Bolabrögð - pólitískar hreinsanir?!

Lítt skiljanlegt hvers vegna Jóhanna Sigurðardóttir skrifar seðlabankastjórum "bænabréf" og biður þá um hypja sig; þegar frumvarp um breytingar á bankanum var í smíðum; -Jóhanna talið sig hafa þingmeirihluta fyrir frumvarpinu? Er "bænabréfið" tilraun til  pólitískra hreinsana; ekki bætandi á  fjármálaástand sem fyrir er í landinu?

Samkvæmt frumvarpi um seðlabankann er liggur fyrir Alþingi  á aðeins að vera einn bankastjóri ásamt fimm manna "peningaráði"; ef það verður samþykkt þá víkja starfsmenn bankans væntanlega sjálfkrafa.

Umrætt bréf hlýtur að teljast fumhlaup eða Jóhanna hafi ætlað að fá fjölmiðla í lið með sér um að breytingar á seðlabankanum yrðu leiddar til lykta á opinberum vettvangi án dóms og laga?

Lengi getur vont versnað.Shocking

Undirrituð tekur fram að hún er ekki í Sjálfstæðisflokknum; skrifar á eigin forsendum og skoðunum. Woundering

 


mbl.is Mikil andstaða við innlánasöfnun bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband