22.1.2009 | 16:02
Þingrof og þjóðstjórn?
Ef heldur áfram sem horfir að Samfylking stökkvi á flótta úr ríkistjórninni þá er illskásti kosturinn fyrir forsætisráðherra að rjúfa þing fyrirvaralaust og boða til kosninga; síðan verði skipuð þjóðstjórn meðan kosningabaráttan stendur yfir.
Vankantarnir á framangreindri skoðun er hvort forsetinn skipi þjóðstjórn með hlutlausum hætti með alvarlegt efnahagsástandi í huga?
Að mati undirritaðrar var ákvörðun forsetans ekki byggð á algjöru hlutleysi þegar hann hafnaði fjölmiðlalögunum. Þá sýndi hann dómgreindarleysi með aðdáun sinni á fjármálagörkunum er tæplega er hægt að horfa framhjá?
Ef framgreind staða kæmi upp þá eru síðustu forvöð fyrir forsetann taka ákvörðun með þjóðarheill í huga?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:23 | Facebook