"Hnattvætt spilavíti"?

Internetnið hefur valdið hröðum samskiptum um allan heim við erum öll nágrannar/glóbal en því fylgja bæði kostir og gallar. Ef til vill eiga þessi hröðu samskipti einhverja sök, að lítil þjóð  vel tölvuvædd, er orðin "skrímslið" í hnattrænum fjármálaheimi; togar með sér banka í fallinu um alla Evrópu og víðar. Umrædd hröð tækniþróun líklega  valdið stærstu bankagjaldþrotum allra tíma er líkja má við eitt allsherjar  hnattvætt "spilavíti" þar sem reglumeistarar fást við að finna leiðir til að sniðganga lög og reglur?

 

Breskur blaðamaðurinn  sagði um helgina, "Veislan er búin á Íslandi, eyjunni sem reyndi að kaupa heiminn." Stærstu fjölmiðlar Bretlands stóðu á öndinni en hefðu getað litið sér nær í eigin ranni - og víðar í heiminum. Nú getur blaðamaðurinn beint sjónum sínum að vanræðum breskra banka er ekki eru minni en þeirra íslensku.

 

Lán í óláni,  að auðveldara virðist vera  fyrir stjórnvöld hér að ná utan um fjármálavandann sökum smæðar  þjóðarinnar. W00t

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband