Starfsmenn í uppnámi hjá Íbúarlánasjóði

Lækkunin greinilega farið illa í starfsmenn. Hringdi í sjóðinn í morgun til að fá upplýsingar um uppgreiðslu lána,  geðvond símadama svaraði, hafði allt á hornum sér svo ég gafst upp og hringdi í vin minn sem er vel að sér í fjármálum.

 

Já, það eru erfiðir tímar í fjármálum en samt er nú Íbúðarlánasjóður nokkuð öruggur allavega meðan þjóðarskútan siglir ekki í strand. En umrædd símastúlka þarf greinilega sálgæslu ekki síður en starfsmenn bankanna sem hlýtur að líða illa og hræddir um vinnu sína.


mbl.is Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs lækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband