16.2.2012 | 08:57
Slys gera ekki boð á undan sér -
Slys gera ekki boð á undan sér hætta vofir sífellt yfir sjófarendum vegna óveðra/ólags er engu eira við bætist ófyrirsjáanleg bilun á búnaði/vél skipsins. Með sífellt örari tækni og góðum búnaði skipa verður hættan ef til vill fjarlægari í undirmeðvitund þeirra er vinna á hafi úti. Nauðsynlegt að huga vel bjögunarbúnaði, æfingar séu reglulega um borð, allir viti hvernig bregðast á við fljótt og fumlaust.
Ennþá er mér í fersku minni ferð með Goðafossi í nóvember 2010 í aftaka veðri og stjórasjó milli Íslands og Færeyja, við bættist að eldur kom upp í skipinu. Ekki þurft að spyrja að leikslokum ef skipið hefði orðið vélarvana og rekið stjórnlaust fyrir veðri og vindi.
Áhöfnin sýndi mikið hugrekki og áræði er tókst að forða stórslysi; - en var í mikilli hættu við slökkvistörfin vegna elds og óveðurs. Brotsjór reið í sífellu yfir skipið; litlu munaði að þrír færu útbyrðis, einn hékk aðeins á annarri hendi við borðstokkin, kraftaverk að hann komst lífs af.
Engin orð fá lýst þeirri tilfinningu að lenda í umræddum aðstæðum en rétt viðbrögð geta skipt sköpum, þá er alltaf von um björgun, giftusamlega.
Brúarfoss rak stjórnlaust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:00 | Facebook