23.9.2015 | 20:22
Birgitta fer með fleipur?
Í upphafi skyldi endirinn skoða hvaða afleiðingar hefur það ef ríkisstofnanir og fyrirtæki ákveða að hætta viðskiptum við annað ríki.
Ríkistofnanir og einkafyrirtæki leita markaða í hagnaðarskyni en ekki eftir pólitískum leiðum. Ef ríki ógnar sjálfstæði annars ríkis þá eru stundum teknar ákvarðanir um viðskiptabann af stjórnvöldum. Skilur Birgitta ekki alvarleika viðskiptabanns, viðskiptasamningar eru í upplausn. Skemmst að minnast banns borgarstjórnar Reykjavíkur; flug-og ferðamannaiðnaði er ógnað og stórri hótelbyggingu við Hörpu.
Viðskiptabönn valda ómældum hörmungum almenningur fer verst úti, býr við fátækt og skort; samfélagið ekki fært um að veita samfélagslega þjónustu: Menntun og læknisþjónusta verða af skornum skammti ef nokkur?
Birgitta virðist fara með ábyrgðarlaust hjal sem RÚV flytur fúsleg án nokkurrar gagnrýni?
Vill sniðganga vörur frá Kína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook