Gráðugt skrímsli - eirir engu

Alvarlegur samfélagsvandi þegar siðlausir fjármálabraskarar/fjármálafyrirtæki höfðu svo gott sem lagt undir sig hinn vestræna heim. ESB og EFTA-löndin hafa ekki farið varhluta og það í samfélögum þar sem réttlæti og jöfnuður á að ríkja samkvæmt stefnu ESB. Ekki verður fyrir séð að takist að ráða bót á fjármálaglæpum í nánustu framtíð svo yfirgripsmiklir eru þeir á alþjóðlegum mælikvarða.

Litla Ísland er stórveldi í fjármálasvikunum en  ætti samt að geta lagt grunninn að  heilbrigðara fjármálakerfi og jafnframt geta lagt sitt af mörkum til að greina fjármálavik erlendis svo yfirgripsmikil eru umsvif ''útrásarvíkinganna''; - ef kunningjasamfélagið, spilltir stjórnmálamenn/stjórnkerfi koma ekki í veg fyrir slíkt hér á landi, í krafti fámennis og klíkuskapar .

Stærð bankaranna, tíu sinnum stærri en efnahagskerfið hér á landi, höfðu næstum því gleypt með húð og hári, allt þjóðlíf; menningu, menntun, listir og fjölmiðlafyrirtæki . Gráðugt fjármálakerfi líkast engisprettufaraldri sem engu eirir má aldrei ná að grípa krumlunni um samfélagið aftur. Þá kemur upp einræðissamfélag þar sem samfélagssáttmáli,lög og réttur er aukaatriði.


mbl.is ESA fengið 13 kærur til sín eftir hrun bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband