"Æðsta ósk Sjálfstæðisflokksins að skaða RÚV"?

Stefán Ólafsson,prófessor HÍ notar yfirskrift yfir grein sína í DV: Æðsta ósk Sjálfstæðismanna að skaða RÚV".Eftirfarandi blogg er svar mitt við greininni:

RUV var hápunktur alls í afþreyingu þegar ég var barn allir elskaðu útvarpið mikið mál þegar batteríið kláraðist langt að fara í hleðslu en svo eignuðumst við annað batterí; enginn missti af neinu.

Nú er öldin önnur RUV er tröllvaxið fyrirtæki gnæfir yfir alla fjölmiðla í landinu. Útvarpið Rás 1 flytur sömu hundleiðinlegu þættina alla virka daga þrisvar eða fjórum sinnum á sólarhring .

Góðir partar á sunnudagsmorgnum og laugardagsmorgun- útvarpssaga er aldrei lesin nema til að ungir höfundar kynni sig sem er þörf á; en góð bókmenntaverk heyra sögunni til.

Kveikur er hlutdrægur fréttaþáttur. Nú tröllríður Samherjamálið samfélaginu - af hverju má ekki kanna loftslagskvóta braskið með hreint íslenskt loft hjá Landsvirkjun og Orkustofnun til erlendra fyrirtækja.

Þá er nauðsynlegt að kanna Krakkafréttir ; þær eru fluttar án þess að gæta hlutleysis ekki gott fyrir börn sem eru að þroskast. Þá eru fluttar daglega ísmeygilega fréttir af Donald Trump forseta USA; aldrei neitt jákvætt það er "sagt er" eða heyrst "hefur" stíll Gróu frá Leiti.("Efstaleiti")

Nauðsynlegt er að RUV dragi saman og skipuleggi sig upp á nýtt

Nær engir átt að RUV fái fleiri milljarða frá almenningi án aðhalds. Má segja að RUV standi óbeint í vegi fyrir framleiðslu íslensk efnis í máli og myndum vegna þess þeir hafa fjármagnið.

Skiptir miklu máli að ráða góðan útvarpsstjóra á borð við Þórarinn Eldjárn, rithöfund og lista mann sem er samgróinn íslenskri þjóð og menningu.

Út í hött að kenna Sjálfstæðisflokknum um hvernig komið er fyrir RUV er orðið ofurríkisvætt fyrirtæki lítur aðeins  eigin þóknanlegri ákvörðun;  vonandi leggur HÍ þeim gott til.

Rétt að taka fram að uppistaða efnis í sjónvarpinu eru gamlir margendurteknir sjónvarpsþættir; ekki fer fjármagnað til "spillis" hjá RUV ?

Núna þessa stundina er bókmennta þáttur stundum góður með pörtum en en fer að vanta endurnýjun - Gott að Kolbrún og Páll tækju sér "smápásu".

"Í Guðs friði" eins og fyrsti útvarpsstjórinn sagði alltaf eftir lok síns máls.

 

Lil

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband