19.2.2011 | 10:08
Goðafoss: Strand við Noregsstrendur
Umfjöllun af strandi Goðafoss hefur verið mbl.is til sóma greint skilmerkilega í myndum og máli frá slysinu eftir því sem björgun skips og lífríkis við Noregsstrendur vindur fram. Með sífellt örari tækni má segja að sjóslys verði fjarlægari í undirvitund þeirra er vinna vinna á sjó. Framangreind frétt gegnir miklu hlutverki að segja skilmerkilega frá atburðum án æsifrétta; gefur innsýn í að sífelld hætta vofir yfir sjófarendum vegna óveðra/ólags er engu eira, hafa alltaf sama ægivaldið;
Við bætast svo mannleg mistök sem eiga sér stað og eru ekki umflúin. Sorglegt ef þessi ágæti skipsstjóri hefur reiknað rangan kúrs; það segir hann sjálfur í Aftenposten og hann hafi verið einn í brúnni.
Stöðugar björgunaræfingar á sjó og í landi eru besta vörnin til að rétt viðbrögð bjargi því sem bjargað verður ef slys ber að höndum.
Olíuflekkur á miðjum firðinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:57 | Facebook