"Baugsleiksviðið - gamblað með ævisparnað fólks"?

Yfirtaka GLITNIS kom öllu “þessu” af stað síðan er alheimskreppa við vorum ekki gjaldþrota sagði Jón Ásgeir Jóhannesson eigandi Baugs í Silfri Egils í dag; en hvað með veðin sem Baugur kom með til að fá lán hjá ríkinu þegar ekki var hægt að standa í skilum?: Bílalán, viðskiptavild (óefnisleg verðmæti)  eignir sem ekki var hægt að veðsetja o.fl. Hvers vegna má almenningur ekki vita hvað var í “veðpokanum” sem seðlabankanum var boðið

Hver trúir því að Jón Ásgeir sé kominn hingað til að bjarga atvinnu fólks? Einhver Green miljónamæringur kominn í spilið enn ein "svikamillan"  á leiksviði Baugs Groub. Tek undir með Agli í Silfrinu að betra væri að láta Breta hafa GLITNI og  eignir Baugs upp í skuldir handa sparifjáreigendum í Bretlandi.

 

.Allt fjármagn úr bankanum sogað til að kaupa og “gambla” með fyrirtæki. Hvað með peningasjóð Glitnis?, fólki talið trú um að þar væri best að “ávaxta” sparnaðinn þar. Fólk tók út peningana sína af öruggum innlánsreikningum. Síðan "keypti" Baugur hlutbréf í peningasjóðnum með “pappírspeningum” til að fjármagna útrásina. Dæmi: Jón Jónsson og frú eiga  fimm milljónir á innlánsreikningi (ævisparnað) Glitnis, leggja þær inn í peningasjóðinn. Á móti eru  sett “pappírshlutabréf” og flutt út í  “útrásina miklu” Baugsfyrirtækin geta  ekki staðið í skilum missa bankann sinn,  það sem verra er að   Jón Jónsson og frú misst ævisparnaðinn sinn.

 

Framangreind hugleiðing er upplifun mín úr fréttum af fjárhagserfiðleikum og  gjaldþroti á “Litla leiksviði Baugs” og "stóra leiksviði heimsins".Frown


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband