðarinnar er auðsjáanlega tilraun að draga í land og lægja öldurnar innan flokksins; en getur hugsanlega gefið forsetanum meiri ástæðu til að vísa málinu til þjóðarinnar.
![]() |
Falsmálflutningur" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.2.2011 | 12:15
Hver er að múta hverjum?
Steingrímur studdi samráðherra sinn , Svandísi Svavarsdóttur dyggilega í þinginu í gær, í ásökun um að Landsvirkjun hefði beitt mútum, að ná fram áformum í virkjunarmálum; sjálfum sér samkvæmur hvað er það annað en ''pólitískar mútur'' að ætla að leggja ríkisábyrgð varðandi Icesaveskuldina á þjóðina og komandi kynslóðir; veit sem er að annars verður ríkisstjórnin að fara frá, ráðherrastóllinn í hættu er hann mun aldrei endurheimta?
Hver er að múta hverjum?
![]() |
Styður ekki þjóðaratkvæði um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook
15.2.2011 | 11:30
Forsetanum vandi á höndum.
Forsetanum er mikill vandi á höndum ekki auðveld ákvörðun hver sem hún verður. Ef ríkisstjórnin nýtir sér flýtimeðferð í gegnum þingið með Icesave- frumvarpið þá styrkir það ákvörðun forsetans að vísa frumvarpinu til þjóðarinnar, jafnframt gætu undirskriftirnar haft úrslitaáhrif.; lausnin er augljós allir ættu að geta sætt sig við er þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hvað varðar Sjálfstæðisflokkinn að hátekjumenn og sérfræðingar ráði þar ríkjum eins og Styrmir Gunnarsson sagði á fundinum í Valhöll í gær, flokkurinn væri ekki lengur flokkur allra stétta þá þurfa margir Sjáfstæðismenn að hugsa sinn gang; axla sín skinn í nánustu framtíð; en spurningin er hvert á að halda?
![]() |
Segir samþykkt Icesave muni marka tímamót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook
14.2.2011 | 02:39
Forsetinn - sannur þjóðarleiðtogi.
Forsetinn er sannur þjóðarleiðtogi, hann viðurkennir mistök sín í trúnni á útrásina;að iðrast er ferli er lýkur með að viðkomandi iðrasta öllu hjarta í orðum sínum og gerðum; það hefur forsetanum tekist. Heyr fyrir honum! Vonandi auðnast honum að sitja sem forseti nógu lengi til að hafa vit fyrir óstarfhæfum sjórnmálamönnum; á mjög svo erfiðum og viðkvæmum tíma hjá þjóðinni.
![]() |
Stjórnarskráin þarf að vera skýrari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook
13.2.2011 | 08:10
Bæn Gísla frá Uppsölum
Gísli frá Uppsölum er löngu þjóðþekktur maður, bóndi er bjó einn, kærði sig lítt um nútíma þægindi, lifði á því sem landið gaf nægjusamur og glaður í bragði, líklega illa skilið núverandi efnahagserfiðleika okkar. Við getum tekið Gísla til fyrirmyndar og varðveitt landið og nýtt það okkur okkur til framdráttar. Ekkert verður okkur dýrmætara en eiga landið þótt það tilheyri svokölluðum köldum svæðum.
Vaxandi matarþörf er eitt mesta vandamál þjóða í framtíðinni, að til verði nægilegur matur, hægt að framfleyta öllum jarðarbúum. Notum innlenda framleiðslu eins og kostur er það er okkur fyrir bestu; sú framtíð að ekki verði nægur matur fyrir jarðarbúa er ekki langt undan.
Gísli frá Uppsölum sótti styrk sinn í kristna trú eins og þjóðin gerði í gegnum aldir;gaf henni andlegan og líkamlegan þrótt þegar náttúrhamfarir, hungur og kuldi sóttu að.
Bæn Gísla frá Uppsölum.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni.
Láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook
12.2.2011 | 08:22
''Velferðarstjórnin'': Eldri borgarar sveitarómagar í ölmusukerfi!
Stjórnmálamenn/stjórnkerfi hafa óátalið nánast eyðilagt, og telja sig hafa lögvarða stöðu til að gera tryggingakerfið að tekjujöfnunarkerfi/ölmusukerfi; nýjasta útspil ''velferðarstjórnarinnar'' til eldri borgara er að greiða verðbætur aðeins þeim er fá lágmarkstekjur frá Tryggingastofnun, seilast í vasa eldriborgara til að jafna launamismun; eru það ákvæði í stjórnarskrá?
Með setningu laga er gengu í gildi í stjórnatíð ''velferðarstjórnarinnar''1. júlí 2009 var almennur grunnlífeyrir afnuminn / tekjutengdur þótt eldri borgarar hafi greitt í þann lífeyrissjóð frá sextán ára aldri og hafi eignarétt til bóta úr honum samkvæmt stjórnarskrá. Er það lausnin í almennum kjarasamningum að greiða verðbætur á lægstu laun og jafna með því launamismun; er það ekki hlutverk tekjuskattskerfisins að jafna laun?
Eftir hrun voru kjör eldri borgara skert um 20% við bættist að fólk 65 ára og eldra tapaði sextíu og fimm milljörðum við hrun bankanna. Vextir af sparifé eru takmarkaðir við kr. 94.000 þús og fjámagnstekjuskattur hækkaður upp í 20%. Hafi eldri borgarar sparifé sitt verðtryggt er lagður fjármagnstekjuskattur á verðbætur óháð hver verðbólgan er. Hvers vegna fá þeir sem eru á almennum launum að halda öllum vöxtum af sparifé sínu?
Þá hefur ''velferðarstjórnin'' ákveðið að taka 700 milljónir úr framkvæmdasjóði aldraðra til reksturs hjúkrunarheimila; eingöngu er ætlaðan til uppbyggingar hjúkrunarheimila samkvæmt lögum.
Samkvæmt ofangreindu er tryggingakerfi aldraða, ölmusukerfi, stefnan að þeir eigi tæplega til hnífs og skeiðar; komist aftur á sveitarómagastigið ef ekkert verður að gert. Eldri borgar hafa mikla reynslu og menntun að baki er ætti að nýtast þeim í kjarabaráttu sinni. Frekar að vanti fjármagn til að sækja réttindi er tekin hafa verið með lögum; það vantar umboðsmann aldraðra/ lögfræðing til varnar og sóknar í hagsmunabaráttu aldraðra.
Félagslegur gildin er áunnust í síðustu öld; að aldraðir ættu að njóta elliáranna eftir langan starfsdag er á undanhaldi í nútímaþjóðfélagi. Keyrði um þverbak við einkavæðingu bankanna; náði hámarki þegar bankastarfsmenn tóku sér ofurlaun og ryksuguðu bankakerfið innan frá er lauk með falli efnahagskerfisins.
Eldri borgurm ber siðferðileg skylda að taka þátt í uppbyggingu nýs þjófélags, viðhalda þeim félagslegu gildum er hafa tapast ;- siðferðileg skylda gagnvart komandi kynslóðum að tryggja tilveru þeirra á efri árum á mannsæmandi hátt.
![]() |
Ráðherrar svara ekki fyrirspurn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.2.2011 kl. 21:57 | Slóð | Facebook
11.2.2011 | 14:32
Ekki bræðravíg!


![]() |
Milljón Egypta mótmælir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook
11.2.2011 | 10:23
Skeggöld og skálmöld.
Valdníðsla umhverfisráðuneytisins gagnvart Flóahreppi er hróplegt dæmi í samtímanum um sjálftöku í ákvarðanatöku þar sem lög eru sniðgengin; stjórnkerfið er vart starfshæft. Framkvæmdavaldið túlkar og teygir löginn; eins og ákvörðun umhverfisráðherra sýnir. Alþingi/löggjafarvald setur lög er ekki standast; nýjasta dæmið eru lög um stjórnlagaþing þar sem krafist er endurupptöku; ef það tekst má telja réttarríkið í hættu.
Dómsvaldið er undir ómældu álagi hefur ekki undan að dæma í vafasömum málum. Er svo komið að sótt er fast að Hæstarétti er reynir að halda uppi réttarríkinu.
Skeggöld og skálmöld ríkið í landinu sem aldrei fyrr .
![]() |
Sömu lög fyrir Flóahrepp og aðra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2011 | 16:10
Leitaði griða í guðshúsi.
Eðlan sýnist vera hið skynsamasta dýr, leitaði sér griða til bjargar lífi sínu eins og tíðkaðis áður fyrr er menn flúðu undan ofsóknum eða í stríði. Vonandi fær hún að halda lífi varla lánlegt að deyða dýrið eftir hafa verið undir verndarvæng í guðshúsi.
![]() |
Eðla spókaði sig í guðshúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.2.2011 kl. 00:36 | Slóð | Facebook