Ríksieign/þjóðnýting í sjávarútvegi - ekki þjóðarhagsmunir

Fyrningarleið eða ráðstafa fiskveiðiheimildum utan kvóta eins og nú er áformað með pólitísku valdi er hættuleg þróun fyrir almannahagsmuni. Rekstur og fiskveiðiheimild þarf að líta til í samhengi, veiðar hafa verið takmarkaðar með lögum  fyrir hvert skip/bát; reksturinn byggist á því hvernig tekst að ná úthlutuðum kvóta með sem minnstum tilkostnaði er aftur á móti er háð markaðsverði á fiski bæði erlendis og hérlendis. 

Vegna takmarkaðra veiða kemur inn aukakostnaður ef kaupa þarf leigukvóta á einni fisktegund til að veiða aðra en upphaflega var kvótaframsal ætlað til að flytja fiskveiðiheimildi milli útgerðarfyrirtæka til hagræðingar í veiðunum.

Brask með kvótann  þar fyrir utan  er fyrst og fremst vandinn er þarf að sníða af kerfinu; þar þurfa að koma að hagsmunaaðilar og fagaðila er þekkja vel til  í veiðum og rekstri.

Skip/bátur og fiskveiðiheimild hljóta ávallt að vera í samhengi hvaða lög sem sett verða; skip/bátur með veiðiheimild/kvóta er óhjákvæmilega í háu verði vegna verðmætasköpunar en  veiðin takmörkuð.  Samt má telja kvótafyrirkomulag hagkvæmara en meðan veiðar voru frjálsar  þá var  stjórnlaust tap á rekstri í sjávarútvegi þó vel veiddist. 

Að ráðast á sjávarútvegsfyrirtækjum vítt og breitt um landið  ætla að hirða þau til ríkisins með pólitísku valdi gengur ekki upp; ríkisstjórnin verður að semja það er þjóðarhagur, að öðrum kosti  verður ríkisstjórnin að  að fara frá.

Frjálsar veiðar eru ekki vænlegar aftur heldur bæta núverandi fiskveiðikerfi; þar sem rekstur í sjávarútvegi verði ekki með  þeim hætti að betra sé að leigja kvótann en veiða hann.


mbl.is Þess krafist að stjórnvöld falli frá fyrningarleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband