5.10.2008 | 11:54
Stjórn Glitnis biðjist afsökunar
Hagfræðingur ( Jón Daníelsson) í Bretlandi sagði á Bylgjunni í morgun að viðbrögð stjórnar GLITNIS hefði skaðað traust á Íslands samkvæmt breskum fjölmiðlum. Stjórn bankans ætti að biðjast afsökunar að hafa siglt bankanum í strand.
Ennfremur sagði Jón að bankar á Norðurlöndum yrðu ekki ánægðir ef Seðlabankar þeirra lánuð ísl. bönkum sökum þess þeir væru í samkeppni við þá og í svipuðum erfiðleikum. Jón Daníelsson taldi að aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins væri ekki slæmur kostur í þeirri stöðu er nú er uppi. Hann taldi einnig að yfirlýsing með inngöngu í ESB hefði ekki nokkra þýðingu á þessari stundu. Fram kom í umræðunni (Bylgjan) að yfirlýsing um inngöngu í ESB yrði aðeins til að sundra þjóðinni á ögurstundu.að. Tvímælalaust ætti að auka veiðiheimildir þar sem nóg væri að fiski og meira mætti veiða bæði í ýsu og þorski.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook