13.3.2012 | 08:21
Pólitískt hatur á Davíð Oddssyni - RÚV kóaði með?
Ekki boðlegt af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra að bera á borð fyrir þjóðina, að Davíð Oddson fyrrverandi seðlabankastjóra hafi ekki verið marktækur í umsögn sinni um óviðunandi stöðu bankanna þegar hann kom frá Englandi; auk þess hafi hann verið einn til frásagnar.
Lágkúrulegur framburður Ingibjargar Sólrúnar til bjargar eigin pólitíska skinni.
Kastljós RÚV í gær tók undir umrætt hatur Ingibjargar Sólrúnar; Sigmar lét út úr sér að ekki ætti að ráða umdeilda pólitíkusa sem seðlabankastjóra, veit Sigmar ekki að seðlabankastjóri er alltaf umdeildur; hver sem hann er?
Óviðunandi pólitísk afstaða í Kastljósi RÚV með Samfylkingunni er Sigmar mætti skammast sín fyrir?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:51 | Facebook