Sálmur eftir konu -nr. 375

Sálmurinn „Hærra minn Guð til þín,“ vinsæll sálmur, oft fluttur við útfarir er fallegur trúarsálmur sungin víða í hinum kristna heimi.

Sálmurinn er eftir enska kven- ljóðskáldið Söru Adams (1805-1848) er  lést í blóma lífsins.

Sara var Unitarian þ.e að Guð sé einn aðili andstætt  við faðir, son og heilagan anda, heilaga þrenningu  í okkar kristni.

 Sr. Mattías Jochumson þýddi sálminn - var hallur undir unitarisma, kirkjunni til mikils ama; hélt þó stöðu sinni sem prestur vegna mikillar alþýðuhylli sem sálmaskáld:

 

Hærra, minn Guð, til þín,

hærra til þín,
enda þótt öll sé kross
upphefðin mín.
Hljóma skal harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

Villist ég vinum frá
vegmóður einn,
köld nóttin kringum mig,
koddi minn steinn,
heilög skal heimvon mín.
:,:Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

Sofanda sýndu þá
sólstigans braut
upp í þitt eilífa
alföðurskaut.
Hljómi svo harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

 

Eigið góðan sunnudag innocent


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband