Jóhanna er trausti rúin?

Erfitt að finna orð sem hæfa Jóhönnu Sigruðardóttur, forsætisráðherra, í öðru orðinu æpir hún upp yfir sig gamla klisju, "burt með íhaldið, í hinu orðinu samstaða er okkar stefna. En hverju hefur hún áorkað?, ákaflega litlu, féllst á stjórnarmyndun og loforði um "skjaldborg heimilanna", samt sem áður er hún að sigla þjóðarskútunni í strand. Jóhanna komst fyrst og fremst að vegna vinsælda með stuðningi við þá sem minna mega sín, þau ummæli má segja að Samfylkingin og Vinstri grænir hafi fyrir löngu síðan, fót um troðið.

Vinstri stjórnin kom í veg fyrir að utanþingsstjórn væri mynduð með lýðskrumi og verður að taka út refsingu fyrir þann gjörning. Frown


mbl.is Tillaga um landsfund dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarkreppa í Kópavogi

Undirrituð minnist með söknuði þeirra tíma í Kópavogi, þegar Sigurður heitinn Geirdal og Gunnar Birgisson unnu saman í bæjarmálum um árabil á farsælan hátt ; eins og oftast verður þegar sterkir velviljaðir leiðtogar með ólíkar skoðanir ná saman Litið var með yfirsýn  til  þeirra er eiga við félagslegan vanda  etja, fatlaðra og  eldri borgara; féalgsleg gildi  í heiðri höfð. Byggðar  íbúðir fyrir fatlaða, eldri borgara,skólar og  íþróttamannvirki risu af grunni.

Nú er öldin önnur engin samstaða ríkir um bæjarmálefnin hver höndin upp á móti annarri. Annar stærsti flokkurinn, Samfylkingin hefur fyrst og fremst eitt markmið, að koma Gunnari Birgissyni úr bæjarmálum. Ekki fjarri sannleikanum að leiðtoginn, Guðríður Arnardóttir vilji fyrir alla muni komast í bæjarstjórastólinn; en nýtur hvorki trausts eða vinsælda til að það sé í sjónmáli

Raunhæft er að ætla að enginn fulltrúi njóti vinsælda bæjarbúa - nema að öllum líkindum Gunnar Birgisson, fyrst og fremst vegna framgöngu  í bæjarmálum alla tíð. Einn stóð hann gegn bæjarstjórninni (einnig sínum samherjum) fyrir síðustu kosningar þegar sundskatti var slengt framan í eldri borgar algjörlega að ástæðulausu; þar með hófst árás á félagsleg gildi er hlúð hafði verið að og í heiðri höfð í stefnumörkun bæjarmála í fjölda ára.

Vonandi endurskoða samherjar Gunnars afstöðu sína og fylgja fyrri stefnu þeirra Gunnars og Sigurðar heitins Geirdals Ekki síður ætti Samfylking og Vinstri grænir að skoða vandlega sína stefnu í velferðarmálum til farældar fyrir bæjarbúa. Guðríður Arnardóttir verður seint bæjarstjóri eingöngu með árásum á Gunnar Birgisson, ætti fremur að sýna málefnum og félagslegum gildum meiri framgang;- í samstarfi við Gunnar Birgisson 


mbl.is VG og Samfylking ræða við D-listann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplausnarástand - stjórnlaus ríkisstjórn?

Þá er þingsetningu lokið orð forsetans eru athygli verð, að næsta kosning forsetaembættisins sé í lausu lofti vegna væntanlegrar stjórnarskrár; ef til vill er gjá þings og þjóðar best  brúuð ef það tekur fyrir tillögur stjórnlagaráðs, sérstaklega hver verði staða forsetans í framtíðinni.

Aðgerðir núverandi forseta eftir efnahagshrunið að setja þjóðina ekki í skuldaklafa braskara; kalla á meiri völd honum til handa; að áhrif almennings verði til staðar  þegar stjórnkerfi þjóðarinnar fellur til grunna eins og öllum er í fersku minni.

Núverandi stjórnarmeirihluti er ótrúverðugur og valdalítill vegna þess að innan hans er sama fólkið er átti þátt í hruninu; núverandi forsætisráðherrann er fulltrúi þeirra. Kosning til alþingis fór fram á þeim forsendum að allt væri einum flokki að kenna; Samfylkingunni tókst að hvítþvo sig af hruninu í bili en ekki lengur.

En hver er svo eftirleikurinn? Ríkisstjórnin ræður ekki við aðstæður og jafnvel í sumum málum gengið gegn hag almennings. Má þar nefna Icesaveskuldina, ótímabæra umsókn í ESB og óréttláta lausn á skuldum heimilanna.

Aðallega virðist reynt að leysa óhófsskuldir þeirra er tekið hafa lán fyrir of stórar íbúðareignir og óþörf bílalán en fjölskyldur á litlum tekjum berjast í bökkum að ná endum saman. 

Ekki verður annað séð en að utanþingsstjórn/þjóðstjórn verði að taka við meðan stjórnarskrá er breytt og komið er á friði í landinu.

Vonandi víkur núverandi forseti ekki af sviðinu miðað við umrætt ástand; meðan þjóðin vill kjósa hann - en það leiðir tíminn í ljós. FrownHalo


mbl.is Verður að skapa nýja sátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir leiðtogar lifðu af efnahagshrunið -

Sagnfræðingar framtíðarinnar eiga vafalaust eftir að skrifa lærðar greinar um efnahagsbrunið, 2008. Líklega munu tveir þáverandi leiðtogar þjóðarinnar verða  taldir hafa  lifað  hrunið af svo ólíkir sem þeir eru: Davíð Oddson, seðlabankastjóri og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti; þeir  blinduðust af pappírsvafningum einkabankanna er reyndist í raun blekking og brask; en  brugðust hart við, stóðu með þjóðinni á örlagastundu.

Davíð brást hart við  setti einkabankana á hliðina og bjargað því sem bjargað varð; að þjóðin yrði skuldsett um aldir. Stóð af sér fárviðrið með sóma er fjölmiðlar og vinstri flokkarnir sóttu að honum.

Ólafur Ragnar vísaði lögum um Icesaveskuldina til  þjóðarinnar þegar skuldsetja átti fjórar eða fimm kynslóðir til að greiða óreiðuskuldir einkabraskara með stuðningi núverandi velferðarstjórnar/hrunstjórnar.

Vonandi lifir stefna Davíðs Oddssonar af á komandi landsfundi í nóvember; að Sjálfstæðisflokkurinn verði þjóðhollur flokkur allra stétta eins og stofnað var til í upphafi.

Ólafur Ragnar þarf að bjóða sig fram enn einu sinni til að festa i sessi þá stefnu að almenningur sé ekki skattpíndur vegna brasks bankanna með sjóði og sparifé landsmanna. Hann mun eiga á brattann að sækja þar sem vinstri flokkarnir er studdu hann í upphafi munu snúast gegn honum með kjafti og klóm; vonandi hefur forsetinn kjark og úthald til að verða fulltrúi þjóarinnar þrátt fyrir mótbyrinn.WounderingHalo


Ríkisstjórnin skóþurrka spilltra stjórnvalda?

Er ekki þolinmæði almennings á þrotum gegn ráðalausri ríkisstjórn er virðast engin takmörk  hafa? Gengið  gróflega gegn kjörum lögreglumanna sem eiga að halda uppi lögum og reglu þegar í harðbakka slær. Það mun reynast þeim erfitt  með óréttlátan dóm gerðardóms á bakinu.

 Fleiri hafi orðið fyrir ranglátum gerðum "velferðarstjórnarinnar", er hefur  "stolist löglega" ofan í vasa eldri borgara eftir eftirlaunum þeirra - og löglega fengnu sparifé, heimilin með meðaltekjur eiga sífellt erfiðara með að ná endum saman; - hvað þá að geta greitt af lánum sínum. Þar fara börnin verst út úr umræddum aðstæðum, geta foreldra til að veita þeim þátttöku í tónlist og íþróttum verður afgangs en fer hljótt ; ef til vill vill fólk ekki láta fátæktina spyrjast um sig.

Að mati undirritaðrar  grefur reiðin sig sífellt dýpra í samfélaginu gegn stjórnvöldum; tímaspursmál hvenær upp úr sýður. 

Er ríkisstjórnin í raun skóþurrka spillts stjórnkerfis sem viðrist kúga almenning óáreytt sem aldrei fyrr?


mbl.is Íhuga að fjölmenna suður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Útgerð: – Pólitískar atkvæðaveiðar?“

 Skelegg grein  Páls Steingrímssonar, sjómanns í Fréttablaðinu í dag:  ‘‘ Útgerð til eins árs?‘‘ er athygli verð. Þar sýnir hann fram á fáránleika Þorvaldar Gylfasonar í stefnu um veiðar og rekstur í fiskveiðum. Stefna umrædds prófessors getur tæplega verið önnur en  þjóðnýting fiskveiða,  þá væntanlega reksturinn einnig - í pólitískum tilgangi,  sem yrði vatn á myllu Samfylkingarinnar í ‘‘atkvæðaveiðum‘‘ , deila og drottna árlega með ‘‘ fjöregg  þjóðarinnar‘‘ .

Stefnan er þegar hafin með aukningu sjávarútvegsráðherra á „gjafakvóta“  til báta í strandveiðum er höfðu selt burt kvótann eða höfðu engan áður, þeir strandveiðibátar er höfðu keypt sínar veiðiheimildir fengu ekkert en hafa  verið margoft skertir og  átt að fá úthlutað auknum heimildum. Hefði bætt rekstur þeirra því fastur rekstrarkostnaður þeirra er hár - þolir illa skerðingu;  stjórnvöld hafa sett marga þessara báta í þrot allt frá því að skerðing  hófs; þótt þeir hafi verið og  séu  uppistaðan í arðbærum rekstri smábáta, sérstaklega í smærri sjávarplássum.

 Þá hefur óhófleg fjölgun strandveiðibáta valdið lækkun á fiskverði til útflutnings og er það mjög vafasöm staða til lengri tíma í baráttu fyrir markaðssetningu  við aðrar fiskveiðaþjóðir.

Ólína Þorvarðardóttir,  varaformaður sjávarútvegsnefndar Alþingis sagði í viðtali á Bylgjunni fyrir nokkrum vikum að strandveiðin gæti orðið kaupauki fyrir kennara er hefðu langt sumarfrí frá starfi sínu; fáránleg launastefna  enda er ætlast til að kennarar sæki námskeið yfir sumarið til að bæta þekkingu sína.

Þá hefur heyrst að söngvarar og sjoppueigendur  hyggist bæta kjör sín með strandveiðum;  fá áfram gjafakvóta frá núverandi ríkisstjórn, ekki annað séð en hér séu pólitískar atkvæðaveiðar ríkisstjórnarinnar markmiðið.

Grein Páls Steingrímssonar, sjómanns ættu flestir að lesa; sýnir  með skýrum hætti stefnu ríkisstjórnarinnar í fiskveiðum hér við land.

 

 


Lík í lestinni?

  Framtíð Sjálfstæðisflokksins mun ráðast af næsta landsfundi. Þótt skipt hafi verið um formann eftir efnahagshrunið 2008 hefur ekki orðið endurnýjun í forystu- og þingmannaliði flokksins enn sitja þeir sem  eru  tengdir umræddu hruni og óhóflegum kosningastyrkjum með einum eða öðrum hætti. Sumir hverjir mjög áberandi í fjölmiðlum og umræðum sem aldrei fyrr; eins og ekkert hafi gerst.

Umrætt fólk  er vel menntað og hæfileikaríkt, en hefur  lifað sjálft sig í stjórnmálum fyrir Sjálfstæðisflokkinn af umræddum ástæðum; getur átt góða framtíð fyrir land og þjóð á öðrum vettvangi. 

Næsta kosningabarátta verður hörð og óvægin sem aldrei fyrr,  Sjálfstæðisflokkurinn liggur vel við höggi, sat við völd í efnahagshruninu- og hafði setið lengi.Við bætist að ekki hefur farið fram uppgjör innan flokksins og að umrætt fólk dragi sig út úr stjórnmálum.

Forysta flokksins gekk í berhögg við samþykkt síðasta landsfundar, lýsti yfir stuðningi við greiðslu Icesaveskuldarinnar;  en skuldinni  samt sem áður hafnað af miklum meirihluta Sjálfstæðismanna - og þjóðarinnar.

Flokknum er nauðsyn  á að ganga heill til leiks með nýtt fólk og  forystu er getur leitt flokkinn með þeim gildum er hann stendur fyrir;  flokkur allra stétta: Atvinnurekenda, bænda, launamanna, eldra fólksins, yngra fólksins – og velferðarkerfi er þjónar þeim er veikt standa og þurfa hjálp.

Sjálfstæðisflokkurinn, stærsti stjórnmálaflokkur landsins getur ekki í lagt upp í nýja vegferð - með lík lestinni.  Woundering

''Fárviðri í fjölmiðlum''

IMG_0080

Gunnólfsvíkurfjall: Blíðudagur á Bakkafirði í ''óveðursspá''

Þá er verslunarmannhelgin liðin hjá með tilheyrandi útihátíðum í sól og regni. Undirrituð leggur til að norska veðurstofan verði fengin til að spá veðri vikuna fyrir næstu ''verslunarmannavertíð'' en veðurspámenn hér á landi verði í sumarfríi á meðan. Undarlegt að heyra og sjá veðurspár hér á landi þegar líður að umræddri helgi; þar sem engin veit almennilega  hvort verður regn eða sól.( -Eða þorir ekki að spá-)

 Skemmtanaiðnaðurinn virðist keppast við að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í fjölmiðlum því hvergi má rigna   umrædda helgi. Stundum mátti sjá regndropa í öllum landshlutum þótt vitað sé að tæplega rigni í suðvestanblæ og sólskini austur á Fljótsdalshérað, svo dæmi sé tekið.

Þá var mikið gert úr kuldanum á Norðausturlandi í sumar þótt oft væri gott veður þrátt fyrir kulda um nætur. Ekki voru allsstaðar tún kalin,  oftast góðar gæftir og fiskaðist ágætlega. Spretta verður með seinna móti en ekki heimsendir á ferðinni - ef til vill hafa fleiri byggðarlög svipaða sögu að segja þótt ekki rati hún í fréttir  fjölmiðla um veðurfar.

(Myndin er tekin í sumar þar sem undirrituð dvaldist á Bakkafirði. (í júní til 15. júlí)


Til hamingju Norðurþing

Verðskuldaður sigur hjá Norðurþingi eftir harða baráttu engin vafi að sterkara liðið vann að lokum. Mistök stjórnenda þáttarins komu ekki að sök sem betur fer fyrir þá; en þeir hefðu getað beðist velvirðingar en gerðu það ekki, hvers vegna? Norðurþing hefur staðið sig vel í allan vetur og þeir þættir er helst ekki mátti missa af ef þeir voru með, skemmtilegt lið.
mbl.is Norðurþing sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aprílgabb - eða gróðabrask.

Nýstárleg frétt hljómar líkt og aprílgabb ótrúlegt að hingað koma ríkisbubbar aðeins að bjarga efnahagslífinu; eða eru peningar að verða uppspretta náungakærleikans, ótrúlegt? Sjá umræddir aðilar ekki hag í að kaupa eignir og fyrirtæki á brunaútsölu sér til hagnaðar. Ef stjórnvöld fara út í beinlínis að selja íslenskan ríkisborgararétt; hvar á þá að setja mörkin? Undirrituð telur tæplega Róbert Marshall þann allra trúverðugast til að leiða málið til lykta. Eru þeir hjá Kastljósi enn með gullstjörnur í augunum svipað; -   þegar bankastjórar einkabankanna voru reglulega mærðir sem bjargvættir Íslands á ''gullárunum fyrir hrun''?


mbl.is Umsóknirnar afgreiddar í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannleikurinn á borðinu

Fjárhagsvandi Orkuveitu Reykjavíkur er átti að vera leystur er aldrei meiri en nú; ef til vill ljósið í myrkrinu að forstjórinn lagði spilin á borðið að því er virðist. Svo langt hefur sukk Orkuveitunnar gengið að veitan hefur ekki traust erlendra viðskiptabanka sinna er hafa lánað til hennar fé. Forstjórinn upplýsti að fyrir lægi hjá lánardrottnum bág fjárhagsstaða þar með allt lánstraust horfið.

Svo kemur borgarfulltrúi Reykjavíkur Kjartan Magnússon og kennir um uppsögn lykilstarfsmanna Orkuveitunnnar og ógætileg ummæli er valdi slæmum áhrifum á viðhorf erlendra banka. Er meiningin að halda áfram laumuspili um illa rekið fyrirtæki, er ætti að miða reksturinn við almannahag?

Borgarfulltrúinn stingur höfðinu í sandinn, vill ekki horfast í augu við vandann, allt reynt til að halda ''pólitísku andliti'' er borgarbúar höfnuðu í síðustu kosningum.ShockingHalo   (Fréttablaðið í dag, 4)


mbl.is Stefndi í sjóðþurrð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkuveitan - toppurinn á ísjakanum?

Er fjármálasukk/tap Orkuveitu Reykjavíkur aðeins toppurinn á ísjakanum af efnahagshruni þjóðarinnar. Enn ein húsleitin í Lúxemborg í dag, kom í ljós  á síðustu metrunum fyrir hrunið 2008 lánaði Kaupþing fleiri milljarða lán frá Seðlabanka Íslands; einhverju fjármálafyrirtæki er sendi milljarðana til Tortúla? Eftir meira en tvö ár kemur framangreint ljós; síðan gæti ríkisstjórnin fengið í fangið fleiri hundruð milljarða hækkun á Icesave ef lögin þar um verða ekki felld.

Pólitísk ríkisstjórn situr við völd þar sem annar hrunflokkurinn, Samfylkingin hefur tögl og haldir; vinstri grænir valdalausir. Er það þess vegna sem svo hægt gengur að fá fram þó ekki væri nema málssókn á einn bankaræningja úr hruninu?

Afar brýnt að fá utanþingsstjórn; vonandi verður það veruleiki ef við berum gæfu til að segja nei við Icesave.

Fellum lögin um Isesave III, krossum við nei!


mbl.is Starfsmönnum fækkað um 90
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsti formaður flokksins?

Verður Tyggvi Þór Herbertsson næsti formaður Sjálfstæðisflokksins kemur fram fyrir flokkinn í flestum fréttum? Hagfræðingurinn er taldi allt í besta lagi rétt fyrir hrunið, staddur í Bandaríkjunum með Geir H. Haarde þáverandi forsætisráðherra. Er hagfræðingurinn yfirleitt marktækur í fjármálum?

 

 

Upprifjun úr bloggi 26. mars 2011

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður, hagfræðiprófessor, fræðimaður við Háskóla Íslands og fyrrverandi aðstoðar maður Geirs H. Haarde, forsætisráðherra ætti ekki að koma fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, flokknum til framdráttar. Var það ekki Tryggvi Þór Herbertsson er samdi margfræga skýrslu ásamt  Mishkins, prófessor við Columbíaháskóla?  


mbl.is 53% af Icesave greiðist í ár og á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mútustarfsemin heldur áfram?!

Markviss stefna Samfylkingar heldur áfram; að ryðja öllum hindrunum úr vegi fyrir inngöngu í ESB nú á að ryðja áhrifum landbúnaðar úr vegi með því að leggja niður Landbúnaðraráðuneytið. Samþykkt flokksráðs Vinstri grænni þverbraut samþykkt sína um aðlögunarstyrki frá ESB: ...Ef ég held áfram með ESB þá var samþykkt á flokksráðsfundi að sækja ekki um IPA- styrki sem eru klárir aðlögunarstyrkir. Það er hins vegar gegnið þvert á það. Með þeim er verið að kaupa velvild innan fræðasamfélagsins, þar sem massívur áróður í gangi...

Atli Gíslason í Fréttablaðinu 26 mars, 18.


mbl.is Á móti stjórnarráðsfrumvarpinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi - Ríkisstjórn - Háskólinn - Fjölmiðlar - Brugðust!

...Stjórnmálamenn vanræktu margvíslegar skyldur sínar og brugðust ábyrgð sinni gagnvart almenningi... Vald einstakra ráðherra kom í veg fyrir að upplýsingaflæði yrði innan ríkisstjórnarinnar. Afleiðingin var vanmat á aðstæðum og aðgerðarleysi sem varð þjóðinni dýrkeypt...  ... Íslensk stjórnmálamenning hefur einkennst um of af átökum og kappræðu þara sem sanngildi staðhæfinga er lítilvægt í rökræðu og sjálfstæðis löggjafans gagnvart framkvæmdarvaldinu.Það voru ekki aðeins eftirlitsstofnanir er brugðust hlutverki sínu heldur einnig sú stofnun sem framar öðrum á að gæta almannahagsmuna - Alþingi.
... Fjölmiðlar áttu stóran þátt í að móta og viðhalda velgegni íslensks fjármálalífs. Háskólamenn hefðu getað lagt meira að mörkum í opinberri umræðu á grundvelli sérþekkingar sinnar... Móttökuskilyrði fyrir gagnrýni og þöggun jafnvel beitt, enda almenn ánægja með framgang fjármálamanna í að draganda bankahrunsins...
(Rannsóknarskýrsla Alþingis 8.h bls 243)
Ætla framgreindar stofnanir að stuðla að þvi að almenningur greiði Icesave III - stefna efnahag almennings í gjaldþrot? Auk þess er það brot á stjórnarskránni að setja ótilgreinda upphæð/ skuld í ríkisábyrgð!

Stormur í vatnsglasi?

Með allri virðingu fyrir umhverfisvernd hafa  fréttir af verksmiðju Bercromal við Eyjafjörð  af mengun  verið í æsifréttastíl; ekki lausar við ''pólitíska vinstri mengun'' er minnir fremur á umhverfisiðnað en vernd. Umhverfisráðherra kom í Kastljós RÚV og lýsti áhyggjum sínum; ætlað að skoða málið og sjá um að ekki yrði frekari eyðilegging af völdum verksmiðjunnar; ekki var minnst einu orði á hvað verksmiðjan væri mikilvæg sem vinnustaður.  

Stormur í vatnsglasi eða - ''allt er hey í harðindum'' hjá stjórnlausri vinstri stjórn''.WhistlingHalo

 


mbl.is Ekki hærra sýrustig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skortir traust og trúverðugleika?

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður er ánægður með samþykkt Icesaveskuldarinnar að þjóðin eigi að borga og bera ábyrgð á fjárglæframönnum framtíðarinnar. Er í samræmi við sannfæringu hans er hann fór sem aðstoðarmaður með Geir H. Haarde til Bandaríkjanna rétt fyrir hrun og dró fram ''jákvæðu þættina'' á efnahag einkabankanna að mati Geirs Zoega, hagfræðiprófessors; þá tapaðist dýrmætur tími til að taka á fyrirsjáanlegu hruni einkabakanna.  Hefur sannfæring Tryggva Þórs um að þjóðin greiði umrædda skuld meira gildi nú; en álit hans rétt fyrir hrun? Eftirfarandi blogg er skrifað (6.02.11), rétt að rifja upp öllum til umhugsunar um trúverðugleika Tryggva Þórs Herbertssonar áður en gengið verður í kjörklefann 9. apríl:

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður, hagfræðiprófessor, fræðimaður við Háskóla Íslands og fyrrverandi aðstoðar maður Geirs H. Haarde, forsætisráðherra ætti ekki að koma fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, flokknum til framdráttar. Var það ekki Tryggvi Þór Herbertsson er samdi margfræga skýrslu ásamt  Mishkins, prófessor við Columbíaháskóla?  

 Báðir höfundarnir tóku  tóku þátt í fundum með íslenskum stjórnmálamönnum og forsvarsmönnum bankanna á erlendri grundu til að fylgja  boðskap skýrslunnar eftir...  Aðeins jákvæðu þættirnir voru dregnir fram að mati Geirs Zoega, forseta hagfræðideildar HÍ og hafi skýrslan sennilega þau áhrif að íslensku bankarnir áttu greiðari aðgang að fjármagni erlendis, stækkuðu enn frekar og glataðist mikilvægur tími til að taka á vandanum(fyrir hrun). (Rannsóknarskýrslan8.h. bls.214.)

Tryggvi Þór Herbertsson viðist enn vera einn helsti álitsgjafi Sjálfstæðisflokksins, sat á fremsta bekk á fundi formanns Sjálfstæðisflokksins í gær og hefur haldið fyrirlestra fyrir flokkinn.Tryggvi Þór Herbertsson er  siðferðilega skyldugur að draga sig út úr sviðsljósi stjórnmálanna; ekki boðlegt af RÚV að bjóða upp á hann sem helsta álitsgjafa Sjálfstæðisflokksins.Tryggvi Þór Herbertsson er velmenntaður maður og allir vegir færir í öðrum störfum; en hann hefur skaðað trúverðugleika sinn sem þingmaður og álitsgjafi fyrir stjórnmálamenn.      

 


mbl.is Vissi ekki af auglýsingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómerkileg framkoma!

Ekki gat Árni Páll Árnason, viðskiptaráðherra stillt sig  um þá hótun að gjaldeyrishöftin yrðu lengri ef Icesave yrði fellt, á Stöð 2 i kvöld; engin rök fylgdu enda eru þau engin. Ómerkileg  framkoma af ráðherranum að nota gjaldeyrishöftin sem hótun; hræddur um að það hafi áhrif á inngöngu í ESB.

Allt er notað til að hóta þjóðinni að vilja ekki borgaskuldir óreiðumanna í framtíðinni ef eitthvað fellir þjóðina í áliti er það ef við samþykkjum að ganga undir kröfur Breta og Hollendinga; algjörlega ólöglegar innheimtur.

Kæmi heldur ekki að sök þótt þjóðinni hefði gjaldeyrishöftin tveimur árum lengur eða svo; skiptir meira máli að láta ekki undan óábyrgu fjármálakerfi og greiða skuldir þeirra í framtíðinni; það getur fellt fjárhag okkar um alla framtíð. AngryHalo

Segjum nei, nei nei við Icesave 9. apríl.


mbl.is 56% segja ætla að styðja lögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höftin - illskásti kosturinn

Gjaldeyrishöftin eru illskásti kosturinn vegna þess að þjóðin hefur lifað um efni fram  hefur ekki áttað sig  ennþá. Loksins þorði Árni Páll Árnason, viðskiptaráðherra  að taka þátt í erfiðri ákvörðun er örugglega verður umdeild. Gæti skapað jafnvægi þegar fram í  sækir, fólk verður að hætta að veita sér óþarfa innflutning;  - og reka fyrirtæki með ráðdeild og hagnaði. Hins vega gæti Árni Páll lækkað bensínið er nemur a.m.k. umhverfisgjaldinu í það minnsta  hefði góð áhrif á almannahag. Ef Svanhvít Svavarsdóttir, umhverfisráðherra  getur ekki samþykkt það þá  er að reka Vinstri græna úr ríkisstjórn og mynda nýja stjórn - eða utanþingsstjórn.

Nú er boltinn hjá Árna Páli; hvað ætli hugrekkið nái langt í hans ranni? CoolHalo


mbl.is Höft til 2015
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna forsætisráðherra: Ræna eldri borgara?

Smáglufa fyrir Jóhönnu, forsætisráðherra að geta rænt eldri borgar frekar með lagasetningu er helst eiga skuldlausar eignir. Ekki nægilegt fyrir hana að hafa skert kjör þeirra u 20%, fjrámagnstekjur 20%,  skattlagt  verðbætur á verðtryggðu sparifé, 20%. Hefur góðan stuðning innan raða Vinstri grænna, Árni Þór Sigurðsson þingmaður þeirra lét út sér á fundi hjá eldri borgurum, '' þeir lægju svo vel við höggi gætu illa varið sig'', auðvelt að taka af þeim fjármuni sína.

Velferðarstjórnin kann ekki að skammast sín.ShockingHalo

 

 

 


mbl.is Tryggingagjald lækki en auðlindagjald hækki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband