Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Iceland Airwaves tónlistarhátíð: Björk og Andri Snær baða sig í sviðsljósinu?

Ábyrgð fjölmiðla er mikil þegar viðkvæm mál eins og náttúrvernd eru notuð gegn raforkuframleiðslu, háhitavirkjunum og vatnsaflsvirkjunum hér á landi; að ekki sé verið að slá ryki í augun á fólki um hvað virkjanir snúast. Björk, tónlistarkona og Andri Snær, umhverfissinni ruddust fram með blaðamannafundi og yfirgangi til verndar raforkuauðlindumí krafti peninga og frægðar; Gísli Marteinn fylgdi fast eftir með sjónvarpsþætti í ríkissjónvarpi á RÚV í gærkveldi.

 Gott væri fyrir Björk, Andra Snæ,  Gísla Martein og  þeirra  kynslóð að íhuga hvers vegna  þeim hlotnaðist  gott viðurværi og menntun er þau byggja á  tilveru sína og velgegni.  Er það ekki vegna virkjunarframkvæmda síðustu aldar  og verðmætra fiskimiða?

 Umræðan getur tæplega  snúist um að nýta ekki auðlindir landsins það er undirstaða lífsafkomu komandi kynslóða eins og verið hefur. Kynslóðir 21aldar munu þurfa á þeim að halda til að geta búið í velferðarsamfélagi áfram. Rétt eins og núverandi kynslóð og kynslóðir síðustu aldar nutu framfara og velsældar vegna umræddra auðlinda.

Hins vegar ætti umræðan um friðuð svæði að fara fram jafnframt ákvarðanatöku um  virkjanir. Þá verða til fleiri svæði líkt og Vatnajökulsþjóðgarðurinn. Um hlutlæga umræðu þar af lútandi ættu umrætt fólk að beita sér fyrir; í krafti peninga sinna frægðar og áhrifa.


Spítalinn yfirkeyrir starfsmenn sína á vakt?

Hörmulegt mál fyrir hjúkrunarfræðinginn sem var á vakt  eftir að hafa lesið um málið þá virðist hún hafa verið á hlaupum milli deilda til að redda brýnustu málum á hjúkrunardeildinni, vaktin undirmönnuð.

Alvarlegt mál þegar hjúkrunarfræðingar   eru undir svo miklu álagi  og viðist hafa vera í umræddu  tilviki; hvernig eiga þeir að sinna lögboðnum skyldum sínum undir svo hörðu álagi?

Þá  myndast óhjákvæmilega óviðeigandi  andrúmsloft þegar  vaktahafandi hjúkrunarfræðingar  eru á hlaupum að redda öllum málum – jafnvel milli dauðvona sjúklinga er þurfa sérstaka aðgát og umönnun.

Sjúkrahúsið ber vonandi hluta af sökinni að láta viðgangast og jafnvel skapa slíka „spennitreyju“ fyrir starfsmenn sem  allir eru að vilja geriðir til að gera sitt besta – en það eru takmörk hvað fólk getur lagt af mörkum,„brennur út“ eins og það er kallað, þegar starfsmaður hefur ofgert  sér andlega í starfi.

Ekki má slaka á ábyrgð starfsmanna í vinnu sinni – en spítalinn getur tæplega krafist ábyrgðar að rétt sé staðið að verki, þegar hann yfirkeyrir starfsmenn sína á vaktinni vegna undirmönnunar.innocent


mbl.is Vitni sýnt ákærðu samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Egill Helgason: "þjóðsöngurinn skrýtinn"?

Egill Helgason fjallaði um sr. Mattías Jochumsson,skáld í þætti sínum Kiljunni á RÚV í gærkveldi hefði getað látið vera að dæma sumt af skáldskap hans hreinan og beinan leirburð. Þá nefndi hann að þjóðsöngur Mattíasar væri skrítinn; merking orðabókar skrýtinn merkir spaugilegur/undarlegur ekki orðtak við hæfi um þjóðasönginn allra síst í ríkisfjölmiðli.

 Ekki umdeilt að sr. Mattías naut þjóðhylli fyrir skáldskap sinn – við getum verið stolt af þjóðsöngnum með trúarlegu ívafi og vísun í sálm nr. 90 í Sálmum Biblíunnar.

Ekki stórmannleg gagnrýni um skáldskað Mattíasar með ofangreindum hætti; að honum látnum og getur ekki varið sig.innocent

 

(Kiljan hæddist að skáldskap Mattíasar en varð honum ekki til vegsauka – tæplega vænlegt að hefja sig upp sem skáld með hnjóði í annað skáld)


Oftraust á sérfæðingum?

Las á netinu að Trausti Valsson skipulagsfræðingur/verkfræðingur Reykjavíkurborgar er að gefa út bók um skipulagsmál. Bókin er fyrir almenning til að vekja hann til umhugsunar um umhverfi sitt nota sköpunargáfu og skynsemi til að láta sig varða hvernig skipulag og byggingar líta út í umhverfinu – hvort þær eru hannaðar í samræmi við umhverfið síðast ekki síst hvort þær eru rétt hannaðar eftir hvaða starfsemi fer þar fram.

Með allri virðingu fyrir sérfræðingum gengur ekki að þeir einir hugsi alla hluti án nokkurrar gagnrýni. Þingmenn og ráðherrar hafa her manns sérfræðinga til að hugsa fyrir sig; gengur það ekki of langt ef viðkomandi hafa engar hugmyndir eða tilfinningu fyrir hvað er til heilla fyrir þjóðina.

Án efa verður umrædd bók fróðleg til lesningar þar munu höfundur benda galla og hvað betur mætti fara um hönnun og byggingar.

Hlakka til að geta náð í umrædda bók til lesningar.


Innköllun fiskveiðiheimilda - gjaldþrot þjóðarbúsins?

Ágætu lesendur og bloggarar hef verið fjarverandi undanfarið, set hér inn færslu frá 2009 um sjávarútveg sem oft  er í umræðunni- enda mikilvægasti útflutningur okkar.

Hjá hatursfólki á fyrirkomulagi  reksturs  einkafyrirtækja í sjávarútvegi er fyrst og síðast alltaf tekið fram, "þjóðin á kvótann, yfirgnæfandi þjóðarvilji krefst þess" Umræða með sanngirni og rökum um hvað betur mætti fara í rekstrinum hefur ekki farið fram; heldur  síbyljuáróður þeirra er vilja þjóðnýta sjávarútveginn ; en verður arðurinn meiri þegar ríkið og pólitísk áhrif fara að deila og drottna með fjöregg þjóðarinnar?

Nei, sá flokkur er gengur lengst í þjóðnýtingarstefnu sjávarútvegs með  áróðri er Samfylkingin enda er það stefna þeirra í bráð og lengd, að koma þjóðinni og auðlindinni undir ESB sem allra fyrst?Þá er "jafnaðarstefnan" komin til framkvæmda; þegar Ísland hefur ekkert með stjórnun fiskveiða að gera?

Fyrrnefnd gagnrýnin umræða fer ekki farið fram í fjölmiðlum, þeir eru  hallir undir áróðurkenninguna, "þjóðin á kvótann", fremur en  að standa fyrir  réttlátri gagnrýninni umræðu.

Það vekur vonir með núverandi eigendum  Morgunblaðsins,  að rökleg skoðanaskipti um sjávarútveg  fari fram en verði ekki í formi æsingaumræðu  til múgsefjunar, . 

Umhugsunarverð stefna  að vilja setja rekstur  sjávarútvegsfyrirtækja í gjaldþrot með innköllun kvótans, eyðileggja rekstrarskilyrðin fyrir arðbærum veiðum nú um stundir þegar útflutningur fiskafurða  er að bjarga þjóðinni frá endanlegu efnahagshruni. 

Er raunverulegur  vilji þjóðarinnar að innkalla fiskveiðiheimlildir?

 


Vinnudeilurnar fyrir gerðardóm - strax

Getur ekki dregist lengur  að kjaradeilurnar fari fyrir gerðardóm –    fárveikt fólk þolir enga bið – stjórnvöld  virðast hika vegna óvinsælda; en almenningur  mun taka afstöðu með veiku fólki en ekki pólitískum vinnudeilum.

Ámælisvert að heilbrigðisstarfsfólk gæti eigin hagsmuna - á kostnað skjóstæðinga sinna.innocent


mbl.is Alvarlegt ástand á Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðlaust verkfall gegn veiku fólki?

Verkföll  innan heilbrigðiskerfisins er ekki boðlegt fárveiku fólki er enn og aftur er notað sem verkfallsvopn í kjarabaráttu  - af skjólstæðingum sínum; er eiga að sjá um velferð þeirra.

Yfirlýsingar landlæknis þess efnis að stöðva slíka þróun er  réttmæt;  það er mannréttindabrot gagnvart sjúklingum – stefnir lífi þeirra í hættu.

 Hver svarar  til saka  ef  dauðsföll verða sökum verkfallsins – er telja má óhjákvæmilegt; ber enginn ábyrgð?

Er það siðferðilega boðlegt að heilbrigðisstéttir geti yfirgefið fárveikt  fólk er ber að fá alla þjónustu sem hægt er samkvæmt lögum; að berjast fyrir eigin hagsmunum? innocent


mbl.is Verkföll hefjast á miðnætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sekvensía ( katólskur sálmur)

 

Kom þú, Heilagur Andi,

og send ljósgeisla þinn
frá himnum.

Kom þú, faðir fátækra,
þú gjafari gæðanna
og ljós hjartnanna.

Hjálparinn besti,
ljúfi gestur sálarinnar,
ljúfa hressing hennar.

Hvíld hennar í erfiði,
forsæla í hitum,
huggun í sorgum.

(Fjögur fyrstu vers)

 

Eigið góðan sunnudaginnocent

 

 


"Djúsí"- þættir Gísla Marteins

 „Djúsí“- þáttur Gísla Marteins var hálfgert blaður – ekki einu sinni hægt að tala íslensku - þó gaman af Bubba með 50þús atkvæði frá Sviss í skoðanakönnun Útvarps  sögu – einfalt treystir þú Bubba var mótvægi  skoðanakönnun Sögu treystir þú múslimum, heimskulega þunn spurning.

Má segja að skoðanakannanir orki tvímælis  hér eftir

 Sól spilaði skemmtilega á tvö hljóðfæri í einu– Ríótríóið rifjaði upp vinsælt lag í lokin.

 Gísli Marteinn lýsti  „djúsí“ fyrirsögnum helgarblaðanna með tilheyrandi flissi –hvað skyldi „djúsí“ merkja í íslensku – tölvuorðabókin harðneitaði þýðingu reyndi á tíu tungumálum.

Öðru hefði mátt sleppa;Ef til vill mætti  stytta alla þættina tuttugu niður í tíu - sparnaður fyrir RÚV.innocent


Forsetinn - forystuhlutverki í heimsviðburði

Hringborð Norðurslóða er  heimsviðburður  þjóðir heims taka sig saman gegn stærstu ógnuninni , loftlafsbreytingunni – stærsta málið að koma á verndarsvæðum til að vernda líffræðilega fjölbreytni.

Ráðstefnan gæti orðið afgerandi vísbending til þjóða heims á loftlagsráðstefnunni í París í des.nk.

Forseti Íslands virðist nú þegar  orðinn sterkur leiðtogi meðal þjóða í – framangreindum málefnum – til mikils gagns og sóma fyrir þjóðina.innocent


mbl.is Með vísindi og rannsóknir að leiðarljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband