5.4.2010 | 06:42
Kirkjan/uppeldistofnanir - barnaníðingar samfélagsglæpir
Fréttir um barnaníðinga innan kaþólsku kirkjunnar er heitasta umfjöllun heimspressunnar nú um stundir. Páfinn hefur harmað atburðina; það er sterkasta vopn kaþólsku kirkjunnar (allra trúfélaga) gegn barnaníðingum; að taka á málum presta innan hennar er hafa verið barnaníðingar.
Nú er vitað að barnaníðingar sækja í störf meðal barna og unglinga þar sem þeir geta stundað iðju sína; en allra síðustu ár verið viðurkennd opinber staðreynd er áður ekki mátt upplýsa.
Þau mál er komið hafa upp á yfirborðið má telja toppinn á ísjakanum. Má nefna föður í Belgíu er lokaði dóttur sína inni í fjölda ára; nauðgaði henni og átti með henni börn, svipuð mál komu upp í Bretlandi og einnig í Frakklandi.
Hér á landi hefur komið ljós að stofnanir er áttu að gæta velferðar munaðarlausra barna voru beitt kynferðisofbeldi, barsmíðum og vinnuþrælkun. Má nefna Breiðuvíkurdrengina, Heyrnleysingjaskólann, Bjarg og Kumbaravog. Vonandi er virkt eftirlit í dag, að barnaníðingar geti ekki þrifist hvorki í kirkjum, skólum, og leikskólum; ef svo er ekki halda barnaníðingar áfram iðju sinni.
Barnaníðingar munu halda áfram að þrífast með glæpi sína og mannréttindabrot ef innra og ytra eftirlit er ekki sívirkt innan kirkna, uppeldisstofnana - og heimila; en erfiðara fyrir glæpamennina ef þeir vita að ódæðisverkum þeirra verður ekki haldið leyndum hvorki í kirkjum eða uppeldisstofnunum.
Barnaníðingar og ofbeldismenn viðast vera samfélagslegt vandamál víða um lönd getur átt rætur sína í uppeldi; einelti og ofbeldi er rekja má til uppeldisstofnana/skóla er þarf að rannsaka betur í framtíðinni.
Ábyrgð fjölmiðla er mikil; að fjalla um framangreind mál af þekkingu en ekki í æsifréttastíl.
Fórnarlömb presta mótmæltu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.4.2010 kl. 15:55 | Facebook