3.11.2009 | 02:09
Innköllun fiskveiðiheimilda - gjaldþrot þjóðarbúsins?
Hjá hatursfólki á fyrirkomulagi reksturs einkafyrirtækja í sjávarútvegi er fyrst og síðast alltaf tekið fram, þjóðin á kvótann, yfirgnæfandi þjóðarvilji krefst þess! Umræða með sanngirni og rökum um hvað betur mætti fara í rekstrinum hefur ekki farið fram; heldur síbyljuáróður þeirra er vilja þjóðnýta sjávarútveginn ; en verður arðurinn meiri þegar ríkið og pólitísk áhrif fara að deila og drottna með fjöregg þjóðarinnar? Nei, sá flokkur er gengur lengst í þjóðnýtingarstefnu sjávarútvegs með áróðri er Samfylkingin enda er það stefna þeirra í bráð og lengd, að koma þjóðinni og auðlindinni undir ESB sem allra fyrst; þá er jafnaðarstefnan komin til framkvæmda þegar Ísland hefur ekkert með stjórnun fiskveiða að gera?
Fyrrnefnd gagnrýnin umræða fer ekki farið fram í fjölmiðlum, þeir eru hallir undir áróðurkenninguna, ´´þjóðin á kvótann´´, fremur en að standa fyrir réttlátri gagnrýninni umræðu. Það vekur vonir með núverandi eigendum Morgunblaðsins, að rökleg skoðanaskipti um sjávarútveg fari fram, verði ekki í formi æsingaumræðu til múgsefjunar, .
Umhugsunarverð stefna að vilja setja rekstur sjávarútvegsfyrirtækja í gjaldþrot með innköllun kvótans, eyðileggja rekstrarskilyrðin fyrir arðbærum veiðum; nú um stundir þegar útflutningur fiskafurða er að bjarga þjóðinni frá endanlegu efnahagshruni.
Er raunverulegur vilji þjóðarinnar að innkalla fislveiðiheimildir?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.11.2015 kl. 11:02 | Facebook

Guðrún Magnea Helgadóttir
Magnús Þór Hafsteinsson
Guðsteinn Haukur Barkarson
Sigurlaug B. Gröndal
Bryndís Böðvarsdóttir
Valgerður Sigurðardóttir
Vefritid
Hlini Melsteð Jóngeirsson
Guðmundur Pálsson
Sigurður Þorsteinsson
Einar G. Harðarson
Ása Björg
Gunnar Rögnvaldsson
Magnús Þór Friðriksson
Heimssýn
Sigurbjörn Sveinsson
Guðbergur Egill Eyjólfsson
Kristlaug M Sigurðardóttir
Frosti Sigurjónsson
Axel Jóhann Axelsson
Guðbjörn Guðbjörnsson
Kristin stjórnmálasamtök
Sigurður Sigurðsson
Brosveitan - Pétur Reynisson
Svavar Alfreð Jónsson
Hjörleifur Guttormsson
Einar Björn Bjarnason
Jenný Stefanía Jensdóttir
Jón Þórhallsson
Kristinn Ingi Jónsson
Kristján P. Gudmundsson
Óskar Sigurðsson




