Gunnar Birgisson áfram bæjarstjóri í Kópavogi

Hver leiðir lista Sjálfstæðismanna í vor hlýtur að verða til lykta leitt í prófkjöri þar sem málefni frambjóðenda verða sett á oddinn. Undirrituð hefur ávallt stutt Gunnar Birgisson í bæjarstjórnarkosningum, óumdeilanlegt að hann hefur staðið fyrir stórstígum framförum Kópavogsbæjar síðan hann varð bæjarfulltrúi og bæjarstjóri. (er ekki í Sjálfstæðisflokknum)

Eftirfarandi er af bloggsíðu minni 6. janúar:

Gunnar Birgisson skrifar athyglisverða grein í Mbl. í dag þar sem hann greinir frá, að nú skuli eldri borgarar greiða fyrir sund samkvæmt fjárhagsáætlun ,2010. Hefur ekki nóg verið gengið að lífskjörum eldri borgara með skerðingu lífeyris með þegjandi samkomulagi ''velferðarstjórnar'' Steingríms og Jóhönnu?

 Auðvelt að ganga að eldri borgurum þar sem þeir hafa ekki bein hagsmunasamtök geta illa borið hönd fyrir höfuð sér.

Eldri borgarar þurfa að hugsa ráð sitt ef þeir verja ekki rétt sinn  mun það leiða til smánarkjara  ; þá er barátta fyrir núverandi hagsmunum einnig barátta fyrir kynslóðir sem á eftir koma. Engin lausn á rekstri bæjarsjóðs að ráðast að kjörum eldri borgara auk þess siðferðilega rangt og gefur vond skilaboð út i samfélagið.

Samkvæmt grein Gunnars mun hann ekki samþykkur framgreindri aðför að eldri borgurum; undirrituð skorað á eldri borgara að standa með Gunnari Birgissyni ef hann býður sig fram í komandi bæjarstjórnarkosningum í vor.

 


mbl.is Bæjarstjóri ekki í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband