Tollalækkun orkar tvímælis-

Tollalækkanir á landbúnaðarafurðum  hér á landi gætu verið  vafasamar ef litið er til framtíðar – viðvarandi matarskortur er í heiminum- flest vestræn ríki vernda sinn landbúnað. Stórþjóðir með fjármagn  kaupa upp stór landflæmi af fátækum ríkjum í Asíu og Afríku – það eykur  fátækt og vannæringu - skapar  ófrið milli þjóða. S-kóreska fyrirtækið Daewoo Logistics semur um landkaup á Madagascar 1.3 millj/ha. fyrir milljarða dollara. Kína, Suður-Kórea, Kúveit, Katar og fleiri ríki hafa keypt  landi af  fátækum Afríkuríkjum og Asíu, Indónesíu, Kambódíu, Laos og á Filippseyjum;  olíuverð og  framleiðsla lífræns eldneytis hefur aukið þróunina með Kína og S-Kóreu í fararbroddi.

Einkennandi fyrir framagreind uppkaup –    er veik stjórnsýsla og spillt ríki ; sem leiðir til landleysis bænda enn meiri fátæktar  og ófriðar.

FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna heldur því fram að með einhæfri ræktun á stórum svæðum sé umhverfinu breytt með alvarlegum afleiðingum.

Mikilvægt fyrir okkur, að halda fast á málum og kvika ekki frá verndun ræktarlands og framleiðslu landbúnaðar.

 Með tölvutækninni hefur heimurinn smækkað – við getum ekki litið framhjá framgreindri þróun; atvikurekendur hér eru ekki ólíkir öðrum í heiminum – hugsa fyrst og fremst um eigin gróða – hagur almennings eru innatóm orð.innocent

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband