Kópavogur: Fjórflokkarnir gráðug valdaklíka

Kópavogspósturinn (20.maí) birtir með áberandi hætti að bæjarráð hafi samþykkt samhljóða að draga til baka styttingu opnunartíma sundlauganna vegna mikillar óánægju bæjarbúa; nú eru það atkvæðin er þarf að halda utan um fram yfir kosningar.

Framsóknarmaðurinn Ómar Stefánsson, jafnframt formaður bæjarráðs boðar lækkun á launum bæjarfulltrúa eftir kosningar en hvers vegna voru þau ekki lækkuð um leið og sundskatturinn var dreginn upp úr vösum eldri borgara!?

Er það ekki óeðlilegt að formaður bæjarráðs sé jafnframt íþróttarvallarstjóri, sitji báðu megin við borðið. Greinilega hafa fjórflokkarnir tekið í sínar hendur  ákvörðunarvald og framkvæmda vald, sauðsvartur almúginn skal kyngja því sem að honum er rétt.

Önnur frétt í sama blaði greinir frá boði Blika þar sem fjórflokkarnir þreyttu íþróttakeppni , „allir unnu jafnmikið“. Hvers vegna var nýju framboðunum ekki boðið að vera með? Ekki  vænlegt að þeir fái áberandi auglýsingu; betra að þegja þá í hel.

Yfirgangur fjórflokksins lofar ekki góðu  næsta kjörtímabil þar sem ákvarðanir  munu verða teknar á Exelskjölum  án tillits til vilja bæjarbúa ; -  samfélagsleg gildi og siðgæði  fjarlægur draumur.

 Gleðilegt að ný framboð hafa  komið fram, ljós í myrkrinu, um  gagnrýna og málefnalega umræðu.; vonandi tekst þeim að setja mark sitt á komandi kosningar þótt tíminn sé naumur.

Pólitísk völd í bæjarstjórn Kópavogs eru  samansúrruð valdaklíka  minni og meirihluta þar sem hagsmunir bæjarbúa skipta litlu máli heldur klíkustarfsemi og eiginhagsmunapot.

Mikil eftirsjá í Sigurði heitnum Geirdal sem bæjarstjóra og samstarfi þeirra Gunnars Birgissonar er var farsælt og mannvænt.  Nú sitja við völd gráðugir  valdhafar ; lítið reynt að skilgreina þarfir hagsmuna alls almennings. SidewaysHalo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband