8.2.2020 | 23:30
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS ER ÆÐSTI DÓMSTÓLL ÞJÓÐARINNAR.
Efst á baugi í fréttum undanfarið hafa verið mál Mannréttindadómstóls Evrópu, er varða dóma frá Íslandi.
Bjarni Benediktsson,formaður Sjálfstæðisflokksins hefur tjáð sig um, að Hæstiréttur Íslands, er æðsti dómsstóll þjóðarinnar óháður niðurstöðu Mannréttindadómstólsins (MDE) í svokölluðu landsréttarmáli; er dæmt verður af MDE á þessu ári.
Umfjöllun í fréttum fjölmiðla hefur greint frá þeim er hópast til Strassborg, að fylgjast með málinu og eru lögfræðingar áberandi margir.
Bjarni benti réttilega á að skort hefði umfjöllun þar um; að MDE er ekki æðstðí dómstóll Íslands heldur Hæstiréttur Íslands er hefur nú þegar dæmt í landsréttarmálinu;en niðurstaða MDE mun engu þar um breyta.
Ætlast verður til af RÚV/fjölmiðlum fjalli ítarlega um landsréttarmálið frá öllum hliðum; svo almenningur fái rétta mynd af öllum málsatvikum.
Hæstiréttur Íslands er lokadómur í málum þjóðarinnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.2.2020 kl. 22:28 | Slóð | Facebook
7.2.2020 | 21:21
Greiðslur fyrir umsókn útvarpsstjóra?
Gefur auga leið að ráðning útvarpsstjóra hefur verið erfið en óhætt að slá föstu að kona yrði það að vera,því karl hafi skipað stöðuna frá upphafi. Niðurstaðan er samkomulag varð um, er Stefán Eiríksson og virðast flestir ánægðir með hann sem útvarpsstjóra.
Jafnréttislög geta ekki ákveðið fyrirfram að kona eigi rétt á stöðu vegna eigin kynferðis heldur verður sá einstaklingur skipaður er valnefndin velur að lokum.
Með allri virðingu fyrir áðurnefndum lögum er umræðan um jafnrétti orðin þreytandi fyrir löngu
Vonandi verður ekki farið að greiða vonsviknum umsækjendum stórfé fyrir umsóknina um útvarpsstjórann.
Óska eftir rökstuðningi frá stjórn RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.2.2020 | 10:49
TRUNMP
Hvenær hefst kosningabarátta Demókrata eða hófst hún þegar Nancy Pelosi reif í tætlur ræðu Trump forseta USA.
Ekki virðist árásum linna þrátt fyrir tap þeirra í öldungadeild þingsins,heiftin heldur áfram,klúðrið á framkvæmd í vali forseta Demókrata heldur áfram og er tortryggni kjósenda áberandi.
Donald Trump getur nú siglt lygnan sjó í bili; mjög líklega kominn á beinu brautina, árásir og kosningaklúður Demókrata afla honum fylgis.
Fór í gegnum hræðilega þrekraun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.2.2020 | 22:49
Forsetaefni Demókrata?
Nú virðast forsetaefni Demókrata líta dagsins ljós og er Pete Buttigieg efstur í ringulreiðinni sem enn er þó ekki lokið. Ekki sigurstranglegur gegn Donald Trump, forseta.
Fróðlegt verður að fylgjast með vandræðum Demókrata með forsetaefnið gegn Donald Trump,
Buttigieg með flest atkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.2.2020 | 00:01
Demókratar í USA komnir í aungstræti?
vart hægt leggjast lægra í áróðri á Donald Trump,forseta en nauðgunarákæru á hendur honum,fyrir áratugum;"sönnunargagnið"kjóll konunnar segir minna en ekkert, er kjóllinn hennar?
Demókratar eru svo uppteknir í að finna sök á Donald Trump; þeir hafa gleymt að finna eigið forsetaefni.
Eru demókratar að glata öllu trausti bandarísku þjóðarinnar, gleymt að lýðræðislegar kosn6ingar eru í sjónmáli; og falla á eigin bragði?
Biður um erfðaefni frá Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2020 | 22:37
BREXIT EÐA ESB?
Er óskhyggja Eiríks Bergmanns frambærileg rök fyrir að Bretland gangi aftur í ESB? Aðalorsökin að vestrænir stjórnmálaleiðtogar standi stutt við stjórnvölinn nema í Þýskalandi; liggur í orðunum að Boris Johnson muni ekki sitja lengi í forystu í Bretlandi.
Merkel mun að öllum líkindum hætta innan tíðar og geta innflytjendamálin valdið óstöðugleika í stjórnmalum Þýskalands.
Upphaf ESB var stálog kolaframleiðslu milli Frakklands og Þýskalands og voru sameiginlegir hagsmunir þessara tveggja þjóða. Stríðshrjáð Evrópa kallaði á samstarf þjóða um viðvarandi frið; ESB þróaðist síðan meðal aðildarríkja Evrópu um viðvarandi frið.
Efnahagshrunið 2008 hafði mikil áhrif þar sem minni ríki urðu illa úti og stóðu uppi með skuldaklafann handa almenningi til greiðslu.ESB mun tæplega þróast áfram eingöngu á friðarsamkomulagi; efnahagsmálin munu vega þungt;einnig eru miklir hagsmunir í gasframleiðslu frá Rússum.
Ekki er útilokað að fleiri ríki fari að dæmi Breta;en tíminn mun leiða það í ljós fyrr en seinna?
Hvernig eða hvenær milliríkja-samningar Breta við Bandaríkin munu takast vegur þungt en ástæða er til bjartsýni hjá þessum gömlu vinaþjóðum.
Barátta fyrir inngöngu í ESB mun hefjast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.2.2020 kl. 10:29 | Slóð | Facebook
29.1.2020 | 22:39
NÝR ÚTVARPSSTJÓRI STEFÁN EIRÍKSSON.
Hef kynnt mér helstu fréttasíður með ummælum um tilv.útvarpsstjóra, Stefán Eiríksson.Allt var reynt til að ná neikvæðum fréttum um fyrrnefndan: "ráðinn með sjónarmiðum og velvild Sjálfstæðisflokksins",uppáhaldsstarfsmaður Björns Bjarnasonar", góðvinur Dags borgarstjóra", sonarsonur Stebba Mogga"; engin bitastæð eða rökstudd frétt; ekki einu sinni umsagnir færustu penna er kjósa að nota illmælgi að vopni.
Góð útkoma fyrir tilv.útvarpsstjóra, Stefán Eiríksson og er honum óskað til hamingju og velfarnaðar í starfi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.1.2020 kl. 18:50 | Slóð | Facebook
28.1.2020 | 00:56
Tæknilegar varnir â Mannlegt innsæi í náttúruhamförum.
Náttúruöflin hafa minnt á sig með illviðri,snjóflóðum og ógnum ámeð eldi og brennisteini. Okkur er kippt inn í kaldan veruleikann;stöndum höggdofa og hjálparlaus gegn ógnarvaldi höfuðskepnanna.
Gular viðvaranir,allt kerfið í viðbragðsstöðu.
Minnistæð er konan á Flateyri er ekki sætti sig við tillögur um snjóflóðavarnir er sérfræðingar lögðu fram fyrir bæjarbúa. Taldi hún þær myndu ekki ekki verja höfnina. Orð konunnar voru slegin snarlega af borðinu; allt væri undir kontroll.Annað kom í ljós snjóflóð svipti burtu höfn og bátum í einu vettvangi.
Þrátt fyrir alla heimsins tæknilegu aðgerðir ættu sérfræðingar og tæknifræðingar að hlusta á mannlegt innsæi í tengslum við heimabyggð.
Umrædd tillaga gerði heimamenn örugga og uggðu þeir ekki að sér þrátt fyrir viðvaranir og hættu á snjóflóðum.
Minnisstætt er það sem Hjálmar maðurinn minn á Bakkafirð sagði, þegar óveður var í aðsigi og þeir komu af sjónum; þá drógu þeir bátana samtaka upp í fjöru þá var engin bryggja.
Seinna kom bryggja og krani og allt varð auðveldara.En þá voru engar gular viðvaranir eða sérstakar veðurspár.
Í þá daga litu sjómenn til lofts á skýjafar- og á loftvog.Þrátt fyrir framfarir í veðurspám, snjóflóðum og tækni má fólk aldrei hætta að trúa á eigin innsæi og reynslu er eingöngu fæst í samskiptum við náttúruöflin.
Ef sjómenn á Flateyri hefðu haft nokkurn grun um að höfnin færi ef kæmi snjóflóð; hefðu þeir ef til vill fært bátana til Ísafjarðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóð | Facebook
26.1.2020 | 23:17
"RÍKIÐ ÞAÐ ER ÉG".
Umhverfisráðherra hefur lagt fram frumvarp um hálendisþjóðgarð um 40% af landinu í nafni umhverfisverndar; en er um leið eignaupptaka af hálfu ríkisins;minnir eilítið á Rússnesku byltinguna á sínum tíma.
Verndun landsins er betur komin hjá landeigendur,sveitarfélögum,hagsmunasamtökum:FerðafélagÍslands,ferðaþjónustu,raforkufyrirtækjum,Landssambandi hestamanna,o.fl.aðila.
Reynslan hefur sýnt að "verndun ríkisins" með Vatnajökulsþjóðgarði hefur ekki tekist sem skyldi enda ákvarðanir teknar í ráðuneytinu í Reykjavík oftar en ekki í glerhúsi fjarri náttúrunni.
Nýta þarf auðlindir í hófi eins og verið hefur það er lífsnauðsynlegt;við erum dæmd til að lifa af því sem landið gefur.
Skógurinn gerði okkur að þjóð í harðbýlu landi og gekk mjög á auðlindina. En þjóðinni óx fiskur um hrygg og er nú að rækta skóginn af miklum krafti.
Þó auðlindir landsins verði nýttar áfram er það ekki framtíðinni í óhag; með henni koma ný tækifæri ef til vill aðrir orkugjafar sem ekki eru komnir á kortið en sýnilegir, virkja sjávarföllin og sólarorkuna o.fl.
Umhverfisráðherra tekur mikið upp í sig með umræddu frumvarpi.
Minnir á Lúðvík 14 Frakkakonung er sagði:
"RÍKIÐ ÞAÐ ER ÉG".
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.1.2020 kl. 00:09 | Slóð | Facebook
26.1.2020 | 16:20
MYNDIR AF FORSETAHJÓNUNUM
Margar ríkisstofnanir hafa myndir af öllum forsetum er hafa verið kjörnir hér á landi og er það í virðingaskyni.Undarlegt að lífsförunautar/makar forsetanna eru ekki með. Þó makarnir séu ekki kosnir væri það viðeigandi að þeir væru hafðir upp á vegg líka.
Gera má ráð fyrir að makar forsetanna hafi samþykkt framboð þeirra. Um leið og forsetinn hefur verið kjörinn verður hann opinber persóna og fjölskylda hans verður það beint/óbeint.
Makinn fer með forsetanum í opinberar heimsóknir og móttökur hér heima.Fjölakylda forsetans er því opinber og einkalífið ekki með sama hætti meðan forsetinn situr við völd.
Vel væri við hæfi að forsetahjónin væru bæði í mynd upp á vegg hjá õllum ríkisstofnunum í virðingarskyni við forsetaembættið og forsetahjónin.
23.1.2020 | 22:12
- BLÓÐGJAFIR SAMKYNHNEIGÐRA-
Enn þá einu sinni koma samkynhneigðir vælandi og vilja gefa blóð.Faglegir aðilar hér á landi hafa ekki vijað veita leyfið; nema e. t. v. ef samkynhneigður er vill gefa blóð hafi ekki haft samfarir við samkynhneigðan í fjóra mánuði áður en blóð er gefið; merkir væntanlega að sá sem blóðið gefur verði í einangrun umræddan tíma.
Ekki mega eldri borgarar gefa blóð margir eldri borgarar eru hraustur og taka ekki lyf; ekki hefur heyrst kvörtun frá þeim.
Ekki virðist vera samstaða meðal fagaðila um að samkynhneigðir megi gefa blóð eða ekki;það liggur því ljóst fyrir að við sem ekki viljum umrædda blóðgjöf fáum að vera án hennar.
Hvers vegna geta samkynhneigðir ekki sætt sið við takmarkanir blóðgjafar rétt eins og eldri borgarar?
Virðist vera að samkynhneigðir sætti sig ekki við takmörkun umræddrar blóðgjafar, erfitt að skilja.
Verður ekki hver og einn að sætta sig við sköpun sína og heilsufarslegar aðstæður;hafa ekki neinn rétt á sérmeðferð?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.1.2020 kl. 00:21 | Slóð | Facebook
23.1.2020 | 01:12
MAGNÚS ÓSKARSSON TILRAUNASTJÓRI OG YFIRKENNARI Á HVANNEYRI.
Magnús Óskarsson var jarðsettur frá Kópavogskirkju í dag hafði ekki tök á að vera viðstödd en hugur minn dvalið í minningunni um áratuga kynni á Hvanneyri.
Kynnin hófust er við hjón leigðum saman íbúð með Magnúsi 1962, þá var hann kennari en maðurinn minn við nám í Framhaldsdeild fyrir búfræðikandídata.
Síðan tók við margra ára samstarf við Magnús,Jón sá um efnarannsóknarstöðina en ég fékk vinnu á sumrin við jarðræktarrannsóknir er Magnús sá um. Það voru svokallaðar Dreifðar tilraunir þar sem farið var víða um Mýraog Borgarfjarðarsýslu og tekin hey-og jarðvegssýni af túnum hjá bændum, síðan þurrkaðar og rannsakaðar á rannsóknarstofunni á Hvanneyri.
Nokkur sumur vann ég við að þurrka heysýnin undir leiðsögn Magnúsar. Hann var frábær húsbóndi og nákvæmar í leiðsögn.Öll blöðin um heysýnin voru síðan flokkuð og gengið skipulega frá þeim.
Eitt haustið kom Magnús að máli við mig,
sagði að vantaði í pappírana. Við fórum nákvæmlega yfir allt vinnuferlið en fundum ekkert óeðlilegt í framkvæmdinni.Svo leið veturinn og um vorið hringir Magnús í mig og biður mig að finna sig. Erindið var að segja mér að skjölin væru fundin og ekki mín sök hvarf þeirra og bað hann mig innilega afsökunar en nemandi hafði þá tekið þau án vitundar Magnúsar."Þú starfar svo með okkur í sumar eins og verið hefur". Svona var Magnús gerður; mátti ekki vamm sitt vita í smáu sem stóru.
Oft fengum við hjónin að njóta góðrar tónlistar en hann átti mjög góð hljómflutningstæki er ekki var algengt í þá daga Þá var hann víðförull og sagði oft frá ferðum sínum;minnisstæð er mér frásögn Magnúsar frá ferð til Ísrael þar sem hann kynnti sér samyrkjubú.
Magnús var mjög góður við Laufeyju dóttur okkar frá því hún var á öðru ári og vináttu þeirra hélst alla tíð og hittust þau eftir að Magnús flutti í Kópavog sem eldri borgari.
Við Magnús hittumst síðan vikulega hjá eldri borgara félaginu í Kópavogi og hlustuðum á upplestur Íslendingasagna.
Margs var að minnast frá Hvanneyri og rifjuðum við upp samveruna bæði í starfi og spaugileg atvik, Oft hló Magnús sínum smitandi hlátri yfir skemmtilegum atvikum.
Magnús kom í Hvanneyri þegar miklar framfarir hófust í rannsóknum fyrir landbúnað, kennslu í bændaskólanum og framhaldsnám þar. Skipulagði hann starfið ásamt Guðmundi Jónssyni,kennurum og starfsmönnum; Magnús var lífið og sálin í öllum framförum Bændaskólans, helgaði vísindum og kennslu alla sína krafta og sá skólann komast á háskólastig.
Magnús sat um árabil í hreppsnefnd sveitarinnar; var ráðgefandi í málum samfélagsins.
Magnús var afar hógvær og lítillátur og hirti ekki um vegtyllur í starfi.
Vel færi á að einhver stofnun í Háskólanum á Hvanneyri bæri nafn hans; fyrr en síðar.
Blessuð sé minning Magnúsar Óskarsson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:41 | Slóð | Facebook
21.1.2020 | 16:32
Hættum barlómi um að lægstu launin séu OF HÁ!
Af hverju er lægst launaða fólkið alltaf látið sitja eftir? Af hverju getur hærra launað fólk ekki sætt sig við betri kjör handa lægstlaunuðum.Af hverju má ekki hækka lægstu launin áður en aðrir fá launahækkun?
Hótað er gengislækkun ef lægstlaunaðir fá betri kjör.
Kominn tími til að hækka lágmark sem þarf fyrir brýnasta þörfum áður en hinir hærra launuðu fá launahækkun. Til þess eru næg efni.
HÆTTUM þessum barlóm að lægst launaða fólkið þurfi ekki betri kjör.
Verra en lífskjarasamningurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook
19.1.2020 | 23:39
Eru tengslin við Guð rofin?
Vegna greinar Viðars Guðjohnsen í Mbl 18.jan. s.l. er rétt að taka fram eftirfarandi:
Stjórnkerfi ríkis og kirkju var lengi vel eitt stjórnkerfi þar sem páfinn/biskupar höfðu völdin. Veraldlega kerfið tók yfir hægt og bítandi og urðu hörð átök eins og kirkjusagan greinir frá.
Hefur sú þróun verið nefnd "sekularisering" og loks varð hið veraldlega ráðandi afl; kirkjan missti veraldlegu völdin.
"Mitt ríki er ekki af þessum heimi",sagði Jesús Kristur.Hans boðskapur var óháður veraldlegu valdi þar var hið trúarlegra samband Guðs og manns hið eiginlega vald.
Tengslin við Guð voru á engan hátt rofin heldur urðu hin trúarlegum tengsl Guðs og manns skilgreind frá stjórnkerfinu.
En er deilt um hvort tengsl ríkis og kirkju skulu endanlega rofin en hér á landi er þjóðkirkja,hvort kirkjan verði svo áfram verður tíminn að leiða í ljós;ef til vill er það framtíðin að svo verði?
Kirkjan í Frakklandi er óháð ríkisvaldi/stjórnkerfi og reynst farsælt.
Tengsl Guðs og manns eru alls ekki rofin heldur voru þau aðgreind frá veraldlegu valdi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.1.2020 kl. 00:27 | Slóð | Facebook
18.1.2020 | 16:46
Vinstri grænir: " Pólitísk umhverfisvæn stefna"?!
Umhverfisvernd er góðra gjalda verð er í góðum farvegi, þó má alltaf bæta samráð þeirra er beinna hagsmuna eiga að gæta í samskiptum sínum við landið;bændur eru þar stór hagsmunahópur bæði hvað varðar nýtingu og vernd.Bændum er vel ljósir hagsmunir þeirra sem er hæfilega nýting lands og skógrækt er þeir sinna mjög vel.
Er bröltið í umhverfisráðherra til að tryggja Vinstri grænum pólitísk völd "vafið í umhverfisvæna umhyggju"?
Ekki fjarri lagi að hér sé málum blandað;vonandi fer fyrirhugað frumvarp ekki óbreytt í gegnum þingið.
Þá fengju Vinstri grænir óbeint mikil völd á vegum ríkisins.
Í beinni: Fundur umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook
17.1.2020 | 17:40
Sofa landsbyggða þingmenn á verðinum fyrir umbjóðendur sína?!
Aftur fara Vestfirðingar illa úti náttúruhamförum en sem betur fer varð ekki manntjón.Flateyringar misstu lífæð sína,höfn og báta. Engin orð fá lýst svo alvarlegu tjóni.
Hamfaraveðrið 1995 er öllum minnistætt,þá misstu Vestfirðingar ástvini sína auk eignatjóns.
Minnisstætt er hamfaraveðrið 1995 í Bakkafirði ekki mannstætt veður og úrhellisrigning.Nýkomin var flotbryggja,í mikilli hættu og höfnin full af bátum.
Allir sem vettlingi gátu valdið voru kallaðir út að bjarga því sem bjargað varð.Bakkfirðingum tókst með samstilltu átaki að bjarga bryggju og bátum og unnu þar mikið afreksverk; er enginn heimamaður er þá var gleymir.
Enginn mannlegur máttur gat bjargað bryggju og bátum á Flateyri; vonandi berst þeim hjálp fljótt og vel svo lífið geti haldið áfram.
Komið hefur í ljós samkvæmt fréttum að framkvæmdir vegna snjóflóðavarna hefur ekki verið sinnt sem skyldi þó fjármagn hafi verið handbært.
Hafa landyggðaþingmenn sofið á verðinum að fylgja eftir lífshahagsmunum landsbyggðarinnar?
Hefðu þurft að fara á fiskiskipum í brjáluðu veðri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook
15.1.2020 | 20:58
Völd forseta USA hafa alltaf verið farsæl þjóðum heims.
Að Demókratar skerði vald forsetans er borin von;Öldungadeildin mun aldrei samþykkja valdaskerðingu forsetans. Samkvæmt sögu Bandaríkjanna hafa mikil völd forsetans reynst farsæl.
Nefna má völd Róberts Kennedy í Kúbudeilunni;Rússar voru nánast komnir inn á lóðina við Hvíta Húsið þegar Kennedy, forseti stöðvaði her Rússa með ákvörðun sinni.
Þá má nefna Truman, forseta USA í II WAR;er tók þá örlagaríku ákvörðun að varpa kjarnorkusprengju á Japan. Hafa verður í huga að reynt var að semja um frið við Japan.
Truman stóð frammi fyrir styrjöld með innrás í Japan er hefði orðið þvílíkt blóðbað fleiri hundruð milljóna hermanna og borgara með tilheyrandi hörmungum,hungurs,sjúkdóma og allsleysi;
Japanar neituðu að gefast upp. Þá tók Truman forseti ákvörðun um að varpa kjarnorkusprengju á Hirosima með skelfilegum afleiðingum.Enn var reynt að semja frið að hálfu Bandamanna;Japanir neituðu sem fyrr að gefast upp.
Þá vörpuðu Bandaríkjamenn/Bandamenn annarri sprengju á Nakasaki með hörmulegum afleiðingum.
Þá tók Japanskeisari í taumana og samdi frið við vestrænir þjóðir er hefur haldist æ síðan.
Er ekki að réttlæta kjarnorkusprengjuna en Japanir neituðu að gefast upp.Auk þess hófu Japanir stríð við USA með því að sprengja flotastöð þeirra PEARL HARBO.
Japana dreymdi í margar aldir á ná heims yfirráðum samkvæmt sögunni og voru eins grimmir og nasista ef ekki grimmari; nefni aðeins Mansjúríu þar sem þeir rændu öllum góðmálmum og auðlindum; brytjuðu niður þjóðina ásamt fleiri þjóðum.
Kjarnorkusprengjan er mesta ógn við mannkynið og vonandi tekst þjóðum að halda frið en nú eru Iranir hættlegastir ef þeim tekst að koma sér upp kjarnorkusprengju.
Völd forseta USA eru mikilvæg og draga frekar en ekki úr hættunni á kjarnorkustríði.
Vilja takmarka vald Trump til að hefja stríð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.1.2020 kl. 10:27 | Slóð | Facebook
14.1.2020 | 19:56
Tala heilbrigðisstarfsmenn niður eigin starfsvettvang?
þessar pólitísku keilur Helgu Völu Helgadóttur eru vindhögg. Líklega er hún að hugsa um fylgi Samfylkingar sem er mikið meðal sumra heilbrigðisstétta.
Tvö mikilvæg þjóðmál eru oftar en ekki töluðu niður til að vekja athygli almennings. Heilbrigðiskerfið fyrir okkur almúganum, eftir starfsmönnum þess er "sökkvandi skipsflak"þar sem allt er á hverfandi hveli, sjúklingar í lífshættu; ekkert er hægt að gera vel.
Hitt mikilvæga málið sem talað niður er sjávarútvegurinn; fjöregg þjóðarinnar og einnig uppistaða fjármagns til heilbrigðiskerfisins,umræða um það síðar....
Segir Svandísi hóta starfsfólki Landspítalans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook
13.1.2020 | 23:31
Elísabet drottning heldur fast um stjórnartaumana.
Mikið gengur á hjá bresku konungsfjölskyldunni en Elísabet stendur fasta í fæturna og vill leyfa Harry og Megan að vera venjuleg vinnandi fjölskylda og er það vel,
Vona að Charles og Camilla verði konungshjón með tíð og tíma.þau eiga það skilið eftir öll svikin að mega ekki verða hjón.
Harry og Megan fá að verða venjulegt fólk en samt má vona að við fáum að sjá myndir af þeim annað slagið.
Meghan viðurkennir að sér hafi liðið illa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.1.2020 kl. 01:28 | Slóð | Facebook
11.1.2020 | 15:17
NÆSTI ÚTVARPSSTJÓRI
Athyglisvert að lesa staksteina Mbl. í dag þar hafa tveir útvarpsmenn misnotað hlutleysi RUV á vítaverðan hátt.
Fréttamennirnir eru: Helgi Seljan og Eiríkur Guðmundsson.
Verð að greina frá draum er mig dreymdi fyrir nokkrum dögum::
Mér fannst heyrast hróp langt í burtu og gekk á hljóðið það var hrópað:
"Illhugi Gunnarsson fyrrv.menntamálaráðherra verður útvarpsstjóri!"
Hann var einu sinni Allaballi síðan Sjálfstæðismaður góð blanda.😃