24.11.2019 | 22:16
"Lög eftirlitstofnana martröð fyrir minni fyrirtæki?"
Nú geta eftirlitsstofnanir skrifað sig inn í krafti stöðu sinna og nábýlis við ráðuneytin, inn í lög og reglugerðir; sótt sér þannig ný verkefni.
Dæmi:Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu yfirtók alla leyfisveitingar og eftirlit með heimagistingu í landinu. m.a heimagistingu á Vestfjörðum.
Annað dæmi: eftirlitsgjald á sveitabæ í Skagafirði hækkaði úr 22.400 kr. í 187.000 kr. Þessi mikla " hagræðingaraðgerð í þágu atvinnulífsins", varð til þess að bændur hættu tilraunaeldi á nokkur hundruð bleikjum, "dýrt er Drottins orðið"
Þessi nýja stjórnsýsluslaufa færir Umhverfisstofnun aukin verkefni og fjármuni án þess að ljóst sé hvaða vandamál er verið að leysa á Hofsósi, Egilsstöðum eða Hafnarfirði. Nauðsynlegt að ráð herra endur skoði þessi nýju lög áður en þau fara fyrir Alþingi.
Athyglisverð grein Sigurjóns Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands verstra í Bændablaðinu 21.nóv. s.l.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook