16.6.2007 | 01:24
Stúlkurnar okkar - áfram stelpur!
Skemmtilegur landsleikur framundan við Frakka. Stúlkurnar okkar munu án efa standa sig með sóma og vonandi vinna þær leikinn. Langt síðan að svona spennandi leikur hefur farið fram ekki síðan karlar unnu Frakka fyrir nokkrum árum hér heima. Nú munu stúlkurnar okkar vekja meiri athygli en ella vegna deyfðar íslenska karlalandsliðsins undanfarið. Karlarnir fá samkeppni í athygli sem er af hinu góða, hefur hvetjandi áhrif í íþróttinni. Undanfarna síðustu landsleiki hefur karlana vantað hinn sanna baráttuanda - eins og þeir séu haldnir leikleiða. Það var ömurlegt að sjá sjálfan "kónginn" Eið Smára sparka boltanum í markið að ástæðulausu í landsleiknum um daginn, hlaut að vita að hann fengi leikbann? Ekki íþróttamannsleg framkoma ef hann hefur gert það til að verða ekki með gegn Svíum?
Áfram stelpur mínar, bjargið nú heiðri okkar og vinnið - eða fallið með sæmd!
Kónginn
Byrjunarlið Íslendinga gegn Frökkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:07 | Facebook