Kvöldbæn á sunnudegi

BænHalo Drottinn, vér þökkum þér fyrir dag þinn og fyrir gjafir náðar þinnar. Þú hefur á þessum degi nært oss og gjörvalla kirkju þína með heilögu orði þínu og sakramenti. Varðveit oss í samfélagi þíns heilaga Anda, svo að vér, styrkt og upplýst, sigrumst á freistaranum og eignumst þolinmæði til þjónustu kærleikans. Gef oss þann frið sem heimurinn kann ekki að veita. Lát ljóma þessa dags lýsa yfir önn og erfiði vikunnar. Lát senn birta af degi gleðinnar þegar vér lofum þig að eilífu í ríki þínu. Happy

(Þjóðkirkjan)

 

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband