6.2.2011 | 10:15
Landsfundur ómarktækur?
Þessi ákvörðun formanns Sjáfstæðisflokksins er óðs manns æði, hann ók of hratt lenti utan vegar en telur sig samt hafa ekið í góðum gír; hvers vegna var ekki kallaður saman skyndifundur í flokknum, til þess var nægur tími; ná ótvíræðri samstöðu á breiðum grundvelli.
Engin veit nákvæmlega hver upphæð Icesaveskuldarinnar verður a.m.k. tvöhundruð milljarðar í erlnedum gjaldeyri segir Sigríður Ásthildur Andersen, hérðaðsdómslögmaður í Mbl 4.feb,17. En það er talið vera um 14% af landframleiðslu.
Að ganga gegn landsfundarsamþykkt er alvarlegt mál ekki nægileg rök að nú séu allt aðrar forsendur. Erfitt fyrir formanninn þegar til framtíðar er litið að verja slikan yfirgang; auk þess hefur Ixesaveskuldin ekki lagastoð.
Ekki gegn ályktun landsfundar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:04 | Facebook