Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
17.1.2008 | 14:06
Árás á sjávarútveginn - mannréttindabrot?
Með tilkomu skipa og togara hefur sjávarútvegur staðið undir framförum/menntun og velmegun hér á landi. Er ennþá dýrmætasti atvinnuvegurinn hvað varðar tekjur í þjóðabúið. Með kvótakerfinu voru veiðiheimildir takmarkaðar til að vernda fiskistofnana og nýta það sem er til skiptanna með hagkvæmum hætti. Kvótanum var úthlutað eftir meðaltali veiða í þrjú ár á undan til að grundvöllur rekstursins yrði viðunandi. Minna kom í hlut allra bæði útgerðar og sjómanna. Með þessum aðgerðum má samt halda fram að útgerðin hafi bætt verðmæti aflans með betri meðferð og nýtingu.
Þingmaðurinn kemur ekki með neinar hugmyndir um hvernig bæta megi kvótakerfið æpir aðeins gjafakvóti! Hvað sem það nú merkir? Fiskveiðiheimild útgerðar er réttur til handa þeim sem veiða fiskinn. Það er undirstaða rekstursins að skip/bátur hafi kvóta sem rekstrargrundvöll. Þess vegna er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir að hér er ekki um gjafakvóta að ræða heldur er hann undirstaða reksturs þegar veiðin hefur verið takmörkuð.
Með kvótakerfinu var leyft að framselja hluta kvótans til hagræðingar ef ef t.d. einhver fiskitegund var uppurin samkvæmt kvóta þá varð að fá viðbót svo hægt væri að veiða þær fisktegundir sem óveiddar voru hjá viðkomandi útgerð. Þessi aðgerð var áhjákvæmileg. Þeir sem áttu umframkvóta í einhverri tegund urðu að fá greitt fyrir hann vegna eigin reksturs. Hins vegar mætti endurskoða þetta atriði ef til vill minnka hlutfall óveidds kvóta til framsals að vel athuguðu máli.
Álit mannréttindanefndar SÞ getur tæplega verið úrskurður í svo stóru máli varðandi rekstur sjávarfyrirtækja og fiskveiðar á Íslandsmiðum. Hvað þá að sé hægt að setja Íslenska ríkið í sama flokk og bananalýðveldi úti í heimi. Þá vitnar þingmaðurinn/lögmaðurinn í Þorgeir Ljósvetningagoða þar sem hann vildi hafa ein lög í landinu. Hvað á Þingmaðurinn við? Ekki var þá verið að skipta veiðiheimildum til hagsbóta fyrir þjóðina. Heldur urðu siðaskipti og reynt að innleiða mannúðlegri samskipti milli fólks sem urðu samofin þeim lögum sem voru áður í heiðnum sið.
Lög um fiskveiðistjórnun eru allt annar eðlis í nútíma samfélagi. Eru til þess ætluð að þessi mikilvæga auðlind geti skapað sem mestar þjóðatekjur. Undirrituð telur að kerfið þurfi eftirlit og breytingu að vel ígrunduðu máli. Engu að síður þarf meginreglan að vera að útgerðin hafi umráð yfir kvótanum til að reka fyrirtækið eins og önnur fyrirtæki í landinu. Hvað á þingmaðurinn við með þjóðasátt.? Er meiningin að reka fiskveiðistefnu með rússnesku ríkisfyrirkomulagi eða leyfa öllum að veiða úr takmarkaðri auðlind? Vel mætti hugsa sér að hinn vitri Þorgeir Ljósvetningagoði hefði þá mælt fyrir munni sér í dag: Með lögum skal land byggja og ólögum eyða".
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.1.2008 kl. 15:12 | Slóð | Facebook
16.1.2008 | 00:37
Kvóti/ rekstur – og mannréttindabrot
Ef málið heldur áfram fyrir dómstólum þá koma upp spurningar eins og hvort lög um sameign þjóðarinnar á fiskimiðunum standist stjórnarskrá. Með samþykkt laga um kvótakerfið var veiði takmörkuð og skert verulega er það samkvæmt stjórnarskrá um atvinnurekstur? Auk þess búum við ekki við rússneskt stjórnkerfi þar sem ríkið einokar atvinnurekstur og lífsafkomu fólks. Umrædd lög voru réttlætt/réttmæt út frá verndum fiskistofna sem var óhjákvæmilegt/umdeilt en breytir ekki því að rekstur varð mjög erfiður, margir urðu að hætta, fengu smánarlegan úreldingastyrk í staðinn; einungis til setja löglega byggingu undir kerfið.Öll útgerð varð fyrir miklum skakkaföllum og sérstaklega trilluútgerð.
Jákvæða hliðin á rekstri trilluútgerðar varð þó sú, að bátarnir sameinuðust, urðu stærri rekstrareiningar, reksturinn leit betur út þrátt fyrir allt. Ekki stóð friðurinn lengi. Fyrst og fremst fyrir atfylgi Krata í ríkisstjórn með Sjálfstæðismönnum varð kvótinn skertur um 30%. Hafði þau áhrif í sjávarbyggðum að fólk missti lífsafkomun og flutti burt.
Nú endurtekur sagan sig um kvótaskerðingu. Enn rísa Kratar/Samfylking upp, komast í ríkisstjórn; kvótinn skertur aftur um 30%, sem ekki getur talist eingöngu til að vernda þorskinn um það eru deildar meiningar. Afleiðing þessarar skerðingar er ekki enn kominn í ljós. Sjómenn og verkafólk eru að missa atvinnuna vítt og breitt um landið; byggðirnar missa skatta og hafnargjöld sem eru undarstaðan í rekstri viðkomandi byggðarlags. Ekki sér enn fyrir hversu eyðing byggða verður mikil - en er eyðing byggða ekki mannréttindabrot?
Umræður um mótvægisaðgerðir eru út lofið. Ef ekki er öflugur atvinnurekstur í sjávarbyggðum í landinu þá verður fræðslu/menningu og þjónustustigi ekki haldið uppi af ríkisvaldinu.
Hugtakið mannréttindi nær til allra - er það ekki mannréttindabrot að ráðast á rekstur og vinnu/lífsbjörg fólks með lagasetningu ríkisvaldsins eins og hér hefur verið lýst?
Það er hollt að skoða þessa aðför að útgerðum, sjómönnum og verkafólki í sjávarbyggðum landsins; um leið og moldviðrið um úrskurð mannréttindanefndar SÞ er í umræðunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook
9.1.2008 | 17:25
Skipan héraðsdómara - pólitískar ofsóknir?
Áfram heldur umræðan um skipum héraðsdómara. Nýjasta hugmyndin er að Alþingi ráði héraðsdómara með 2/3 hluta atkvæða. Seint mun slík samstaða nást enda er þingið tæplega vettvangur til að útkljá slík mál. Valnefnd hefur kosið að raða umsækjendum í goggunarröð eftir hæfni sem ekki telst vera pólitísk; en hlýtur að orka tvímælis þar sem ekki virðast neinar reglur um hvaða hæfni sé hæst metin. Ef viðkomandi umsækjandi hefur öll tilskilin réttindi til embættis héraðsdómar og fullnægjandi reynslu; þá er það ráherrans að gera út um málið lögum samkvæmt. Hvers vegna ætti valnefnd að ráða hver fær embættið þar sem lög kveða ótvírætt á um að ráðherrann skuli taka ákvörðun um hver fær dómarastöðuna þótt viðkomandi sé sonur Davíðs Oddssonar? Mér finnst þessar pólitísku ofsókir á hendur Þorsteins Davíðssonar vera til háborinnar skammar svo ekki sér meira sagt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook
21.12.2007 | 18:21
Þorláksmessa á sunnudaginn.
Gott með skötunni: Þorlákur Þórhallsson var kjörinn biskup í Skálholti árið 1178 í kaþólskum sið. Fór utan ári síðan til vígslu. Eftirfarandi umsögn er úr vígslu hans: Biskup hæfir að sé, sagði hann, lastvar og lærður vel, dramblaus og drykkjumaður lítill, örlátur, skýr og skapgóður, góðgjarn og gestrisinn, réttlátur og ráðvandur, hreinlífur og hagráður, ávítasamur við órækna, og má sjá að það að það er heilags manns að vera með þeim hætti." (Árni Björnsson: Saga daganna) Má segja að umsögn erkibiskups hafi gegnið eftir.
Eftir vígslu varð Þorlákur stjórnsamur um mál kirkjunnar og skírlífi manna. Ástsæll af alþýðum manna vegna mildi sinnar við hana. Fljótlega efir andlát Þorláks urðu teikn um kraftaverk ef á hann var heitið. Leyfði þá Páll biskup í Skálholti að að heitið væri á Þorlák. Andlátsdagur Þorláks 23. desember var lögleiddur sem Þorláksmessa árið 1199.
Samkvæmt kaþólskri trú er Þorlákur helgi verndardýrlingur Íslands og fyrstur hérlendra manna sem tekinn var í töl dýrlinga þó ekki væri því lýst af Rómarbiskupi fyrr 14. janúar 1984, er Jóhannes Páll páfi II lýsti heilagan Þorlák Verndardýrling Íslands.
Tekið af heimasíðu Kaþólsku kirkjunnar:
Þorláks helga, sem er verndardýrlingur Íslands, er minnst tvo daga ársins hér á Íslandi. Í 20. júlí, er hátíð upptöku heilags dóms hans og 23. desember er andlátsdagur hans.
Þorlákur fæddist á Hlíðarenda í Fljótshlíð. Hann hlaut góða menntun í Odda á Rangárvöllum, en þangað fluttist hann. Hann virðist hafa tekið prestvígslu, áður en hann náði tvítugsaldri.
Biskupsembættið reyndist Þorláki ekki auðvelt. Yfirleitt voru prestarnir illa undir embætti sitt búnir. Þorlákur reyndi að bæta þar um.
Margir af hinum fyrri biskupum og prestum voru kvæntir, og prestar virðast hafa talið eðlilegt að taka sér konu. Þorlákur kvæntist aldrei.
Hann lagði mikla stund á bænagerðir og föstur. Á hverjum morgni las hann Maríutíðir og bað fyrir biskupsdæmi sínu.
Eftir 15 vetur á biskupsstóli hyggst Þorlákur hverfa aftur í klaustur sitt. Ekkert varð þó úr þeirri fyrirætlun, því að um það leyti tók hann þá sótt sem leiddi hann til dauða. Eftir hann dó (1193) var hárið hans skorið og varðveitt sem helgur dómur!
Fjórum vetrum eftir andláts Þorláks vitjaði hann í draumi prests eins fyrir norðan og mælti svo fyrir um, að líkami sinn skyldi tekinn úr jörðu og með áheitum prófað, hvort því fylgdi einhver heilagleiki. Presturinn sagði Brandi biskupi á Hólum draum sinn, og fleiri bættust við, sem höfðu orðið fyrir svipaðri reynslu.
Heimildir eru um varðveislu Þorláksskríns í Skálholti allt til loka 18. aldar. Þá var kirkjan rifin 1802 og voru seldir á uppboði ýmsir kirkjugripir meðal annars Þorláksskrín.
Þorlákur var fyrsti Íslendingurinn, sem var tekinn í tölu dýrlinga, þó að því væri ekki lýst yfir í Róm. En hinn 14. janúar 1984 lýsti hinn heilagi faðir, Jóhannes Páll páfi, Þorlák verndardýrling Íslands.
Sú venja að leita til og heiðra þá sem helgir teljast á himnum hefur lifað með kristnum mönnum frá upphafi. Er það ríkur þáttur í helgihaldi kaþólsku kirkjunnar svo og austurkirkjunnar. Þorlákur er nú á himnum, og við ættum að leita liðsinnis hans.
Við getum einnig látið fordæmi hans verða okkur til gagns. Hann var dæmi um mann, sem gerði sér far um að lifa í samræmi við kenningar Krists og náði langt í þeirri viðleitni.
Þorlákur helgi, bið fyrir oss.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook
21.12.2007 | 14:26
Sonur Davíðs velkominn til Austurlands
Ráðherra skipar samkvæmt lögum en hefur matsnefnd sér til hliðsjónar og metur álit hennar hverju sinni. Hvers vegna ætti matsnefndin að ráða því hver er ráðinn af þeim sem koma til greina? Umræddur Þorsteinn Davíðsson er velkominn í heimabyggð mína á Austurlandi.
19.12.2007 | 20:39
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi: Maríubæn
María Guðsmóðir hefur á öllum tímum orðið tilefni skáldskapar. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi orti fagurlega kvæðið Maríubæn þar sem hann dregur fram mynd Maríu; um leið og hann viðurkennir brot sín sem hann vill bæta fyrir með iðrun í bæn og tilbeiðslu eins og hann segir sjálfur: Hreinsa mig í helgum lindum/ af hatri og syndum.
Kvæðið Maríubæn verður um leið boðskapur til hins ófullkoman og synduga mannkyns sem í bæn og tilbeiðslu biður um frið og bræðralag á jörðu meðan það bíður Frelsarans Jesú Krists.
MARÍUBÆN
I
Til þín særðar sálir flýja,
sancta María.
Þig elska og dýrka allar þjóðir,
eilífa móðir.
Ég sé þig koma í hvítum feldi
með kórónu úr eldi
og breiða faðminn milda mjúka
móti þeim sjúka.
Að fótum þér ég fell með lotning
friðarins drottning.
II
Ég hef öll þín boðorð brotið,-
bölsöngva notið,
öllum þínum gjöfum glatað,
guðsþjóna hatað,
samviskuna svæft og falið,
syndarann alið.
III
Til þín særðar sálir flýja,
sancta María.
Hreinsa þú mitt hjarta móðir,
við heilagar glóðir.
Hreinsa mig í helgum lindum
af hatri og syndum.
Gef mér styrk og von og vilja
og vit til að skilja.
Lát mig fagna alltaf yfir
öllu, sem lifir,
og alltaf nálgast eldinn bjarta
með auðmjúku hjarta,
kveljast með þeim köldu og þjáðu,
kyssa þá smáðu.
Gef mér ást til alls hins góða,
til allra þjóða.
Gef mér sól og söngva nýja,
sancta María.
(Davíð Stefánsson: Svartar Fjaðrir, bls. 195)Samkvæmt kaþólsku kirkjunni er María, móðir Krists, móðir kirkjunnar. Undirrituð fann samhljóm í kvæði Davíðs (Maríubæn) og hvernig kaþólska kirkjan lítur til Maríu. Undirrituð tók eftirfarandi úr Trúfræðsluriti Kaþólsku Kirkjunnar frá heimasíðu hennar á internetinu og leyfir sér að birta það til íhugunar á Aðventunni með kvæði Davíðs í huga:
III. MARÍA - ÍKON KIRKJUNNAR VIÐ HEIMSSLIT
972. (733, 829, 2853) Eftir að hafa fjallað um kirkjuna, uppruna hennar, erindi og hlutskipti, er engin önnur betri leið að ljúka þessu en að líta til Maríu. Í henni íhugum við hvað kirkjan er nú þegar í leyndardómi sínum á sinni eigin pílagrímsför trúarinnar og hvað hún muni verða í föðurlandinu að lokinni vegferð sinni. Þar bíður hún sem kirkjan vegsamar sem móðir Drottins síns og sín eigin móðir í dýrð hinnar alheilögu og óskiptanlegu þrenningu, í samfélagi allra heilagra. [132] Í millitíðinni er móðir Jesú, dýrleg gerð á líkama og sál, mynd og upphaf kirkjunnar eins og hún mun fullkomin verða í hinum komandi heimi. Sömuleiðis skín hún sem sól hér á jörðu þar til sá dagur rennur upp að Drottinn kemur, tákn um örugga von og huggun Guðs lýðs sem er pílagrímur. [133]Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2007 kl. 13:39 | Slóð | Facebook
15.12.2007 | 21:49
Biblía 21. aldar: Lofsöngur Sakaría
Lofsöngur Sakaría Lúk 1.67- 1.80
67En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift:
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels,
því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn hjálpræðis
í húsi Davíðs þjóns síns
70eins og hann talaði fyrir munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum
og úr höndum allra er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum miskunn
og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina
og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn, munt nefndur verða spámaður Hins hæsta
því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu
sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors.
Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim sem sitja í myrkri og skugga dauðans
og beina fótum vorum á friðar veg.
80En sveinninn óx og varð þróttmikill í anda. Hann dvaldist í óbyggðum til þess dags er hann skyldi koma fram fyrir Ísrael.
Góða helgi

9.12.2007 | 00:11
Biblía 21. aldar: Fæðing Jóhannesar skírara.
Sakaría prestur var samtímamaður Heródesar konungs. Eitt sinn þegar hann var staddur í musterinu birtist honum engill Drottins. Sendiboðinn tjáði honum að Sara kona hans myndi fæða son og skyldi Sakaría láta sveininn heita Jóhannes. Jóhannes varð fyrirrennari Krists boðaði komu hans eins og spáð hafði verið. Sakaría trúði ekki orðum sendiboðans og varð mállaus vegna þess.
Fæðing Jóhannesar (Lúk 1.57- 1.66)
57Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. 58Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni og samfögnuðu henni.
59Á áttunda degi komu þeir að umskera sveininn og vildu þeir láta hann heita Sakaría í höfuðið á föður sínum. 60Þá mælti móðir hans: Eigi skal hann svo heita heldur Jóhannes.
61En þeir sögðu við hana: Enginn er í ætt þinni sem heitir því nafni. 62Bentu þeir þá föður hans að hann léti þá vita hvað sveinninn skyldi heita.
63Hann bað um spjald og reit: Jóhannes er nafn hans, og urðu þeir allir undrandi. 64Jafnskjótt laukst upp munnur hans og tunga. Hann fór að tala og lofaði Guð. 65En ótta sló á alla nágranna þeirra og þótti þessi atburður miklum tíðindum sæta í allri fjallbyggð Júdeu. 66Og allir, sem þetta heyrðu, festu það í huga sér og sögðu: Hvers má vænta af þessu barni? Því að hönd Drottins var með honum.
Góða helgi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook
8.12.2007 | 14:32
Breiðuvíkurdrengur
Elie Wieasel (1978) skrifaði frásagnir um Helför nasista : Til að vera teknir trúanlegir urðu sögumenn að segja hálfan sannleikann. Enginn gat trúðað hinum raunverulega hryllingi sem átti sér stað í samfélagi nasista þar sem köld skynsemishyggja og vísindahyggja átti að leysa vandamáls heimsins með þúsund ára ríki Hitlers. Sama sjónarmiðið kemur fram í bókinni Breiðuvíkurdrengur þegar Páll reynir að segja frá hörmungum sínum. En eru svo fjarri því sem hægt er að ímynda sér um þá hraksmánarlegu meðferð er átti sér stað í Breiðuvík. Dietric Bonhoffer, þýskur prófessor er var myrtur/pyntaður í fangabúðum nasista lét eftir sig frásagnir úr fangabúðunum leggur áherslu á að enga lausn sé að finna í syndugum heimi nema að öðlast einlægan vilja til að feta fótspor Krists. Ennfremur segir hann að til að svo megi verða þurfi að eiga sér stað ferli þar sem bæn um iðrun og breytingu til batnaðar eigi sér stað. Þá telur Bonhoffer að við getum öðlast hina dýrmætu náð Guðs; til að hafa áhrif á uppbyggingu samfélags með kristin gildi/mannúð að leiðarljósi.
Allir ættu að lesa bókina Breiðuvíkurdrengur þar sem mannvonska, líkamspyntingar og kynferðislegt ofbeldi gegn börnum var daglegt brauð þessara hraksmáðu drengja samfélagsins. En átti þó að verða hið fullkoman uppeldi af upplýstu menntuðu samfélagi/manni" þar sem mælikvarði mannsins er allt sem þarf. Vonandi tekur nútíma neyslusamfélag, það besta í heim hér, mið af kristnum gildum í enn ríkari mæli í samfélagi framtíðarinnar. Þar sem hver maður er dýrmætur í augum Guðs.Tæplega getur umrædd breyting eingöngu átt sér stað með tilskipunum að ofan frá menntamálaráðherra og biskupi. Markviss hreinskilin/kærleiksrík umræða um betra velferðasamfélag þarf að fara fram. Þar sem kirkjan ekki síður en hið veraldlega vald þarf að horfa inn á við með gagnrýnu sjónarhorni svo brotasaga um Breiðvíkurdrengina fái ekki sífellt nýja birtingarmynd í samfélaginu hér og nú.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook
6.12.2007 | 13:26
Mála sig út í horn
Vinstri grænir virðast mála sig markvisst út í horn í viðleitni til atvinnuuppbyggingar; um leið framfarir sem eftir fylgja bæði fyrir sunnan og norðan. Nefna má uppbygginu í Keflavík. Þá má nefna andstöðu við virkjanir þar sem umræðan um náttúrvernd er ekki í neinum tengslum við raunveruleikann að því er virðist. Auðvitað vilja allir vernda náttúruna en eru jafnframt nauðbeygðir til að nota hana sér til lífsviðurværis. Það er raunhæfur kostur að virkja háhitasvæði og fallvötn. Eru þær auðlindir sem við höfum okkur til framfæris í þessu landi. Raforkuframleiðsla er vistvænn kostur til framleiðslu á t.d. áli til ýmissa nota.
Erfið staða fyrir Steingrím J. Sigfússon að standa á móti virkjun við Húsavík þar sem byggðin er á undanhaldi; gæti horfið með öllu ef ekki verður raunhæf atvinnuuppbygging sem fyrst. Eitt eða tvo störf búin til "að tína fjallagrös" með ærnum kostnaður er blekking Vinstri grænna í skjóli umræðna um verndum náttúrunnar sem ekki er á raunhæfum nótum eins og að framan greinir.
![]() |
Fleiri störf en hjá varnarliði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |