23.11.2019 | 01:55
Verndun náttúrunnar á kristnum forsendum-
Góða helgi
Miðaldaboðskapur Heilags Francis, munks frá 13. öld á fullt erindi til allra manna óháð trúfélagi
Heilagur Francis frá Assisi á Ítalíu fjallaði oft um vistfræðilega ábyrgð kristinna manna fyrir arðráni er átti sér stað í náttúrunni.
Má líta á umhyggju hans sem dæmi um kristilegan kærleika í vistfræðilegu samhengi. Líf hans snerist um róttæk mótmæli; að sýna eigi allri sköpun Guðs umhyggju, bera velferð hennar fyrir brjósti hvort sem er um haf, jörð,dýr eða plöntur að ræða.
Boðskapur Heilags Francis var göfugur og skýr boðskapur í vistfræði á kristnum forsendum.
Kristnar kirkjur ættu að halda boðskap hans meira á lofti í safnaðarstarfi sínu. Gott að kenna börnum mikilvægi náttúrunnar; að við þurfum að vernda hana.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook