9.10.2008 | 21:17
Ábyrgðarlaus afsögn stjórnarmanns seðlabankans - verða stjórnarslit?
Afsögn fulltrúa Samfylkingar, Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur úr stjórn seðlabankans virðast vera misráðin aðgerð til þess eins að valda jafnvel stjórnarslitum. Tilgangurinn ekki augljós á örlagastundu eins og nú. Umræddur fulltrúi veltir sér upp úr fortíðinni sem hún segir mistök í stjórn seðlabankans en horfist ekki í augu við vandann sem blasir við; öllu heldur er hún frekar að skjóta sér undan merkjum sem ekki er trúverðug staða fyrir Samfylkinguna.
Hvað verður næst kemur nýr fulltrúi frá Samfylkingunni ef ekki þá er stjórnarsamstarfið í hættu? Samfylkingin getur ekki dansað frítt spil í alvarlegum aðstæðum í ákvarðanatöku stjórnar Seðlabankans. Hvaða fiskur liggur undir steini eru sterkir hagmunaðilar innan Samfylkingarinnar í spilinu- til hvers? Hvað með hagsmuni almennings í landinu?
Ekki verður vandamál fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hefja samstarf við Vinstri græna miðað við þá ábyrgu afstöðu sem Steingrímur Sigfússon tók í viðtali Kastljóss í kvöld. Vonandi verður ekki stjórnarkreppa aðeins til að auka vandann.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.10.2008 kl. 07:09 | Facebook