11.2.2010 | 00:37
Moldvörpustarfsemi - eða ábyrg ríkisstjórn?
Núverandi staða er óþolandi, embættismenn með sérálit undir borðinu, stjórnin á kafi að grafa eftir fortíðarsamningum er aldrei komust á yfirborðið, sjónarandstaðan vill reyna sættir. Þá kemur Steingrímsstjórnin með gamlar "ógildar syndaregistur" auðsjáanlega að gera stjórnarandstöðuna tortryggilega; fegra sjálfan sig, slá ryki yfir eigið úrræðaleysi.
Steingrímur virðist vera í endalausri "stjórnarandstöðu við eigin stjórn" ekki hafa náð áttum sem ábyrgur forystumaður á erfiðum tíma; enda erfitt um vik þar sem Samfylkingin situr í skjóli við hann, hvítþvegin búin að steingleyma að hún var í ríkisstjórn í hruninu haustið 2008.
Vel má taka undir með formanni Sjálfsæðisflokksins (í seinni fréttum RUV í kvöld) þar sem hann vill horfa fram á veginn til að ná pólitískri samstöðu er virðis borin von nema: "grafa stríðsaxirnar" og hefja ábyrga samstöðu. Þjóðin er áreiðanlega dauðþreytt á stefnulausri ríkisstjórn er reynir í vandræðum sínum "moldvörpustarfsemi" með ógilda fortíðarpappíra upp á borðinu; er gerir samninga við Breta/Hollendinga enn erfiðari vegna innbyrðis deilna. Hver græðir á framangreindu ástandi aðrir en Bretar og Hollendingar auk þess verðum við að athlægi á erlendum vettvangi er getur gert út um málstaða þjóðarinnar; er þó hefur verið þjóðinni í hag síðan forsetinn tók af skarið með höfnun Icesavelaganna.Stendur fyrir sínum skrifum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook