Innköllun fiskveiðiheimilda - gjaldþrot þjóðarbúsins?

 

Hjá hatursfólki á fyrirkomulagi  reksturs  einkafyrirtækja í sjávarútvegi er fyrst og síðast alltaf tekið fram, ‘‘þjóðin á kvótann, yfirgnæfandi þjóðarvilji krefst þess‘‘! Umræða með sanngirni og rökum um hvað betur mætti fara í rekstrinum hefur ekki farið fram; heldur  síbyljuáróður þeirra er vilja þjóðnýta sjávarútveginn ; en verður arðurinn meiri þegar ríkið og pólitísk áhrif fara að deila og drottna með fjöregg þjóðarinnar? Nei, sá flokkur er gengur lengst í þjóðnýtingarstefnu sjávarútvegs með  áróðri er Samfylkingin enda er það stefna þeirra í bráð og lengd, að koma þjóðinni og auðlindinni undir ESB sem allra fyrst; þá er ‚‘‘jafnaðarstefnan‘‘ komin til framkvæmda þegar Ísland hefur ekkert með stjórnun fiskveiða að gera?

Fyrrnefnd gagnrýnin umræða fer ekki farið fram í fjölmiðlum, þeir eru  hallir undir áróðurkenninguna, ´´þjóðin á kvótann´´, fremur en  að standa fyrir  réttlátri gagnrýninni umræðu. Það vekur vonir með núverandi eigendum  Morgunblaðsins,  að rökleg skoðanaskipti um sjávarútveg  fari fram, verði ekki í formi æsingaumræðu  til múgsefjunar, . 

Umhugsunarverð stefna  að vilja setja rekstur  sjávarútvegsfyrirtækja í gjaldþrot með innköllun kvótans, eyðileggja rekstrarskilyrðin fyrir arðbærum veiðum; nú um stundir þegar útflutningur fiskafurða  er að bjarga þjóðinni frá endanlegu efnahagshruni. 

Er raunverulegur  vilji þjóðarinnar að innkalla fislveiðiheimildir?Woundering

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband