9.1.2010 | 11:15
Kjósum ekki Samfylkinguna í Kópavogi!
Samfylking og Vinstri grænir settu á oddinn velferðarkerfið í síðustu kosningum en eftir valdatöku í stjórn landsins hefur slíkt smámál vikið til hliðar og gengið á kjör eldri borgar sem aldrei fyrr. Guðfríður Arnardóttir oddviti Samfylkingar í bæjarstjórn Kópavogs fylgir ´´nýju vinstri stefnunni´´ trúverðuglega; stærir sig af samstöðu bæjarstjórnar í málefnum bæjarins; þar sem eldri borgarar voru sviptir þeim rétti að geta sótt sund án þess að greiða fyrir eftir 67ára aldur.(Mbl 8. Jan.)
Sómasamleg kjör eldri borgara eru einn af hornsteinum velferðarkerfisins hvort sem er hjá bæjarfélögum eða ríkinu.
Nú hefur hægri maðurinn Gunnar Birgisson líklegur oddviti Sjálfstæðismanna í komandi bæjarstjórnarkosningum tekið upp hanskann fyrir eldri borgara og er það vel. Fjármál bæjarins verða ekki leyst með því að svipta eldri borgar þeim kjörum er hafa til komið vegna skefjalausrar skerðingar ríkisins á lífskjörum eldri borgara er nú duga vart lengur til hnífs og skeiðar.
Oddviti Samfylkingar í Kópavogi er ekki vænlegur leiðtogi í málefnum bæjarbúa samkvæmt ofangreindu. Undirrituð skorar á bæjarbúa að veita Samfylkingunni verðuga ráðningu og kjósa Gunnar Birgissona í komandi kosningum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:18 | Facebook