Lík í lestinni?

  Framtíð Sjálfstæðisflokksins mun ráðast af næsta landsfundi. Þótt skipt hafi verið um formann eftir efnahagshrunið 2008 hefur ekki orðið endurnýjun í forystu- og þingmannaliði flokksins enn sitja þeir sem  eru  tengdir umræddu hruni og óhóflegum kosningastyrkjum með einum eða öðrum hætti. Sumir hverjir mjög áberandi í fjölmiðlum og umræðum sem aldrei fyrr; eins og ekkert hafi gerst.

Umrætt fólk  er vel menntað og hæfileikaríkt, en hefur  lifað sjálft sig í stjórnmálum fyrir Sjálfstæðisflokkinn af umræddum ástæðum; getur átt góða framtíð fyrir land og þjóð á öðrum vettvangi. 

Næsta kosningabarátta verður hörð og óvægin sem aldrei fyrr,  Sjálfstæðisflokkurinn liggur vel við höggi, sat við völd í efnahagshruninu- og hafði setið lengi.Við bætist að ekki hefur farið fram uppgjör innan flokksins og að umrætt fólk dragi sig út úr stjórnmálum.

Forysta flokksins gekk í berhögg við samþykkt síðasta landsfundar, lýsti yfir stuðningi við greiðslu Icesaveskuldarinnar;  en skuldinni  samt sem áður hafnað af miklum meirihluta Sjálfstæðismanna - og þjóðarinnar.

Flokknum er nauðsyn  á að ganga heill til leiks með nýtt fólk og  forystu er getur leitt flokkinn með þeim gildum er hann stendur fyrir;  flokkur allra stétta: Atvinnurekenda, bænda, launamanna, eldra fólksins, yngra fólksins – og velferðarkerfi er þjónar þeim er veikt standa og þurfa hjálp.

Sjálfstæðisflokkurinn, stærsti stjórnmálaflokkur landsins getur ekki í lagt upp í nýja vegferð - með lík lestinni.  Woundering

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband