29.1.2011 | 10:57
Virðingarverð afstaða Landskjörstjórnar - dómsmálaráðherra segi af sér!
Virðingarverð afstaða Landskjörstjórnar að segja af sér eftir dóm Hæstaréttar; til eftirbreytni - alvarleg mistök urðu í framkvæmd kosninganna til stjórnlagaþings. Þeir sem sem ofar sitja í kerfinu fara hvergi, dómsmálaráðherra ætlar að sitja sem fastast á ''klúðrinu'', er má telja óvirðingu við lýðræðislega stjórnarhætti - og Hæstarétt.
Hér þarf að kveða á með skýrum hætti í væntanlegri stjórnarskrá um að ef alvarleg mistök verða í stjórnsýslustörfum, í þessu tilviki að dómi Hæstaréttar, þá verði viðkomandi ráðherra að víkja úr ráðherrastóli; ámælisverð mistök ef embættismannakerfið/stjórnsýslan fer á svig við lög er fara á eftir í hvívetna; eru siðlaus skilaboð er sýna virðingarleysi gagnvart ábyrgðarmiklu starfi í þágu þjóðarinnar.
Landskjörstjórn sagði af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook