11.5.2009 | 11:04
''Styrkir ESB dulbúnar mútur''?
Verður sjálfleiðingarhvöt stefna nýju stjórnarinnar, ekki reyna að endurreysn á eigin forsendum og þeim verðmætum sem þjóðin getur skapað með auðlindum og velmenntuðu fólki? Nei, eyða á tímanum í að skattleggja sjávarútveginn koma honum síðan undir Brusselvaldið; ekki nota orkuna til veðmætasköpunar, eyða íslenskum landbúnaði með inngöngu í ESB. Mæna á styrkjakerfi ESB til styrktar landbúnaði og jafnvel iðngreinum; - eru ekkert annað en ''tímabundnar mútur'' meðan er verið að koma landinu undir erlent vald; þrjú hundruð þúsund manna þjóð er aukaatrið hjá ESB með þrjúhundruð milljón manns, það eru auðlindirnar er skipta þá máli.
Þjóðin hefur allar forsendur að bjarga sér á eigin verðleikum með vel menntað fólk og ríkulegar auðlindir um langa framtíð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:49 | Facebook