Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Egilsstaðir - London beint flug.

Góð tíðindi fyrir Austurland – nú verður hægt að skreppa til London  í lengri eða skemmri tíma  taka flug áfram er verður ódýrara  en hér þekkist. Vonandi lækkar innanlandsflugið við samkeppnina. Flug Egilsstaðir - Reykjavík er ekki raunhæft  nema líf liggi við – heyrði frásögn manns nýverið hann greiddi 47.000 fram og til baka.

Sjálfsögð krafa að íslensku flugvélögin útskýri verðmuninn – bjóði upp á lægri fargjöld. Bensínið er eflaust dýrara hér - ef til við væri hægt selja  það í innanlandsflug á  innkaupsverði?   innocent


mbl.is Flogið milli Egilsstaða og Lundúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn hafi meirhluta -

Núverandi forseti virðist hafa breytt forsetaembættinu til frambúar með vísun til þjóðaratkvæðis samkvæmt orðanna hljóðan í stjórnarskránni. Að kjósa næsta forseta með afgerandi hætti  gerir stöðu hans sterkari með meirihluta þjóðarinnar að baki. Vonandi tekst að semja skýrar reglur þar um á mannamáli sem almenningur skilur;  verði ekki lagtæknilegar flækjur  með óskýru orðalagi  og endalausri túlkun lögfræðinga/fræðimanna um hvað þær snúast.


mbl.is Forseti þurfi meirihluta atkvæða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vítahringur - svikinna loforða

Vítahring stjórnmálamanna  sífellt svikinna  loforða til eldri borgara um betri lífskjör  verður að linna.

Ef litið er til baka ársins 2009 er vinstri flokkarnir fengu völdin hófst eindæma árás á kjör eldri borgara þrátt fyrir „skjaldborgina“ frægu: Lækkun lífeyris, upptaka eigna, og afnám grunnlífeyris; skerðing eldri borgara varð langt umfram aðra samfélagsþegna.

 Launaskrið varð verulegt  meðal  launafólks; en eldri borgarar  sátu eftir.

Nú afsaka þessir sömu vinstri flokkar Samfylking og Vinstri grænir framangreindar árásir flytja  frumvarp á alþingi um bætt kjör eldri borgar; sami vítahringurinn að venju.

Fyrir síðustu kosningar  reit Bjarni Benediktsson, núverandi fjármálaráðherra í Mbl. 9.04-13: „Það er réttlætismál að veita öldruðum raunverulegt frelsi til að njóta ávaxta ævistarfs síns. Í þágu þess réttlætismáls ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að vinna".

Nú hafa lögin um afnám grunnlífeyris verið numin úr gildi og 9% hækkun launa lofað um næstu áramót - en getur ekki verið ásættanlegt ef reiknað er með 300þús.lágmarkslaunum í mánaðarlaun.

Vonandi tekst formanni sjálfstæðisflokksins að sjá til þess að núverandi stjórnarflokkar  standi við stóru loforðin  til eldri borgara– vítahringurinn verði rofinn.innocent


Eru sjúkir eldri borgarar "niðursetningar"?

Þegar sjúkir eldri borgara eru svo illa komnir að þurfa dveljast á hjúkrunarheimili eru þeir sviptir lífeyri sínum og skammtað skammarleg upphæð (52.000)fyrir persónulegum þörfum: Klipping/snyrting, snyrtivörur, sími/tölva, fatnaður og afþreying leikhús og þ.h.

Smánarleg framkoma;  brot á sjálfvirðingu þeirra og mannréttindum.

Við ofangreindar aðstæður ætti að fara fram hlutlaust mat á persónulegum þörfum viðkomandi að viðstöddum fulltrúa frá hinum sjúka.

Ekki að Tryggingastofnun eða hjúkrunarheimili hirði laun þeirra og skammti þeim smánar vasapeninga.

Brýnt er að breyta ofangreindu fyrirkomulagi og virða mannréttindi sjúkra eldri borgara.

 


Hvert er hæfnismat grunnskólabarna?

Eftir að hafa lesir upplýsingar um bókstafsgjöf í Mbl er undirrituð engu nær –hvað er „hæfnismat“?

Dæmi í  prófi : Anna fékk fimm karamellur, hún borðaði 2 –hvað eru margar eftir?

Óli svarar þrjár.

Lóa svarar hún gaf mér eina, borðaði sjálf tvær þá eru tvær eftir =2 karamellur

Sveinn svarar hún gaf mér tvær, borðaði sjálf tvær, gaf Lóu eina –það er engin eftir= 0 karamellur.

Hvaða hæfnismat fá framangreind börn í stærðfræði– hvaða bókstaf?innocent


mbl.is Hvaða þýða bókstafseinkunnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæn Gísla frá Uppsölum:

Gísli frá Uppsölum minnir um margt á meinlætamenn/einsetumenn fyrri tíma er drógu sig út úr samfélaginu; fjarri  samtíma sínum lifði hann  meinlætalífi í innilegri bæn til Guðs.

 

 Bæn Gísla frá Uppsölum:

 Þegar raunir þjaka mig

þróttur andans dvínar

þegar ég á aðeins þig

einn  með sorgir mínar.

 

Gef mér kærleik, gef mér trú

gef mér skilning hér og nú.

 

Ljúfi drottinn lýstu mér,

svo lífsins veg ég finni.

Láttu ætið ljós frá þér

ljóma í sálu minni.

 

Eigið góðan sunnudaginnocent


Ótrúverðug könnun - stærsta fall ríkisstjórnar -

Ótrúleg/ótrúverðug  skoðanakönnun í þætti Gísla Marteins (RÚV) í gærkveldi, að Jóhanna Sigurðardóttir sé vinsælasti forsætisráðherrann af sex síðustu? Ríkisstjórn Jóhönnu kolféll eftir eindæma lélega stjórn efnahagsmála – stærsta fall ríkisstjórnar frá upphafi.

Auk þess var Steingrímur J. Sigfússon  "forsætisráðherrann" í orði og á borði;  Jóhanna kom aðeins fram sem „glanspía“ þegar við átti.

 

Skoðanakönnun ætti ávallt að  sýna hvar í landinu fólkið er sem svarar - hvaða aldurshópur tekur þátt –  var hún aðeins framkvæmd á Reykjavíkursvæðinu eða jafnvel „Reykjavík 101"?  

Var ekki umræddur þáttur Gísla M. Baldurssonar - ísmeygileg tilraun til að reyna finna samhljóm/glansmynd hjá  "vinstra liðinu"-? innocent


Táningaldur -viðkvæmt þroskastigi.

Hvers vegna ögra unglingar með þessum hætti –hverju eru þeir að mótmæla? Þeir eru að feta slóðina til fullorðinsára er  brýst út sem ögrun við heimili, skóla og samfélag. Hegðun þeirra verður þvert á þau norm/fyrirmyndir er þau þekkja  vel. Ómeðvitað/meðvitað eru þau að kalla eftir viðbrögðum sem eru eðlileg  í glímunni á táningsaldrinum.

þá þarf nánasta umhverfi heimili og skóli að bregðast  rétt við með  skilningi; ræða við unglinginn á  hans á erfiða og viðkvæma þroskaskeiði.

Fjölmiðlar eru tæplega vettvangur til blása út hegðun unglinga á viðkvæmu þroskastigi.innocent


mbl.is Biðst afsökunar á athugasemdunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Goðafoss - eldsvoði í óveðri

Undirritaðri er  fersku minni ferð með Goðafossi í nóvember 2010 er skall á aftaka veður  og stórsjór   milli Íslands og Færeyja. Þá kom  upp eldur í skipinu; tæplega  spurt að  leikslokum hefði ef skipið orðið vélarvana; rekið stjórnlaust fyrir veðri og  vindi.

Hugrekki og áræði áhafnarinnar  tókst vafalaust að forða stórslysi; þá skiptu sköpum rétt handtök. Áhöfnin  var í mikilli hættu við slökkvistörfin vegna elds og óveðurs er brotsjór reið yfir skipið; litlu munaði að þrír færu útbyrðis, einn hékk aðeins á annarri hendi við borðstokkin.

Slys gera ekki boð á undan sér  sífellt vofir hætta yfir sjófarendum vegna óveðra/ólags er engu eira. Með  örari tækni og góðum búnaði skipa verður hættan ef til vill fjarlægari í undirmeðvitund  þeirra er vinna á hafi úti;  huga þarf vel að  bjögunarbúnaði, æfingar séu reglulega um borð, allir viti hvernig bregðast á við  fljótt og fumlaust.

Tæplega fá orð lýst þeirri lífsreynslu að  verða sjónarvottur  í  umræddum aðstæðum.innocent


mbl.is Slökkvistarf við mjög erfiðar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blikur á lofti-

Enn syrtir í álinn á vinnumarkaði – verköll á næsta leiti . Samningar hljóta að verða á svipuðum nótum og aðrir hafa fengið;  eitthvað verður þrefað í nokkrar  vikur áður en málið lendir fyrir gerðardóm. Mikilvægt  að  halda þeim stöðugleika er náðst hefur;eftir því sem nær dregur alþingiskosningum verður erfiðara að semja; kjaradeilan verður tæki til að  fella núverandi stjórnarflokka.

Sama hringekjan hjá öllum flokkum, lofa öllu fögru en umsvifalaust svikið eftir kosningar.

Þó gæti orðið breyting á með nýju afli, svokölluðum Pírötum, óánægjan gæti sópað að þeim fylgi?

Spennandi tímar framundan.innocent

 


mbl.is Reynt til þrautar á Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband