3.3.2011 | 14:32
Sannur útrásarvíkingur
Íslensi hundurinn hefur erfitt hlutverk ef honum er ætlað að breyta ímynd orðsins, útrásarvíkingur; en það er útatað af braski fjármála- og bankamanna. Samt er hinn síkáti íslenski hundur vel til þess fallinn að verða vinsæll á erlendri grund. Hann er einlægur, brosmildur og tryggur sínum; þess vegna er hann mörgum kær. Við fjölskyldan áttum einu sinni íslenska tík er hét Snotra , hún var ein af fjölskyldunni en líka ágætis fjárhundur; hún þekkti okkar hesta frá ókunnum hestum er komu í túnið og rak þá heim til sín á næsta bæ.
Eitt sinn daginn fyrir smalamennsku var talað um að nú yrði Snotra að vera heima en hún var hvolpafull. Þennan dag hvarf hún, kom ekki heim um kvöldið; þegar við vorum komin hátt til fjalls daginn eftir kom tíkin flaðrandi og brosandi, ætlaði ekki að missa af hlutverki sínu.
Loðinn og geltandi útrásarvíkingur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook