6.10.2015 | 06:57
Vítahringur - svikinna loforða
Vítahring stjórnmálamanna sífellt svikinna loforða til eldri borgara um betri lífskjör verður að linna.
Ef litið er til baka ársins 2009 er vinstri flokkarnir fengu völdin hófst eindæma árás á kjör eldri borgara þrátt fyrir skjaldborgina frægu: Lækkun lífeyris, upptaka eigna, og afnám grunnlífeyris; skerðing eldri borgara varð langt umfram aðra samfélagsþegna.
Launaskrið varð verulegt meðal launafólks; en eldri borgarar sátu eftir.
Nú afsaka þessir sömu vinstri flokkar Samfylking og Vinstri grænir framangreindar árásir flytja frumvarp á alþingi um bætt kjör eldri borgar; sami vítahringurinn að venju.
Fyrir síðustu kosningar reit Bjarni Benediktsson, núverandi fjármálaráðherra í Mbl. 9.04-13: Það er réttlætismál að veita öldruðum raunverulegt frelsi til að njóta ávaxta ævistarfs síns. Í þágu þess réttlætismáls ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að vinna".
Nú hafa lögin um afnám grunnlífeyris verið numin úr gildi og 9% hækkun launa lofað um næstu áramót - en getur ekki verið ásættanlegt ef reiknað er með 300þús.lágmarkslaunum í mánaðarlaun.
Vonandi tekst formanni sjálfstæðisflokksins að sjá til þess að núverandi stjórnarflokkar standi við stóru loforðin til eldri borgara vítahringurinn verði rofinn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:38 | Facebook