27.10.2009 | 10:52
Launhálka - akstur á hringtorgum - vantar upplýsingar
Nú þegar vetur er gengin í garð og allra veðra von þarf að huga vel að akstri í umferðinni. Varúð við hálku á heiðum uppi er nauðsynleg og gerð góð skil í fjölmiðlum. En ábótavant hvað litlar upplýsingar eru um hættur við hálku, er oft myndast á auðum rennblautum götum höfuðborgarsvæðisins þegar dimma tekur, þá getur myndast launhálka á skömmum tíma í ljósaskiptum, er daginn styttir óðum. Launhálku þarf að gera betri skil til að bæta umferðarmenninguna , fólk fái almennt tilfinningu fyrir hættunni þó aðstæður séu ekki sjáanlegar.Ekki kemur nógu vel fram að hálfu þeirra er um umferðina fjalla, að greina hættuna, sýna fram á óhöpp er eiga sér stað í launhálku; hvernig staðbundnar aðstæður í veðri geta skapað fljúgandi hálku á skömmum tíma.Þá vantar myndræna umfjöllun fjölmiðla um akstur á hringtorgum þar sem tilkoma þeirra hefur aukist mjög hratt í staðin fyrir götuljós í nýjum íbúðarhverfum.Með markvissri umfjöllun gæti óhöppum og slysum ef til vill fækkað ; ökumenn fái tilfinningu fyrir hættu í launhálku og umferðarreglum við hringtorg.
Hálkublettir eru á Hellisheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:19 | Facebook