17.3.2011 | 16:49
Enda Kenny vill bjarga þjóð sinni - en Jóhanna forsætisráðherra?
Ólíkt meiri reisn yfir forsætisráðherra Írlands, Enda Kenny, reynir að verja írska skattborgara fyrir björgun þarlendra banka; en íslenska forsætisráðherranum Jóhönnu Sigurðardóttir. Nú reynir á ESB að sýna reisn sína og jöfnuð að lækka vexti á bankabraskinu; Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ekki gefið sig út fyrir að vera bjargvættur gjaldþrota ríkja hinsvegar hefur ESB boðað jöfnuð og réttlæti hvað sem það merkir í raun.
Athyglisvert fyrir Íslendinga að fylgjast vel með hvernig Enda Kenny, forsætisráðherra Íra tekst í viðureigninni við ''góðgjarna'' ESB-risann.
Lán í óláni fyrir okkur að hafa átt Davíð Oddson sem seðlabankastjóra er þorði og framkvæmdi; - bjargaði þjóðinni frá gjaldþroti með falli bankanna, 2008. Mun reynast þjóðinni farsælla vegarnesti en innganga í ESB.
Nema núverandi forsætisráðherra takist með ofursköttum og greiðslum Icesave, að koma þjóðinni endanlega á vonarvöl;- aðeins eitt takmark Ísland til Brussel.
Ósanngjarnt að skattborgarar greiði allt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook