7.6.2010 | 08:44
Vont er þeirra ranglæti - verra þeirra réttlæti
Laun seðlabankastjóra er orðið "risasmjörklípna" sem engin veit hvar endar. Ef marka má fréttir er alvarlegast ef ráðuneytisstjóri og lögfræðingar hans leituðu allra leiða til að komast framhjá settum lögum um að engin hafi hærri laun er forsætisráðherra? Hvernig er öðrum málum háttað í ráðuneytum landsins; ef lög ganga á skjön við persónulega hagsmuni embættismanna þá er finna lagakróka að gera þau marklaus.
Gengið hefur verið miskunnarlaust að öryrkjum eldri borgurum og sjúklingum ef til vill með lagakrókum? Auðvelt, þeir er minna mega sín hafa veika réttarstöðu í kerfinu; og lítil sem engin peningaráð að verja sig fyrir "löglega óréttlætinu"?
Ekki vanþörf að skera upp vinnubrögð ráðuneyta og stjórnkerfisins í heild; vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti.
Breytt að ósk ráðuneytis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:00 | Facebook