21.11.2013 | 13:27
Skoðanakannanir/útgönguspár - marklausar ?
Danska ríkisútvarpið hljóp á sig í útgönguspám um kosningar til sveitastjórna seinni part kosningadagsins, spáði Sósíaldemókrötum 21% fylgi. Í kjölfarið viðurkenndi Thorning-Schmidt ósigur flokksins en síðan kom í ljós að flokkur hennar fékk 29% á landsvísu og er stærsti stjórnmálaflokkurinn á landsvísu.
Pínleg staða fyrir danska ríkisútvarpið; nú hefur það lýst yfir, að ekki verði birtar útgönguspár framar; en var ríkisútvarpið að reyna að hafa áhrif á úrlit kosninga?
21.11.2013 | 12:02
ESB - styrkir eða mútur?
Lofgrein mikil að vöxtum birtist í fréttablaðinu í dag: ,...hvort sem er mælt í fjármagni eða fjölda fólks sem hefur tekið þátt í verkefnum. Íslendingar hafa fengið yfir 200 milljónir evra í styrki og meira en 25 þúsund manns verið á faraldsfæti á vegum styrkta verkefna. Saga EES- samningsins rakin frá 1993 og ýmsum starfsáætlunum lýst á framfaramálum: Tækniþróun,æskulýðs- og menningarmál og menntamál.
Með allri virðingu fyrir framförum er það umhugsunarvert; hvort himinháar styrkveitingar eingöngu frá ESB til lítillar þjóðar séu boðlegar til framfara?
Miklar hreytingar hafa orðið síðan 1993 og má draga í efa hvort umræddar starfsáætlanir ESB séu ennþá í fullu gildi. Miklar breytingar hafa orðið - nú eru stórveldin í austri, Kína, Japan og Indland áhrifavaldar í viðskiptum þangað hafa Evrópsk fyrir tæki flutt fyrirtæki í iðnaði þar sem launin eru mikið lægri en í heimalandinu. Síðan er varan seld á uppsprengdu verði á efnahagssvæði ESB og Bandaríkjunum.
Nú virðast þessi austrænu viðskiptaveldi ógna hagsmunum vesturveldanna alvöru viðræður eru í gangi um sameiningu ESB og Bandaríkjanna í viðskiptum þá eru auðlindir norðurslóða eftirsóttar og gætu orðið inni í myndinni.
Umhugsunarvert hver okkur staða verður þá? Að ganga á mála hjá ESB með styrkjum er hættuleg staða fyrir litla þjóð með eftirsóttar auðlindir nú og í framtíðinni; eru það ekki óbeinar mútur?
20.11.2013 | 14:00
Afburða íþróttamaður - fyrirmynd ungu kynslóðarinnar
Tilfinningaþrungin stund fyrir Eið Smára en oft áður hefur hann átt í erfiðleikum slasast illa á ferlinum, alltaf sigrað eins og góðum íþróttamanni sæmir; bestu íþróttamenn allra tíma hafa eflst við mótlætið. Eiður er afar góð fyrirmynd fyrir ungt íþróttafólk; þótt ferli hans ljúki í keppni á hann framtíð fyrir sér sem góður þjálfari getur skilað reynslunni áfram til ungu kynslóðarinnar ef til vill verður hann landsliðsþjálfari framtíðarinnar.
![]() |
Glæsilegum landsliðsferli Eiðs lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2013 | 11:08
Smjörklípa stjórnarandstöðunnar
Nú ber vel í veiði hjá stjórnarandstöðunni ný smjörklípa; fyrst lög um sjávarútveginn/makríllinn og lögin um náttúrvernd hvorutveggja mál er velferðarstjórnin sáluga þröngvaði í gegnum þingið án samkomulags. Ef lög um sjávarútveg hefðu náð fram að ganga hefðu enn fleiri dreifðar byggðir lagst af, lög um náttúrvernd eru þess eðlis að hagmunir skarast; virkjanir og verndun landsins.
Flestum er annt um náttúruna, samkomulag verður að fást um notkun hennar til efnahagslegra framfara og skynsamlega náttúrvernd.
Þessi mikilvægu mál fyrir alla landsmenn virðast nú ætla að verða flokkspólitísk hagsmunamál fyrir Vinstri græna/ stjórnarandstöðuna ekki að ná fram lausn er þjónar báðum sjónarmiðum; hóflega nýtingu náttúrunnar og sanngjarnar greiðslur af auðlindunum til lands og sjávar.
![]() |
Langar umræður um brottfall laga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2013 | 10:24
Auka aflaverðmæti makríls - með kvóta
Nú hamast stjórnarandstaðan þyrlar upp moldviðri makrílinn á frjálsan markað enginn tilgangur til þess aðeins til að setja fjármagn í hendur stórra fjármagnsaðila er munu braska ómælt með verðmætið. Besta leiðin er að fella makrílkvótann inn í kvótakerfið eins og annan fisk til þeirra sem hafa veitt hann og komið upp dýrum búnaði til veiðanna.
Fyrst smábátakerfið er inni í kvótakerfinu leiðir það að sjálfu sér að þeir fái sinn hlut sérstaklega vegna þess að makríllinn virðist vera víða við strendur landsins enginn veit hvaða afleiðingar það hefur fyrir lífríkið ekki síst fuglalíf, nauðsynlegt að grisja makrílinn með strandveiðum en ekki með óheftum hætti.
Engir flokkar eins og Samfylking og Vinstri grænir hafa unnið þjóðinni eins mikið ógagn með stefnu í sjávarútvegi ef þeir hefðu ráðið för væru byggðir landsins í rúst braskað með aflaverðmætið með svokölluðum frjálsum markaði; í raun rammpólitísk stefna til að þjóna eigin flokkspólitísku hagsmunum til þjóðnýtingar verðmætasköpun þjóðarinn stefna sem aldrei getur þjónað hagsmunum þjóðarinnar sem heild.
![]() |
Aflaverðmætið rúmir 100 milljarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:28 | Slóð | Facebook
19.11.2013 | 09:04
Endurmeta stefnu Félagsþjónustu í Reykjavíkur.
Heimaþjónusta Reykjavíkurborgar endurspeglar tíðarandann í þjóðfélaginu eldri borgar mega ekki hafa sæmileg lífskjör eins og aðrir samfélagsþegnar. Lítil yfirsýn yfir gildi félagsþjónustu að eldri borgarar geti verið sem lengst á eigni vegum þurfi ekki dýra umönnun á hjúkrunarheimili. Þessi eldri borgari eltur á röndum og um hann njósnað heima og heiman síðan tekin ákvörðun um að skerða hann réttmætri þjónustu.
Kærleikur og samkennd sem gleðst yfir heilsu og góðu lífi þessa áttatíu og fimm ára manns er enginn stefna virðist vera fremur að brjóta niður getu hans til að hjálpa sér sjálfur þörf er á endurmeta hæfni félagsþjónustunnar til að gegna hlutverki sínu.
![]() |
Ætti ekki að gjalda þess að líða vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2013 | 17:51
Eldri borgarar rændir eigum sínum -
Eru málefni hjúkrunarheimilisins Eirar ef til vill toppurinn á ísjakanum hvernig farið er með fjármuni eldri borgara. Lífeyrir þeirra skertur með lögum/ ólögum, skemmst að minnast afnám grunnlífeyfis 2009, lífeyrir er allir sextán ára og eldri hafa greitt og eiga samkvæmt stjórnarskrá- en var samt afnumin af "velferðarstjórninni" sálugu.
Hvers vegna mega eldri borgara ekki eiga sparifé sitt í friði eins og aðrir þegnar í samfélaginu hvers vegna skerða vextir lífeyrir þeirra er þeir hafa áunnið sér alla æfi hvers vegna eiga þeir að greiða sjálfir sjúkrahúsvist af sparifé sínu frekar en aðrir þjóðfélagsþegnar?
Hvers vegna gera samtök eldri borgara lítið sem ekkert til að rétta hlut eldri borgara.
![]() |
Það versta sem ég hef lent í |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2013 | 14:10
Tapsárar konur í framboði
Aðalefni Sunnudagsmorguns á RÚV var álit Sunnu Valgerðardóttur og Heiðu Kristínar Helgadóttur um slakt gengi kvenna í prófkjöri Sjálfstæðismanna um helgina héldu varla vatni fyrir vandlætingu hvorug óskaði Halldóri til hamingju með verðskuldaðan sigur.
Fylgdist vel með kosningabaráttunni enginn fjölmiðill var opanaður í margar vikur nema þar sem konur auglýstu framboð sitt inn á öllum spjallrásum blöstu þær við sjónum almennings. Karlmennirnir auglýstu líka en ekki eins mikið, Halldór langminnst auðvitað er gleðilegt ef konum gengur vel en að verðleikum ekki bara af glans-auglýsingum um ágæti sitt.
Minnir dálítið á framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta með RÚV í forystu ásamt öðrum fjölmiðlum kepptust við að búa til idealforseta. Þóra sjálf fékk aldrei frið eða tækifæri til að sýna hvað í henni bjó; því fór sem fór með allri virðingu fyrir Þóru.
Meira segja formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna gat ekki orða bundist án frambærilegra raka ; formaðurinn hefði vel getað sýnt þann drengsskap að óska Halldóri til hamingju með sigurinn.
Enginn verður óbarinn biskup það ættum við konur að hafa í huga allra síst að kveina og kvarta yfir ósigri.
![]() |
Telur ólíklegt að listanum verði breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook
17.11.2013 | 09:59
MARÍUBÆN: (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)
I
Til þín særðar sálir flýja,
sancta María.
Þig elska og dýrka allar þjóðir,
eilífa móðir.
Ég sé þig koma í hvítum feldi
með kórónu úr eldi
og breiða faðminn milda mjúka
móti þeim sjúka.
Að fótum þér ég fell með lotning
friðarins drottning.
II
Ég hef öll þín boðorð brotið,-
bölsöngva notið,
öllum þínum gjöfum glatað,
guðsþjóna hatað,
samviskuna svæft og falið,
syndarann alið.
III
Til þín særðar sálir flýja,
sancta María.
Hreinsa þú mitt hjarta móðir,
við heilagar glóðir.
Hreinsa þú mitt hjarta, móðir,
við heilagar glóðir.
Hreinsa mig í helgum lindum
af hatri og syndum.
Gef mér styrk og von og vilja
og vit til að skilja.
Lát mig fagna alltaf yfir
öllu, sem lifir,
og alltaf nálgast eldinn bjarta
með auðmjúku hjarta,
kveljast með þeim köldu og þjáðu
kyssa þá smáðu.
Gef mér ást til alls hins góða,
til allra þjóða.
Gef mér sól og söngva nýja,
sancta María.
Góða helgi
(Davíð Stefánsson Svartar Fjaðrir, bls 195)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook
17.11.2013 | 07:27
Grasrótin - kaus borgarstjóraefnið.
Þvert á skoðanakannanir kaus grasrótin /fólkið í Sjálfstæðisflokknum Halldór Halldórsson sem borgarstjóraefni Reykjavíkur í komandi kosningum. Ekki þar fyrir að núverandi borgarfulltrúar séu ekki frambærilegir en hafa þeir ekki stundum verið linir í minnihluta: slegið undan, hræddir við ákvarðanatöku sbr. Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni.
Minnihluti í borgarmálum/landsmálum þarf að koma fram af festu og einurð með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi en ekki að kóa með meirihlutanum í tíma og ótíma.
![]() |
Halldór oddviti sjálfstæðismanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2013 | 10:16
Ódrengilegt uppgjör Ómars Stefánssona í Kópavogi-
Kostulegt að lesa ódrengilegt Uppgjör Ómars Stefánssonar, bæjarfulltrúa í Kópavogsblaðinu (nóv. 13), honum tekst illa upp, reynir að koma höggi á Gunnar Birgisson er framsókn var í samstarfi við til margra ára í bæjarmálum. Sannleikurinn er sá að Framsókn í Kópavogi varð höfuðlaus her eftir að Sigurður heitinn Geirdal féll frá en hann hélt uppi að miklu leyti stefnu bæjarins í velferðarmálum í farsælu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.
Ómar virðist ekki hafa haft hugrekki eða samstarfshæfileika til að halda á lofti merki Sigurðar, ekki einu sinni með Gunnari Birgissyni gegn árás á eldri borgara þegar sundskatturinn var settur á eftir hrun til að rétta fjárhag bæjarins. Þá var mörkuð sampólitísk stefna allra flokka Kópavogs í velferðarmálum bæjarins. sem enginn veit hvar endar.
Framsókn mun hafa pólitískt sóknarfæri í kosningunum í vor -ef þeir bera gæfu til að setja fram fulltrúa er mun halda áfram stefnu Sigurðar heitins Geirdal í velferðarmálum - er hafa verið lámarki á þessu kjörtímabili.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:10 | Slóð | Facebook
25.7.2013 | 16:35
Íþróttir: Konur í sviðsljósinu -
Gott framtak hjá ríkisstjórninni að veita Anitu afrekshlaupara styrk til æfinga fyrir heimsmeistaramótið 2016. Slíkur styrkur er mikil hvatning sem Anita á skilið eftir frábæran árangur. Að veita styrk eftir að íþróttamaður hefur sýnt hæfni sína er rétt aðferð en ekki að styrkja fyrirfram.
Konur hafa undanfarið verið í sviðsljósinu á Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu í Svíþjóð. Í kvöld keppa Danir og Norðmenn um hvort liðið fer í úrslitaleikinn við Þjóðverja. Miðað við leik Þjóðverja og Svía þá eru þeir tæplega sigurvissir; líklega eru Danir líklegri til að vinna þá en Norðmenn en það kemur í ljós í kvöld.
![]() |
Ríkisstjórnin veitir Anítu styrk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2013 | 14:19
RÚV: "Ómenning og illyrði"
En heldur lista-fúkyrðaflaumur Hallgríms Helgasonar áfram á RÚV (22.07) þar sem hann fær útrás fyrir framsóknarfóbíuna í nafni menningar og málfrelsis. Höfundurinn veður á súðum aðallega um utanríkisráðherrann með rakalausu bulli og illyrðum sorglegt að landsmenn þurfi að greiða fyrir slíka smíði enn sorglegra að ríkisfjölmiðillinn bjóði upp á ómenninguna.
Umræddan pistil má sjá í "menningarþættinum" Víðsjá á RÚV.
22.7.2013 | 21:54
Skemmtilegur fótbolti - óvænt úrslit
Skemmtilegur kvennabolti í dag Spánverjar kepptust við að sýna snilli sína í samspili en ekkert framtak fylgdi nema síðustu mínútu leiksins þá herti ein sig upp tók af skarið og skoraði. Norðmenn unnu samt verðskuldaðan sigur sýndu ágætt samspil þar sem framtak er réði úrslitum.
Sama er að segja um Frakka höfðu boltann nær allan tímann með yfir þrjátíu tilraunir á danska markið en skoruðu aðeins úr vítaspyrnu Danir áttu örfáar marktilraunir en skoruðu samt eitt mark, góð vörn, framtak og góður markvörður réði úrslitum, skot Frakka voru flest léleg að danska markinu Úrslitin í vítaspyrnakeppninni unnu Danir enda með betri markvörð mörgum finnst sjálfsagt Frakkar betra liðið er ekki á sama máli þegar lítið sem ekkert framtak er fyrir hendi þá gengur illa einstaklingsframtakið brotið of mikið niður.
![]() |
Noregur af öryggi í undanúrslitin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.7.2013 | 10:42
Siðlaus pistill í skjóli málfrelsis hjá RÚV -
Rithöfundar geta sagt hvað sem þeir vilja í sínum ritsmíðum án þess að vera í skjóli RÚV sem er skylt að virða hlutleysi samkvæmt lögum; þess vegna var pólitískur pistill Hallgríms Helgasonar um ákeðinn stjórnmálaflokk brot á lögum; á ekki erindi inn í menningarþætti RÚV. Listræni pistill Hallgríms Helgasonar var til umræðu í Vikulokin á RÚV s.l. laugardag með þáttöku listamannsins/skáldsins/stjórnmálamannsins - lítið "listrænt" kom frá honum. Steinunn Stefánsdóttir studdi dyggilega höfundinn lýsti fjálglega skoðun sinni um að rithöfundar/listamenn ættu að hafa fullkomið málfrelsi pistillinn hefði verið listasmíði skrifað af listamanni.
Hafa rithöfundar og blaðamenn hreiðrað um sig í skjóli RÚV -og listarinnar til að koma á framfæri pólitískum skoðunum sínum; til stuðnings svokölluðum vinstri flokkum?
Undirrituð fylgir ekki Framsóknarflokknum en umræddur pistill Hallgríms Helgasonar getur tæplega talist pólitísk umfjöllun á breiðum grundvelli eða list að raða saman fúkyrðum og fullyrðingum um ákveðinn flokk í ríkisfjölmiðinum í skjóli málfrelsis?
21.7.2013 | 15:24
Stórt tap
Kvennalandsliðið sýndi enga liðsheild eða framtak, virðist vera að Hólmfríði Magnúsdóttur hafi vantað - sú eina er getur sýnt framtak á úrslitastundu Svíar voru sterkara liðið á heimavelli þær íslensku reynsluminni.
Ef ekkert framtak er til staðar verður liðsheildin ömurleg - leikurinn ómarkviss og vörnin í molum það gerðist í dag - en til hamingju Svíar.Þrátt fyrir að kvennalandsliðið hafi lokið keppni þá geta þær verið ánægðar að komast í átta liða úrslit; þá hafa þær markmið að keppa til að halda þeim áfanga.
![]() |
Ísland er úr leik á EM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook
21.7.2013 | 04:52
Guð minn góður
" Guð minn góður ef ef ég ætti örlítið brot af lífi... Ég myndi ekki láta dag líða án þess að segja þeim sem ég elska frá tilfinningum mínum. Enginn á sér tryggan morgundag hvorki ungur né gamall. Í dag kannt þú að sjá í síðasta skiptið þá sem þú elskarÞví skaltu ekki bíða lengur. Breyttu í dag eins og morgundagurinn renni aldrei upp, þú munt örugglega harma daginn þann þegar þú gafst þér ekki tíma fyrir bros, faðmlag, koss og þú varst of önnum kafinn til að verða við óskum annarra.
Hafðu þá sem þú elskar nærri þér, segðu þeim í heyranda hljóði hversu mjög þú þarfnast þeirra, elskaður þá og komdu vel fram við þá, taktu þér tíma til að segja "mér þykir það leitt", "fyrirgefðu mér", "viltu vinsamlegast", "þakka þér fyrir"- og öll þau kærleikans orð sem þú þekkir.
Enginn mun minnst þín sökum leynilegra hugrenninga þinna. Biddu Drottin um styrk og getu til að tjá hugsanir þínar. Sýndu vinum þínum hversu mikils virði þeir eru þér"". góða helgi.
(Úr bréfi sem Kólumbíska NÓBELSKÁLDIÐ Gabríel Garcia Márques reit mikið veikur til vina sinna.)
20.7.2013 | 21:09
Hlaupadrottning Íslands
Frábær hlaupadrottning, á sex dögum varð Anita Hinriksdóttir heimsmeistari og Evrópumeistari - auk þess hefur hún án efa hlaupið sig inn í hug og hjarta þjóðarinnar; einstök afrekskona.
Varla erfitt að velja íþróttamann ársins þegar þar að kemur - verður það með heiðri og sóma.
Innilega til hamingju hlaupadrottning.
![]() |
Aníta Evrópumeistari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.7.2013 | 09:46
Kvennlandsliðið í sviðsljósinu
Má segja að Guðbjörg verði styrkasta stoðin í leiknum ásamt góðri vörn, þá koma góð tækifæri til að skora. Ef liðið fer ekki á taugum hefur gott úthald og góða samvinnu þá getur allt gerst. Svíar eru hrokafullir í pressunni og telja sigurinn vísan - gegn litla Íslandi - gaman verður að horfa á þennan leik.
Slæmt að missta Hólfríði Magnúsdóttur úr leiknum - en vonandi er til staða sterkur leikmaður í hennar hlutverk.
![]() |
Sé ekki eftir neinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.7.2013 | 09:53
Ísland - vestræn samvinna farsælust
Einar Benediktsson, fyrrverandi sendiherra skrifar athyglisverða grein ( Mbl. 17.07.13, bls. 25) þar sem hann telur vestræna samvinnu í stærra samhengi en verið hefur sé hagstætt fyrir Ísland viðskipti við Kína vill hann taka með varúð ekki láta þeim í té aðstöðu hér á landi með því að selja þeim stór landsvæði enda hafa þeir stórt sendiráð sem telst nægilegt. Það liggur í augum uppi að Kína er fyrst og fremst að tryggja aðstöðu sína á Norðurheimskautinu þegar og ef siglingaleið opnast tryggja nýtingu auðlinda á landi og hafsbotni - en ekki að byggja upp risavaxna gámahöfn í Finnafirði.
Síðan skrifar Einar: Fríverslun við Kína stuðlar að hagkvæmum viðskiptum, sem þó hafa lítið að segja um alla afkomu okkar. Það sama yrði ekki sagt um fríverslun og fjárfestingar milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, sem viðræður hófust um í Whashington í síðastliðinni viku . Nýtt efnahagssvæði efnahagssamskipta frjálsra lýðræðisríkja beggja vegna Atlantshafsins, mun leið til aukinnar atvinnu og samkeppnishæfni og þar með getu til að styðja þróun opinna og frjálsra þjóða. Sendiherrann hefur rétt fyrir sér vestræn samvinna er okkur farsælast eins og verið hefur.
En Einar Benediktsson telur að til þess Ísland geti tekið þátt framangreindri vest- evrópskri samvinnu þurfi Ísland að vera aðildarumsækjandi að Evrópusambandinu - en rökstyður ekki þá skoðun.
Enginn vafi er að fyrrgreindir samningar milli Evrópu og Bandaríkjanna er til að reyna að halda veldi sínu gagnvart vaxandi veldi austrænna ríkja.
Ísland er landfræðilega vel staðsett ef siglingaleið opnast á norðurheimskautinu engu verður um það breytt frekar en á dögum kalda stríðsins en þá var Ísland mikilvægt fyrir vestrænar þjóðir.
Hvers vegna ætti Ísland að vera aðili að ESB til að vera mikilvægt - kemur það ekki að sjálfu sér vegna landfræðilegra stöðu landsins?
Grænland er ekki aðili að ESB Danir leggja nú mikið upp úr sjálfstæði þeirra þótt þeir séu í sambandsríki þeirra.
Miðað við upplýsingar er komið hafa fram er biðstaða um aðildarumsókn í ESB skynsamlegasta niðurstaðan fyrir Ísland nú um stundir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook