5.2.2011 | 21:31
Alþingi: Réttarfar og siðferði fótum troðið!?
Dómsmálið á hendur Geir H. Haarde hófst með pólitískri kosningu í þinginu þar sem Samfylkingin hvítþvoði aðild sína að efnahagshruninu; engu að síður voru Jóhanna,forsætisráðherrann og Össur, utanríkisráðherra aðilar að stjórnarsamstarfinu þegar ofviðrið skall yfir þjóðina; hneppti hana í ófyrirsjáanlegar skuldir og verri lífskjör til framtíðar.
Þegar Landsdómur kallar Geir fyrrverandi forsætisráðherra fyrir mun koma í ljós kattarþvottur Samfylkingar í samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn.
Má segja að Vinstri grænir hafi fylgt fast á eftir að sakfella Geir einan aðeins til að geta verið attaníossar Samfylkingarinnar í ríkisstjórn. Má telja að aldrei hafi eins fjandsamleg ríkistjórn setið í landinu gagnvart þjóðinni; skattpíning meiri en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn nokkru sinni krafðist.
Geir Haarde hélt fast um stjórnvölinn; var einn af þungaviktarmönnum þegar bankarnir féllu og óreiðubankarnir skyldir eftir; bjargaði því sem bjargað varð.
Þótt Geir H. Haarde hafi verið verkstjórinn í umræddri ríkisstjórn er það álit undirritaðrar að hann beri ekki sökina einn; ekki gott fordæmisgildi þegar til framtíðar er litið.
Réttarfarslegt hneyksli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.2.2011 kl. 09:41 | Facebook