Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ríkisstjórnin pólitískt vanhæf?

Vonlaus staða Steingríms J. Sigfússonar í Kastljósi í gær er hann kom fram til varnar ríkisstjórninni og gerðum hennar; jafnframt kom hann fram sem ókrýndur forsætisráðherra vegna þess að Jóhanna Sigurðardóttir stendur ekki undir hlutverki sínu hvorki sem persóna eða forsætisráðherra er kemur fram af einurð og hugrekki. Ein helstu rök stjórnarliða voru, að vísun forsetana eigi ekki við í milliríkjasamningi; þjóðin hlýtur að hafa um málið að segja, þegar setja á hana og komandi kynslóðir í skuldaklafa; enginn veit hvað lengi?

Auk þess hefur samningurinn um Icesavelögin ekki verið kynntur nema sem pólitískur hræðsluáróður um að allt hrynji hérlendis og erlendis ef ekki verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga. Ef braskarar vilja stofna banka í áðurnefndum löndum þá verða þau sjálf að bera ábyrgðina af þeim gjörningi enda er áðurnefnd krafa ólögvarin.

Ríkistjórninni hefur ekki tekist að ná trausti þjóðarinnar enda má telja pólitíska lausn rannsóknar á falli bankanna óframkvæmanlega. Það vantar utanþingsstjórn til lausnar á vandanum; ekki verður annað séð  en þessi ríkisstjórn hafa stungið Rannsóknarskýrslu Alþingis undir stól? Hvers vegna gengur rannsókn í bankabraskinu svo hægt að ekki er hægt að upplýsa nokkurn skapaðan hlut á tæpum þremur árum?

Hvers vegna sátu tveir þingmenn, fyrrverandi ráðherrar hrunstjórnarinnarí fjárlaganefnd,  þegar Icesavefrumvarpið var afgreitt, þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og Björgvins G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra? Bæði hafa legið undir ámæli, Þorgerður Katrín fyrir kúlulán ásamt eiginmanni sínum og Björgvin sem viðskiptaráðherra í hruninu? 

Að framansögðu má ætla að ef Samfylkingin nær fram samningi um inngöngu í ESB með undirlægjuhætti Steingríms J. Sigfússonar; þá verði væntanlega reynt að forðast þjóðaratkvæðagreiðslu um hann á þeim forsendum að milliríkjasamningur eigi ekki heima í þjóðaratkvæðagreiðslu?

Vonandi verður núverandi forseti þá í embætti enda gæti orðið almenn uppreisn í samfélaginu ef slíkt gerræði SAMFYLKINGAR kæmist upp á borðið á stjórnarheimilinu?FrownHalo

 


mbl.is Steingrímur íhugaði afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkalýðshreyfingin vanmáttug

Verkalýðshreyfingunni hefur aldrei tekist að hækka lægstu laun nema með í prósentum yfir alla línuna, þar fá þeir mest sem hæstu launin hafa. Löngu tímabært að ákveða lægstu laun með lögum. Hjón með 2-3 börn á lálaunataxta eiga í miklum erfiðleikum að ná endum saman í nauðþurftum; hvað þá að greiða af húsnæðisláni að auki.

Hjón með fjögurhundurð til fjögurhundruð og fimmtíu þúsund kr. pr. mánuði  samanlagt  eru lálauna fólk. Þeim dugar ekki einhver hækkun í prósentum sem yrði í mesta lagi  fimm þúsund kr. hækkun á mánuði. Verkalýðshreyfingin er ekki fær um að semja fyrir framangreint fólk vegna þess að  þeir  hærri launuðu  ráða ferðinni.

 


mbl.is ASÍ: Nær allir vilja sameiginlega launastefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húrra! húrra! húrra! húrra!, fyrir forsetanum

Stórtíðindi hafa gerst forsetinn hefur tekið forystu í vestrænum heimi að lýðræði skuli verða raunveruleiki framtíðarinnar; í stórum málum þar sem ætlunin er  að setja skuldaklafa  á almenning vegna skulda óreiðumanna í spilltu fjármálumhverfi.

Forsetinn sýndi mikið hugrekki  hann stendur á sannfæringu sinni er hann rökstuddi mjög vel. Þjóðin hafnaði fyrri samningnum; þessi samningur er loðinn og enginn veit hver upphæð skuldarinnar  verður.

Sátt verður meðal þjóðarinnar eftir að kosið hefur verið á hvorn veginn sem það fer. HappyHalo


mbl.is Vonsvikinn og undrandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mbl.is: Hlutdræg frétt

Þessi frétt er ekki mbl.is til sóma hún eru verulega hlutdræg álit Björns Vals var aðeins eitt hin fjögur  höfðu gagnstæða skoðun á málinu. Hvað sem forsetinn gerir er þingið veikt vegna þess að það nýtur ekki trausts þjóðarinnar; stjórnarmeirihlutinn hefur ekki komið því fram að þeir sem  ábyrgð báru á hruninu séu sóttir til saka. Það bendir til að margir stórmálamenn séu innvinklaðir og vilji ekki leiða sannleikann í ljós. Enda verður að telja núverandi ríkisstjórn hrunstjórn þar sem forsætisráðherr og utanríkisráðherra sitja eftir sem áður þótt þeir hafi verið í ábyrgir að hruninu með Sjálfstæðismönnum.

 


mbl.is Björn Valur: Icesave mál þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konudagur: - Merk kona kristninnnar

María Magdalena eða María frá Magdölum var  ein af þeim konum sem fylgdu Jesú og lærisveinum hans. Samkvæmt guðspjöllunum var hún sú fyrsta sem sá Jesú upprisinn og sagði lærisveinunum frá því. Þar segir jafnframt að Jesú hafi hreinsað hana af illum öndum og að hún hafi verið ein þeirra sem krupu við krossinn þegar hann dó.

Miklar umræður og vangaveltur hafa verið um Maríu Magdalenu. Sumar trúardeildir kristninnar vilja meina að einnig sé átt við Maríu Magdalenu á fleiri stöðum þar sem talað er um Maríu í guðspjöllunum, svo sem að María systir Lazarusar, María frá Betaníu og María sem smurði höfuð Jesú með olíu (Lúkasarguðspjall 7: 37-48) séu í raun allar María Magdalena. Aðrir hafna þó þessum hugmyndum.

Margir hafa einnig viljað meina að María Magdalena hafi verið gleðikona áður en hún gekk til fylgis við Jesú, en það kemur þó hvergi fram í guðsspjöllunum. Miklar vangaveltur hafa einnig verið uppi um eðli sambands Jesú og Maríu Magdalenu. Á seinustu árum hafa hugmyndir um að þau hefðu í raun verið gift og átt barn saman orðið heimsþekktar með útkomu bókanna Holy blood, holy grail og DaVinci lyklinum.

Halo Góða helgi.

 


Goðafoss: Strand við Noregsstrendur

Umfjöllun af strandi Goðafoss hefur verið mbl.is til sóma greint skilmerkilega  í myndum og máli frá slysinu eftir því sem björgun skips og lífríkis við Noregsstrendur vindur fram. Með sífellt örari tækni má segja að sjóslys verði fjarlægari í undirvitund þeirra er vinna vinna á sjó. Framangreind frétt gegnir miklu hlutverki að segja  skilmerkilega frá atburðum án æsifrétta; gefur innsýn í að sífelld hætta vofir yfir sjófarendum vegna óveðra/ólags er engu eira, hafa alltaf sama ægivaldið;

Við bætast svo mannleg mistök sem eiga sér stað og eru ekki umflúin. Sorglegt ef þessi ágæti skipsstjóri hefur reiknað rangan kúrs; það segir hann sjálfur í Aftenposten og hann hafi verið einn í brúnni.

Stöðugar björgunaræfingar á sjó og í landi eru besta vörnin til að rétt viðbrögð  bjargi því sem bjargað verður ef slys ber að höndum.Halo


mbl.is Olíuflekkur á miðjum firðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn - eltir skott Davíðs Oddsonar?

Guðmundur Ólafsson, lektor í hagfræði var að venju í morgunútvarpi Rásar2 í morgun. Taldi hann undirskiftarlistann gegn Icesave til forseta og þings ekki tækan sökum formgalla. Ein sterkustu rökin að hann hefði ekki verið settur fram af félgagsamtökun því þau væru heiðarlegri en áhugsamt fólk. Fréttamaður spurði hann um fyrstu höfnum forsetans gegn fjölmiðlalögunum en hann taldi það allt annars eðlis auk þess hefði markmið forsetans verið að ná í skott Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra.

Ekki boðlegt af menntuðum manni að koma fram eins og Guðmundur Ólafsson gerði í morgun; að gera forsetanum upp skoðanir er vítaverð framkoma.

Fréttamönnum á Rás2 þótti nauðsynlegt að vekja athygli á viðtalinu í fréttatíma hádegis; tæplega alveg hlutlaus frétt?

Eins og kunnugt er var Guðmundur Ólafsson í föstum viðtalsþáttum hjá Sigurði G. Tómassyni á Útvarp Sögu í fyrra. Þar var oft og iðulega talað meinfýsið um Davíð Oddson undir rós án frambærilegra raka. Þá skilur undirrituð ekki enn hver ''gamla konan í Keflavík'' var, er oft var nefnd undir rós í umræddum þáttum.

Ef til vill útskýrir Guðmundur ''gömlu konuna í Keflavík'' næsta föstudag -  og hvað hann á við með eltingaleik forsetans við skott Davíðs Oddssonar?W00tHalo

 


Icesavelögin - brot á stjórnaskrá - ávísun á næsta efnahagshrun?

Ef Icesavelögin er Alþingi samþykkti ganga þvert á Stjórnarskrá Íslands, er óútfylltur tékki, upphæð óviss; þá er það nægileg ástæða fyrir forsetann að hafna lögunum og vísa þeim til þjóðarinnar. Ef lögin yrðu tekin gild  þarf þjóðin að búa sig undir annað hrun í fyllingu tímans; að almenningur hérlendis - og erlendis  greiði skuldir fjárglæframanna í framtíðinni?Sideways Halo
mbl.is Yfir 40.000 skráð sig á kjósum.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Með lögum skal land byggja - með ólögum eyða''

Lögin frá Alþingi í gær að semja við Breta og Holllendingar um Icesavskuldina eru ólög; þjóðin er látin kyssa á vöndinn, komandi kynslóðir eiga að borga. Engin lagastoð er fyrir þessum fjárskuldbindingum um fjárhæð er enginn veit hvað verður stór. Alþingi nýtur ekki trausts nú um stundir það eru sterk rök fyrir að þjóðin eigi að segja síðasta orðið í atkvæðagreiðslu.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur í eymd sinni og aðgerðarleysi að hreinsa til hjá sér eftir hrunið gengið til lags við svokallaða vinstri ríkisstjórn. Er það ekki að fara úr öskunni í eldinn? Jóhanna og Össur ættu ekki að sitja í ráðherrastól voru samábyrg í hrunstjórn Geirs H.Haarde. Heldur ekki  hægt að treysta Steingrími J. Sigfússyni; er situr þægur og góður við fótskör Jóhönnu, forsætisráðherra til að halda völdum.

 

Aldrei of oft skrifað: Þjóðin þarf utanþingsstjórn; en hún gæti litið dagsins ljós ef forsetinn vísar Icesavelögunum í þjóðaratkvæði.FrownHalo


mbl.is Undirskriftir afhentar á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þagað þunnu hljóði?

Hvar er Harpa Njáls, fræðikona og Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði, talsmenn fátæks fólks frá Háskóla Íslands; hvers vegna koma þau ekki fram með álit sitt? Er það bara gert þegar ríkisstjórnin er ekki að þeirra skapi, mikið bar á umfjöllun þeirra í síðustu kosningum fyrir hrun (ekki vinstri stjórn) en núna er þagað þunnu hljóði. ErrmHalo


mbl.is Lýstu sárri fátækt í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband