Jóhanna og Össur fyrir Landsdóm?

Forsætisráðherra er stórtæk í orðum  og stefnu  yfir helgina, ESB-innganga er fyrst og síðast mál málanna, „Hið nýja Ísland fær einfaldlega nýjan stjórnskipulegan grunn mótaðan af þjóðinni fyrir þjóðina,“ ; bæta lífskilyrði unga fólksins; síðast en ekki síst að koma núverandi forseta frá völdum og koma pólitískri ábyrgð á Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi?

Tæplega nokkrum þjóðarleiðtoga dytti til hugar að henda þjóð sinni fyrir björg í upplausn og bankabraski í löndum ESB. Hvernig ætlar forsætisráðherra að bæta kjör unga fólksins með atvinnustefnu sem engu skilar; stendur í illdeilum við mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar, sjávarútveginn; - stendur í vegi fyrir virkjunum sem er undirstaða framþróunar í atvinnusköpum í nánustu framtíð?

Forsætisráðherra ætti fremur að vera þakklát forsetanum fyrir að framkvæma sem henni  bar að framkvæma sem þjóðarleiðtoga. Ólafur Ragnar gekk fram fyrir skjöldu í Icesaveskuldinn  sem þjóðin átti að greiða, skuldir einkabanka og óreiðumanna; forsetinn gerði gott betur, varði þjóð sína á erlendum vettvangi með glæsibrag svo eftir var tekið í alþjóðasamfélaginu.

 Hvar voru forsætisráðherra og utanríkisráðherra þá?Errm

Forsendur fyrir nýjum landsdómi kunna að vera til staðar; Jóhanna, forsætisráðherra og Össur, utanríkisráðherra brugðust þjóðinni á úrslitastundu í framtíð þjóðarinnar í umræddum málum; ættu að svara til saka  -ekki síður en Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra?

 

Góða helgi.JoyfulHalo


mbl.is Samfylkingin ein með skýra ESB-stefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband