19.11.2009 | 22:22
KSÍ biðst afsökunar?
KSÍ baðst afsökunar (RUV í kvöld) á ''óhappi'' fjármálastjóra síns, að kr. 8 miljónir á núvirði, voru straujaðar út af korti sambandsins, á óheppilegri strippbúllu í Sviss. Stjórnin er komin á það stig í iðrunarferlinu eftir fjögur ár, að biðjast afsökunar; (''neyðist til''), lofar bót og betrun í framtíðinni. Fjármálastjóranum er vorkunn og hefur án efa átt sínar erfiðu stundir; ef til vill er hann ekki á réttri hillu, sem fjármálastjóri, KSÍ gerði rétt að færa hann til í starfi er hentaði honum betur; þá verður afsökunarbeiðnin fullgild og allir sáttir.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook