20.1.2010 | 21:31
Obama - ótrauður áfram
Ekki öll nótt úti fyrir Obama forseta USA, ætlar að halda sínu striki í heilbrigðisumbótum, sem líklega verður eitt erfiðast mál í forsetatíð hans. Sótt verður að honum frá óheftri græðgi einkavæðingar er hefur vaðíð allt of lengi upp í Bandaríkjunum; meira segja eru bankarnir farnir að greiða aftur háa bónusa til þeirra er geta platað sem mest hlutabréfaeigendur/sparifjáreigendur og rakað saman fé á kostnað þeirra.
Ríkisvæðing er nauðsynleg að einhverju leiti í heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna þó ekki væri nema til að veita einkageiranum aðhald.
Allt er best í hófi vonandi tekst Óbama forseta að finna gullna meðalveginn; en hann verður vandrataður þótt hann finnist.
Obama heldur sínu striki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook