Stórþjóð hindrar afhendingu Nóbelsverðlauna.

Sorglegt þegar milljarða þjóð býr við svo mikla harðstjórn, ekkert tjáningarfrelsi einstaklinga, þá verður stjórnkerfi og menning lituð af kúgun; mannleg samskipti ómanneskjuleg; rétturinn til að gagnrýni er fjarri veruleikanum.

 Ef til vill er algjört tjáningarfrelsi í raun tæplega til; margir þurfa að gjalda þess með lífi sínu og setja framtíð sína og  fjölskyldna í hættu; einræðisríkin eru verri þar sem þau innbyggja í stjórnkerfi sitt að tjáningarfrelsi sé ekki til staðar.

Við getum velt fyrir okkur hér á litla Íslandi hvort tjáningarfrelsi njóti sín fullkomlega; hvað skyldu margir vera reknir úr vinnu eða verið hótað fyrir að standa á skoðunum sínum; um það sem betur mætti fara?SidewaysHalo

 


mbl.is Friðarverðlaun ekki afhent?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband